Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 2
30. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
ÞRÓUNARSAMVINNA Þegar Haile
Kebede kom frá Eþíópíu til Íslands
árið 2002 til að taka þátt í nám-
skeiði í Jarðhitaskóla Sameinuðu
þjóðanna átti hann ekki von að því
að hann myndi snúa hingað aftur
til þess að setjast hér að. „Ég er
með BS-próf í rafmagnsverkfræði
og kom hingað á vegum orkufyrir-
tækis sem ég starfaði hjá í höfuð-
borg Eþíópíu, Addis Ababa. Það
var mjög dýrmætt að fá að taka
þátt í námskeiðinu. Eþíópía býr
yfir miklum möguleikum á nýt-
ingu jarðhita og það var fróð-
legt að kynnast þessum málum á
Íslandi.“
Haile sneri heim og miðlaði af
þekkingu sinni en sneri aftur til
Íslands 2003 þar sem örlögin höfðu
gripið í taumana. Hér hafði hann
nefnilega kynnst Tsgie Yirga. „Við
sáumst fyrst í strætó og köstuð-
um kveðju hvort á annað þar sem
við sáum að við vorum bæði frá
Eþíópíu. Það er hægt að sjá slíkt
á andlitsfallinu,“ útskýra þau. Það
var svo í boði hjá íslenskri konu,
sem dvalið hafði lang dvölum í
Eþíópíu, sem þau Haile sáust aftur
og komust að því að þau hefðu bæði
búið og starfað í Addis Ababa, ekki
langt frá hvort öðru.
Tsgie hafði komið til Íslands
árið 2000 og starfað hér sem au
pair í sex mánuði. „Ég vann við
matreiðslu í norska skólanum í
Addis Ababa og frétti af Íslandi og
möguleikunum hér hjá trúboðum.
Mér leist strax mjög vel á íslenskt
samfélag og ákvað að reyna að fá
vinnu hér að loknu au pair-starf-
inu. Ég fékk fljótlega starf við
ræstingar í Mennta skólanum í
Hamrahlíð og vinn þar enn. Ég
elda líka eþíópískan mat fyrir
hópa og fyrir afmæli. Mig langar
til þess að komast í kokkaskóla en
ég var búin að ljúka framhalds-
skólanámi heima í Eþíópíu.“
Haile, sem sneri aftur til Íslands
til þess að kvænast konunni frá
Eþíópíu sem hann hafði kynnst hér,
starfar nú við viðgerðir á kaffivél-
um. „Auðvitað langar mig til þess
að starfa við mitt fag hér og von-
andi tekst það. En vissulega langar
mig líka til þess að nýta þekkingu
mína í Eþíópíu,“ segir hann.
Það var meðal annars vegna
skólagöngu barnanna sem fjöl-
skyldan ákvað að setjast að á
Íslandi. „Við eigum tvö börn,
Jóhönnu, sem er 9 ára, og Jónat-
an, sem er 7 ára. Þau eiga marga
vini hér og vilja vera áfram í skól-
anum sínum á Íslandi. Við verðum
þess vegna hér, að minnsta kosti
í nokkur ár. Við viljum að þau fái
góða menntun,“ segja þau Haile og
Tsgie.
Hún tekur sérstaklega fram að
þau eigi góða að á Íslandi. „Hér
hafa íslenskar fjölskyldur opnað
heimili sín fyrir okkur. Það er gott
að hafa bakhjarl hér þegar ætt-
ingjarnir eru langt í burtu.“
ibs@frettabladid.is
TÆKIFÆRI Á
ÍSLANDI Tsgie
og Haile, sem
eru frá Eþíópu,
vilja að börnin
þeirra fái góða
menntun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þróunarsamvinna ber ávöxt. Þetta er yfirheiti kynningarátaks frjálsra félaga-
samtaka á Íslandi, sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu, og Þróunar-
samvinnustofnunar Íslands.
Markmiðið með kynningarátakinu er að auka skilning og þekkingu al-
mennings á málefnum þróunarlanda og vekja Íslendinga betur til vitundar
um samfélagslegar og siðferðilegar skyldur þjóðarinnar í baráttunni gegn
fátækt, vannæringu og ójöfnuði í heiminum.
Átak um gildi þróunarsamvinnu
Addis
Ababa
➜ Eþíópía
ÍBÚAFJÖLDINN ER NÁLÆGT 90
MILLJÓNUM.
GRIKKLAND, AP Kveikt var á Ólympíueldinum við hátíðlega athöfn í hinni
fornu Ólympíu á Grikklandi í gær. Að því búnu var lagt af stað með
Ólympíukyndilinn, sem verður kominn til Sotsjí í Rússlandi í tæka tíð
fyrir Vetrarólympíuleikana hinn 7. febrúar á næsta ári.
Ólympíukyndillinn á síðan eftir að gera víðreist næstu mánuðina,
meðal annars verður flogið með hann í loftbelg, hann fluttur á hunda-
sleða og svo verður siglt með hann í kjarnorkukafbát. Hinn 7. nóvember
verður svo flogið með hann út í geiminn.
„Þetta er upphafið að sögulegu ferðalagi Ólympíukyndilsins, ferðalagi
sem mun breyta Rússlandi til frambúðar,“ sagði Dmitrí Tsjernísjenkó,
aðalskipuleggjandi vetrarólympíuleikanna í Sotsjí á næsta ári. - gb
Ólympíueldurinn kveiktur í Ólympíu á Grikklandi:
Eldurinn farinn af stað til Sotsjí
Eru þetta tómir kálhausar
í Kópavogi, Sigvaldi?
„Nei, það held ég einmitt að sé
vandamálið, það vantar fleiri
kálhausa.“
ELDURINN KVEIKTUR Ólympíukyndillinn á eftir að gera víðreist áður en hann
kemur til Sotsjí. NORDICPHOTOS/AFP
LEIT Tveir vinir Bandaríkjamanns-
ins Nathan Foley-Mendelssohn eru
komnir til landsins frá Bandaríkjun-
um. Annar kom á laugardagsmorg-
un og hinn í gærmorgun. Þegar leit
hófst að Foley-Mendelssohn hafði
ekkert heyrst frá honum í tæpar
þrjár vikur.
Ættingjar og vinir mannsins
settu sig í samband við lögreglu hér
á landi seinni partinn á föstudag-
inn þar sem þau voru farin að ótt-
ast um hann enda langt síðan þau
heyrðu frá honum. Lögreglan hóf
strax að grennslast fyrir um hann.
Aðfaranótt laugardags var ljóst að
hann hafði ekki farið frá landinu,
ekki skilað bílaleigubíl sem hann
hafði ætlað að skila 13. september
og ekki notað kreditkortið sitt frá 9.
september.
Foley-Mendelssohn, sem er 34
ára, kom hingað til lands 30. ágúst.
Síðast er vitað um ferðir hans í
Landmannalaugum 10. septem-
ber. Hann ætlaði að ganga yfir í
Þórsmörk og þaðan yfir í Skóga
á þremur dögum. Hann ætlaði að
gista fyrstu nóttina á leið sinni yfir
Lauga veginn í Álftavatni en hann
kom aldrei þangað. Leitin fer því að
mestu fram á svæðinu milli Land-
mannalauga og Álftavatns.
Frá Íslandi ætlaði Foley-
Mendelssohn að fara til Barcelona.
Engar upplýsingar liggja fyrir um
hvenær hann ætlaði frá Íslandi.
Lögreglan á Hvolsvelli er í sam-
bandi við vini hans sem staddir eru
hér á landi og ættingja mannsins í
Bandaríkjunum sem leigði þyrlu til
að aðstoða við leitina. - hrs
Leitin að Nathan Foley-Mendelssohn fer að mestu fram milli Landmannalauga og Álftavatns:
Vinafólk týnda mannsins til landsins
NÍGERÍA, AP Tugir námsmanna
voru myrtir á stúdenta görðum
við landbúnaðarháskóla í
Nígeríu. Einnig var kveikt í
skólastofum.
Það eru herskáir íslamistar
sem taldir eru hafa gert þessa
árás í bænum Potiskum í fyrri-
nótt.
Árásarmennirnir óku inn
á skólalóðina á vélhjólum og
tveimur bifreiðum, sumir
klæddir í felubúninga frá hern-
um. Flestir hinna myrtu voru
múslimar.
Þeir sem komust undan flúðu
út í skóg. - gb
Íslamistar réðust á skóla:
Myrtu tugi
námsmanna
KRABBAMEIN Vísindamenn í Bret-
landi eru bjartsýnir á að ný til-
raunalyf muni lækna sjúklinga
með sortuæxli. Læknar segja
sjúklinga hafa sýnt ótrúlegan bata
eftir að hafa prófað lyfin. Þetta
er í fyrsta sinn sem vísindamenn
komast jafn nærri lækningu á
sortuæxlum sem hafa dreift sér
um líkamann. Yfirhúðlæknir hjá
krabbameins rannsóknarfélagi í
Bretlandi segir þetta tímamót í
krabbameinsmeðferðum þar sem
ónæmiskerfi mannsins er notað
og virka nýju lyfin þannig að
varnir líkamans ráðast gegn æxl-
inu. - ka
Ný krabbameinslyf:
Eiga að lækna
sortuæxli
VERSLUN Heilbrigðisnefnd Hafnar-
fjarðar og Kópavogs íhugar að
veita verslunni Kosti áminningu
og stöðva reksturinn vegna „van-
merktrar matvöru“.
Í eftirliti 2. ágúst 2013 í Kosti
eru sögð hafa komið fram „alvar-
leg brot“ á reglugerðum um merk-
ingu matvæla, merkingu næringar-
gildis matvæla og um aukefni í
matvælum varðandi viðbótarupp-
lýsingar um litarefni. Verslun er
sögð enn ekki kynnt úrbótaáætlun.
Heilbrigðisnefnd muni því án frek-
ari viðvarana beita ákvæðum um
áminningar og stöðvun starfsemi.
Lögmaður Kosts óskar eftir rök-
stuðningi vegna málsins. - gar
Heilbrigðiseftirlitið segir alvarleg brot á reglum um merkingar í Kosti:
Íhuga að loka fyrir reksturinn
KOSTUR
Matvara er
vanmerkt
segir heil-
brigðis-
eftirlitið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
ÓFUNDINN Mendelssohns hefur
verið saknað frá 10. september.
SPURNING DAGSINS
Hjón frá Eþíópu sáust
fyrst í strætó á Íslandi
Haile Kebede kom til Íslands til þess að afla sér sérfræðiþekkingar í jarðhita-
fræðum svo hann gæti miðlað af þekkingu sinni heima í Eþíópíu. Tsgie Yirga frétti
af Íslandi hjá trúboðum. Þau kynntust hér og settust hér að barna sinna vegna.