Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 66
30. september 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
Þarna er rakin saga félagsins á þessum árum, jafnt innan vallar sem utan
og verður hún prýdd fjölda mynda.
Aftast í bókinni verður HEILLAÓSKASKRÁ (LIST OF HONOUR). Þar geta
þeir sem gerast áskrifendur að bókinni fengið nafnið sitt skráð undir
þakkarorðum til Sir Alex, en bókin verður síðan afhent honum.
Verð bókarinnar verður kr. 5.980 (auk 800 króna sendingargjalds)
og þarf að greiða hana fyrirfram (með korti eða leggja inn á reikning). Þeir
100 fyrstu sem panta fá jafnframt að gjöf FÓTBOLTASPILIÐ.
Hægt er að panta bókina í síma 557-5270 (og eftir kl. 16 í s. 692-8508)
Einnig er hægt að panta bókina í netganginu: holar@holabok.is
SIR ALEX - áskrift!
Í nóvember kemur út bókin SIR ALEX -
HINN MAGNAÐI FERGUSON-TÍMI HJÁ
MANCHESTER UNITED 1986-2013,
eftir Guðjón Inga Eiríksson
Ítölsk hönnun
hágæða sófasett
Kyn
nin
gar
ver
ð
Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus)
Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18
laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
SÉRHÆFUM OKKUR Í SMÍÐI Á HEILSURÚMUM
FAGLEG
RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGU-
GREINING
Komdu í heimsókn, prófaðu
legugreininguna, og fáðu
faglega ráðgjöf um val á
heilsu dýnum, án skuldbindinga!
20-
50%
AFS
LÁT
TU
R AF
ÖLL
UM
HE
ILS
UR
ÚM
UM
Frí heimsending á hjónarúmum
eða tökum gamla rúmið upp í nýtt!
LAGERHRE INSUN
Á ARINELDSTÆÐUM
EINUNGIS 3 VERÐ!
19.900,-
29.900,-
39.900,-
ENSKA DEILDIN 2013
STAÐAN
Arsenal 6 5 0 1 13:7 15
Liverpool 6 4 1 1 8:4 13
Tottenham 6 4 1 1 6:2 13
Chelsea 6 3 2 1 7:3 11
Southampton 6 3 2 1 5:2 11
Man. City 6 3 2 1 14:7 10
Hull City 6 3 1 2 6:7 10
Everton 5 2 3 0 6:4 9
Aston Villa 6 3 0 3 9:8 9
WBA 6 2 2 2 6:5 8
Cardiff 6 2 2 2 6:7 8
Man. Utd 6 2 1 3 8:8 7
Swansea 6 2 1 3 8:9 7
Stoke 6 2 1 3 4:6 7
Norwich 6 2 1 3 4:6 7
Newcastle 5 2 1 2 5:8 7
West Ham 6 1 2 3 4:5 5
Fulham 6 1 1 4 4:9 4
C. Palace 6 1 0 5 4:10 3
Sunderland 6 0 1 5 4:14 1
SUNDERLAND - LIVERPOOL 1-3
0-1 Daniel Sturridge (28.), 0-2 Luis Suarez (35.),
1-2 Emanuele Giaccherini (51.), 1-3 Luis Suarez
(89.).
STOKE CITY - NORWICH 0-1
0-1 Jonathan Howson (34.).
TOTTENHAM - CHELSEA 1-1
1-0 Gylfi Þór Sigurðsson (19.), 1-1 John Terry
(65.).
ASTON VILLA - MAN. CITY 3-2
0-1 Yaya Toure (45.), 1-1 Karim El Ahmadi (51.),
1-2 Edin Dzeko (56.), 2-2 Leandro Bacuna (73.),
3-2 Andreas Weimann (75.).
FULHAM - CARDIFF 1-2
0-1 Steven Caulker (12.), 1-1 Bryan Ruiz (45.),
1-2 Jordon Mutch (90.+2).
HULL CITY - WEST HAM 1-0
1-0 Robert Brady, víti (12.).
MAN. UTD - WBA 1-2
0-1 Morgan Amalfitano (54.), 1-1 Wayne Rooney
(57.), 1-2 Saido Berahino (67.).
SOUTHAMPTON - CRYSTAL PALACE 2-0
1-0 Pablo Osvaldo (47.), 2-0 Rickie Lambert
(49.).
SWANSEA - ARSENAL 1-2
0-1 Serge Gnabry (58.), 0-2 Aaron Ramsey (62.),
1-2 Ben Davies (81.)
ENSKA DEILDIN
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson
hefur heldur betur stigið upp eftir
að Tottenham keypti fjölda manna
sem keppa við hann um stöðu í lið-
inu.
Gylfi hefur farið á kostum síð-
ustu vikur og hann skoraði mark
Tottenham um helgina í 1-1 jafn-
tefli gegn Chelsea.
Talsverður hasar var í leiknum
og var áhugavert að fylgjast með
stjórum liðanna í leiknum, en þeir
Andre Villas-Boas, stjóri Spurs,
og Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
eru ekki vinir lengur.
John Terry jafnaði metin fyrir
Chelsea í leiknum en Fernando
Torres, framherji Chelsea, fékk
að líta rauða spjaldið tíu mínútum
fyrir leikslok eftir átök við Jan
Vertonghen.
„Þetta var ekki dómaranum að
kenna heldur Vertonghen. Hann
gerði sér mikinn mat úr þessu
atviki og lét eins og Fernando
hefði keyrt á hann,“ sagði
Mourinho.
„Á þeim tímapunkti vorum við
miklu betri og líklegir til þess
að klára leikinn. Þetta var afar
svekkjandi. Við áttum að vinna
þennan leik.“ - hbg
Gylfi fer á kostum
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í stórleik helgarinnar.
Í STUÐI Gylfi fagnar hér marki sínu um
helgina. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Katrín Ómarsdóttir varð
í gær Englandsmeistari í knatt-
spyrnu með stöllum sínum í Liver-
pool Ladies.
Liverpool skellti Bristol í gær,
2-0, en liðinu dugði jafntefli til
þess að tryggja sér meistara-
titilinn.
Katrín spilaði allan leikinn fyrir
Liverpool og skoraði síðara mark
liðsins og gulltryggði titilinn.
Louise Fors skoraði fyrra markið
úr vítaspyrnu. Liverpool rauf þar
með einokun Arsenal á titlinum,
en liðið hafði unnið deildina allar
götur síðan árið 2000. - hbg
Katrín tryggði titilinn
Liverpool er Englandsmeistari í kvennafl okki.
MEISTARI Katrín og félagar hafa eflaust
fagnað vel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Luis Suarez lék síðast í
ensku úrvalsdeildinni þann 21.
apríl síðastliðinn. Endurkoma hans
í gær var mögnuð og stórleikur
hans kom Liverpool upp í annað
sæti deildarinnar.
„Hann er búinn að leggja
gríðar lega hart að sér og er að
uppskera núna fyrir alla vinn-
una. Mér fannst hann frábær í
dag rétt eins og gegn Man. Utd í
deilda bikarnum,“ sagði Brendan
Rodgers, stjóri Liverpool, kampa-
kátur eftir leikinn í gær.
Hann er heldur betur með heitt
framherjapar því Daniel Sturridge
skoraði líka í leiknum rétt eins og
hann er búinn að gera í allan vetur.
„Varnir deildarinnar eiga eftir
að lenda í miklum vandræðum
með þá tvo. Þeir voru að ná virki-
lega vel saman.“
Man. Utd er alls ekki að fara
nógu vel af stað í deildinni undir
stjórn David Moyes. Liðið er þegar
búið að tapa þrem leikjum í deild-
inni og tapið á heimavelli gegn
WBA um helgina var neyðarlegt.
„Þetta var lélegur leikur hjá
okkur. Við komumst aldrei í gang.
Við vorum mikið með boltann en
sköpuðum ekki neitt,“ sagði Moyes.
„Þeir voru alltaf ógnandi í
skyndisóknum sínum. Það vantaði
neista í okkur og WBA átti þetta
skilið. Ég get ekki neitað því að ég
er áhyggjufullur en það er mikið
eftir og sem betur fer tími til þess
að bæta leik liðsins.“
Man. City komst tvisvar yfir
gegn Aston Villa en tapaði samt
3-2.
„Það er algjörlega ótrúlegt
að við höfum tapað þessum
leik,“ sagði stjóri City, Manuel
Pellegrini.
„Svona getur gerst í boltanum
en þetta er samt mjög pirrandi.
Liðið sem á skilið að vinna vinnur
ekki alltaf í þessari íþrótt.“
henry@frettabladid.is
Mögnuð endurkoma
Luis Suarez spilaði sinn fyrsta leik í ensku deildinni í gær eft ir tíu leikja bann.
Það var eins og hann hefði aldrei farið. Hann skoraði tvö mörk og fór á kostum.
Það er vandræðagangur á Manchester-liðunum, sem töpuðu bæði um helgina.
SJÓÐHEITUR Luis Suarez fagnar öðru marka sinna í gær. Hann minnti hraustlega á sig. NORDICPHOTOS/GETTY