Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 60
30. september 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 20
HÖNNUNAR
SJÓÐUR
AUGLÝST EFTIR
UMSÓKNUM
Hönnunarsjóður auglýsir 40 milljónir kr.
í styrki til verkefna á sviði hönnunar og
arkitektúrs á árinu 2013.
Veittir verða styrkir í fjórum flokkum
Þróun- og rannsóknir
Verkefni
Markaðs- og kynningarmál
Ferðastyrkir
Hlutverk hönnunarsjóðs er að efla
þekk ingu ásamt atvinnu- og verð-
mæta sköpun á sviði hönnunar og arki-
tektúrs með fjárhagslegum stuðningi.
Sjóðurinn styrkir jafnframt kynningar-
og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að
auknum útflutningi íslenskrar hönnunar.
Við mat á umsóknum er litið til gæða og
stöðu hugmyndar eða verkefnis, faglegs
bakgrunns umsækjanda, fjárhags grund-
vallar verkefnis ásamt gildi og mikilvægi
þess til eflingar íslenskrar hönnunar
og arkitektúrs.
Opnað verður fyrir umsóknir 30. september.
Umsóknarfrestur rennur út 11. nóvember 2013.
Úthlutað verður úr sjóðnum um miðjan desember 2013.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er að finna
á sjodur.honnunarmidstod.is og í síma 771 2200.
NÚ MEÐ
AFSLÆTTI
20.000 kr.
KOMINN
AFTUR Í
DORMA
Í tilefni af ritþingi Gerðubergs 12.
október þar sem fjallað verður um
Kristínu Steinsdóttur verður bók-
menntanámskeið í Gerðubergi í
kvöld. Þar mun Maríanna Clara
Lúthersdóttir fjalla um verðlauna-
bók Kristínar, Ljósu, auk þess sem
Kristín lítur við og spjallar við þátt-
takendur.
„Ég ætla að fjalla almennt og
frekar opið um bókina og skoða
hana aðeins í tengslum við aðrar
bækur Kristínar,“ segir Maríanna
Clara. „Svo verða umræður og
síðan ætlar Kristín að koma og við
verðum svo heppnar að fá að spyrja
hana út í bókina. Þetta verður stutt
og laggott, tveir tímar, en vonandi
skemmtilegt. Ég hlakka allavega
mikið til.“ Hvers vegna kallið þið
þetta námskeið, er þetta ekki bara
fyrirlestur? „Ja, ég veit það svo sem
ekki, en það er mjó lína á milli nám-
skeiðs og fyrirlesturs. Flest nám-
skeið í Háskólanum eru til dæmis
í fyrirlestraformi. Ég hugsaði nú
ekkert út í neinar skilgreiningar,
fannst bara freistandi að fá að gera
þetta og sló til, enda Kristín í miklu
uppáhaldi hjá mér.“
Hvað ætlarðu helst að draga
fram? „Ég ætla að skoða bókina út
frá nokkrum sterkum þemum eða
áherslum. Skoða konurnar, þetta er
kvennasaga undir formerkjunum
konan sem manneskja, sem Kristín
skrifar svo listavel. Svo er það geð-
veiki og sköpunarkraftur sem hafa
nú oft verið nátengd. Þetta er líka
söguleg skáldsaga og kallast þar
að auki skemmtilega á við ákveðna
sveitarómantík sem hefur verið að
finna í íslenskum bókmenntum.
Þetta verður ekki mjög fræðilegt
heldur ætla ég að velta upp nokkr-
um mismunandi flötum á bókinni
því hún er í rauninni margbrotin.“
Nauðsynlegt er að skrá sig á nám-
skeiðið annaðhvort með pósti á net-
fang Gerðubergs eða í síma. Það
hefst klukkan 20 og lýkur um klukk-
an 22. - fsb
Skoðar konurnar sem manneskjur
Maríanna Clara Lúthersdóttir heldur námskeið um Ljósu Kristínar Steinsdóttur í Gerðubergi.
TALAR UM LJÓSU Maríanna Clara
segist ekki ætla að vera mjög fræðileg
í fyrirlestri sínum heldur varpa fram
ýmsum spurningum um bókina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þetta byrjaði þannig að hann bað
mig um að gera eitthvað hann Örn
Magnússon frændi minn sem var
með Berjadaga í Ólafsfirði,“ segir
Guðmundur Ólafsson um upphaf
leiksýningarinnar Tenórinn. „Þá
var ég nýbúinn að skrifa þetta verk
og við Sigursveinn Kr. Magnússon,
undirleikari minn, ákváðum að
flytja að minnsta kosti hluta af því.
Fengum síðan Odd Bjarna Þorkels-
son leikstjóra til liðs við okkur og
ákváðum að keyra bara á heila sýn-
ingu. Frumsýndum síðan á Ólafs-
firði í ágúst 2003.“
Síðan hefur Tenórinn gengið
aftur, aftur og aftur, síðast á
sextugs afmæli Guðmundar fyrir
tveimur árum síðan. „Já, ég ákvað
að gefa sjálfum mér það í afmælis-
gjöf að setja sýninguna upp heima
í Ólafsfirði í stað þess að halda
veislu og lét það eftir mér.“
Á föstudaginn birtist Tenórinn
hins vegar aftur á fjölunum í Iðnó,
en rétt er að undirstrika að aðeins
verða fjórar sýningar á verkinu að
þessu sinni.
Guðmundur hefur hlotið mikið
lof fyrir frammistöðu sína í hlut-
verki tenórsins „Besta íslenska
sýningin sem ég hef séð um ára-
bil,“ sagði gagnrýnandi Rásar tvö
og aðrir rýnendur voru á sömu
nótum. Áhorfendur kunnu einnig
vel að meta hann og þegar Guð-
mundur er beðinn að rifja upp
spaugileg atvik frá sýningaferl-
inu er hann snöggur til svars.
„Mér er mjög minnisstætt eitt
atvik þegar við vorum að sýna á
ónefndum stað. Þannig er að í einu
atriðinu er tenórinn að striplast á
nær buxunum og segist svo ætla
að skutla sér í buxurnar. Þá hróp-
aði kona í salnum, sem greinilega
hafði fangið sér í aðra tána: „Ekki
fara í buxurnar, þú ert með svo
fallega fætur.“ Sem var auðvitað
mjög mikið hrós en kannski alveg
rétti staðurinn fyrir það.“
Það er oft talað um að menn eigi
erfiðara með að syngja með árun-
um, finnurðu mun á röddinni frá
því fyrir tíu árum? „Það eiginlega
verður bara að koma í ljós. Ég er
auðvitað tíu árum eldri en ég hef
alltaf verið að syngja og haldið mér
í formi, þannig að ég vona að það
komi ekki til.“ fridrikab@frettabladid.is
Ekki fara í buxurnar!
Guðmundur Ólafsson sýnir verk sitt Tenórinn í Iðnó fj órum sinnum í október.
Tíu ár eru liðin frá frumsýningu þess en Tenórinn er enn í fullu fj öri.
TENÓRINN
Gagnrýnendur
héldu vart vatni
yfir frammistöðu
Guðmundar og
skemmtanagildi
verksins.
MENNING