Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 80
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
Vissir þú?
Teikningar og texti Bragi Halldórsson
45
„Jæja Kata,“ sagði Lísaloppa. „Nú ert þú búin að æfa þig í að
leysa sudoku gátur, getur þú leyst þessa?“ „Tja,“ sagði Kata
með semingi. „Æfa mig og ekki æfa mig, ég er nú bara búin
að glíma við örfáar.“ „Og hvernig hefur gengið?“ spurði
Konráð. „Svona upp og ofan en það er rétt að það verður
auðveldara í hvert skipti að leysa þær,“ sagði Kata. „Þá
skulum við bara demba okkur í þessa,“ sagði Lísaloppa
spennt en Kata dæsti. Hún var ekki ennþá orðin það góð í
að leysa sudoku gátur að hún beint fagnaði því, en verkefni
er verkefni. „Allt í lagi, sagði Hún ákveðin. „Drífum þá í því.“
Getur þú
leyst þessa
sudoku
gátu?
5 9 6
2 6 5 9 4
9 5 1 7 8
6 3 7 8 5
7 9 4 8 1 2
8 3 5 4 7
5 4 3 9 2
3 9 4 6 5
7 2 5 8 3 1
Frístundaheimilið Skýjaborgir er
starfrækt við Vesturbæjarskóla.
Þar eru fjölmargir klúbbar starf-
andi sem bæði starfsmenn og
krakkarnir á Skýjaborgum, sem
eru nemendur í 1. og 2. bekk
skólans, eiga frumkvæði að.
Meðal klúbba sem hafa verið
starfræktir eru tilraunaklúbbur,
listaverkaklúbbur, drekaklúbbur
og rokkklúbbur. Margir krakkar
sem eru á frístundaheimilinu eru
áhugasamir um Stjörnustríðs-
kvikmyndirnar og höfðu áhuga
á því að stofna Star Wars-klúbb.
Halldóra Hafsteinsdóttir starfs-
maður heyrði af þessum áhuga
og tók verkefnið að sér. „Þessi
klúbbur hefur alveg slegið í
gegn og mér þykir sérstaklega
skemmtilegt að það eru mjög
margar stelpur í honum. Sumir
krakkanna vita mjög mikið um
myndirnar en aðrir hafa bara
lært um þær í myndunum.“
Barist í Skýjaborgum
með geislasverðum
Áhugasamir krakkar á frístundaheimilinu Skýjaborgum í Vesturbæjarskóla fengu
þá hugmynd á dögunum að stofna Star Wars-klúbb. Halldóra Hafsteinsdóttir,
sem vinnur á heimilinu, tók málið í sínar hendur enda áhugasöm um málið.
ALLIR HALDA UPP Á LOGA GEIMGENGIL OG SVARTHÖFÐA Nokkrir af krökkunum í hinum vinsæla Star Wars-klúbbi. Þau
heita frá vinstri: Álfheiður, 6 ára, Vigdís Elfur, 6 ára, Elvar, 6 ára, (fyrir aftan) Björn Diljan, 6 ára, Jón Gnarr, 7 ára, og Sigurður, 7
ára. Þau eiga sér enga sérstaka uppáhaldsmynd í myndaflokknum en halda öll mikið upp á Luke Skywalker, eða Loga Geimgengil
eins og hann heitir á íslensku, og Svarthöfða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Meðal annarra klúbba sem hafa verið starfræktir á Skýjaborgum
er klúbburinn Söngfuglarnir en meðlimir hans æfðu upp nokkur
lög og sungu fyrir heimilisfólk á elliheimilinu Grund. „Svo höfum
við hér til dæmis álfa- og tröllasöguklúbb, njósnaraklúbb og bóka-
klúbb,“ segir Styrmir Reynisson hjá Skýjaborgum. „Hugmyndirnar
koma bæði frá krökkunum og starfsmönnum. Stundum sjá krakk-
arnir alveg um klúbbana, stundum fá þau aðstoð starfsmanna og
stundum halda starfsmenn alveg utan um starfið. Þetta er mjög
vinsælt og vel metið hjá krökkunum.“
Söngfuglar sungu á Grund
■ Að í líkamanum eru um 650
vöðvar. Þegar þú brosir notar þú
17 vöðva. Þegar þú ert með fýlu-
svip notar þú 43.
■ Að það er hægt að teyma kú upp
stiga en ekki niður hann.
■ Að yfir daginn þrýstast þófarnir
milli hryggjarliðanna saman svo að
við erum styttri þegar við förum
að sofa en þegar við vöknum á
morgnana.
■ Að hárið á höfði þér vex í tvö til
sex ár og venjulega detta 70-100
hár af daglega. Augnhárin endast
hins vegar einungis í tíu vikur.
■ Að geimfarar eiga erfitt með að
gráta úti í geimnum. Þar sem ekk-
ert þyngdarlögmál er geta tárin
ekki runnið og því svífa droparnir
bara um.
■ Að fleira fólk notar bláa tann-
bursta en rauða.
■ Að hver maður hefur alls um
fimm milljónir hára og þau vaxa
um 12 millimetra á
mánuði.
■ Að hver manneskja hefur sitt
eigið sérstaka tungufar sem er
ólíkt öllum öðrum rétt eins og
fingraför.
■ Fyrsta myndin sem gerð var um Star Wars var frumsýnd
árið 1977, fyrir 36 árum. Sú mynd er samt númer fjögur
í myndaflokknum en alls hafa verið gerðar sex myndir og
sú sjöunda er á leiðinni.
■ Í fyrstu myndinni eru kynntar til sögunnar hetjur sem
leika aðalhlutverk í fyrstu myndunum þremur sem frum-
sýndar voru á árunum 1977, 1980 og 1983. Þær myndir
eru númer fjögur, fimm og sex.
■ Þessar hetjur eru Luke Skywalker, Han Solo, Obi-Wan
Kenobi, Leia prinsessa, Chewbacca, Darth Vader og
vélmennin R2D2 og C3PO. Allar þessar persónur
fengu íslensk nöfn sem eru mismikið notuð. Luke
heitir á íslensku Logi Geimgengill, Han Solo var
nefndur Hans Óli, Leia fékk nafnið Lilja, Chew-
bacca heitir Loðinn og Darth Vader er að sjálf-
sögðu Svarthöfði. Yoda kemur til sögunnar í
mynd númer fimm.
■ Myndir eitt, tvö og þrjú gerast á undan hinum
en voru búnar til seinna. Þar hittum við ungan
Svarthöfða sem heitir þá Anakin. Þar eru líka
Loðinn, Obi-Wan og vélmennin tvö.
■ Mikið er barist með geislasverðum í Star
Wars, en þau eru vopn Jedi-riddara. Meðal
eftirminnilegra bardaga eru: Anakin að berj-
ast við Obi-Wan í mynd númer þrjú, en eftir
þann bardaga verður Anakin að Svarthöfða,
og Logi að berjast við Svarthöfða í mynd-
um númer fimm og sex. Í bardaganum
þeirra í mynd númer fimm kemst Logi að
því að Svarthöfði er pabbi hans.
Star Wars
HETJUR Logi Geimgengill, Lilja prinsessa og
Hans Óli í góðum gír.
En hvað er svo gert í svona
Star Wars-klúbbi? „Það var svo
skemmtilegt að Nexus gaf mér
fjöldann allan af geislasverðum
og við höfum verið að æfa okkur
með þau og prófað að berjast
með sverðunum. Við höfum
skoðað bardaga í bíómyndunum
og sviðsett þá. Svo höfum við
verið að mála steina eins og pers-
ónur bíómyndanna. Einnig fann
ég myndir á netinu sem hægt er
að prenta út og búa til fígúrur
úr.“
Hvað eru margir í klúbbnum?
„Það eru fjórtán í klúbbnum í
einu en við skiptum um meðlimi
reglulega.“
Halldóra hefur sjálf mjög gaman
af Star Wars. „Ég er samt eigin-
lega enn hrifnari af Star Trek
en þær myndir passa ekki fyrir
aldurshópinn í Skýjaborgum. En
það er mjög gaman að vinna að
þessu verkefni með krökkunum
og alltaf gaman að rifja upp Star
Wars.“
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Amerískir með klakavél
20%
afsláttur
OBI-WAN
KENOBI
Tilbúinn í
slaginn.