Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 63
MÁNUDAGUR 30. september 2013 | MENNING | 23
One Direction hefur undirritað
nýjan, risastóran plötusamning
við útgáfufyrirtækin Syco, sem
er í eigu Simons Cowell, og Sony.
Samkvæmt samningnum
skuldbindur breska stráka-
bandið sig til að halda áfram
störfum að minnsta kosti til árs-
ins 2016 og gefa út þrjár nýjar
plötur.
Talið er að félagarnir Niall
Horan, Zayn Malik, Liam Payne,
Harry Styles og Louis Tomlin-
son fái í sinn hlut tíu milljónir
punda fyrir samninginn, eða
um tvo milljarða króna. Næsta
plata One Direction, Midnight
Memories, kemur út í nóvember.
Skrifuðu undir
risasamning
ONE DIRECTION Strákabandið vinsæla
hefur undirritað risasamning.
Simon Cowell og kærasta hans,
Lauren Silverman, eiga von á
dreng. Hinn 53 ára gamli Cowell
var í viðtali hjá Ryan Seacrest
þegar hann staðfesti fréttirnar.
Cowell ætlar að tryggja það að
barnið tali með breskum hreim.
Inntur eftir því hvort hann sé
farin að plana brúðkaup segir
hann: „Ég myndi ekki búast við
því að Silverman verði einstæð
móðir.“ Simon hefur áður talað
um það opinberlega að barn-
eignir heilli hann ekki. Í við-
tali árið 2009 sagði hann: „Það
er ákveðin rútína sem fylgir
börnum. Þú verður að vakna á
ákveðnum tíma og þú verður að
hlusta þegar þig langar bara að
sitja úti í horni að hugsa,“ sagði
hann.
Barnið er væntanlegt í heim-
inn í byrjun næsta árs.
Á von á dreng
Á VON Á SYNI Simon Cowell og
kærasta hans Lauren Silverman eiga
von á dreng. NORDICPHOTOS/GETTY
Tökum bleikan bíl!
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir
taka fagnandi á móti þér.
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Styrkjum
starfsemi
Krabbameins-
félagsins
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
BÍÓ ★★★★ ★
Vi är bäst! / Við erum bestar!
Leikstjóri: Lukas Moodysson
Leikarar: Mira Barkhammar, Mira Grosin,
Liv LeMoyne og David Dencik.
RIFF-HÁTÍÐIN
Við erum bestar! gerist í Stokkhólmi
árið 1982 og segir frá vinkonunum
Bobo og Klöru. Þær eru pönkarar
og stofna dag einn pönkhljómsveit.
Hvorug þeirra hefur þó spilað á
hljóðfæri áður og því fá þær gítar-
snillinginn Heiðveigu til að ganga
til liðs við sveitina. Myndin fjallar
um vináttu stúlknanna, sem takast
á við allt það sem þrettán ára ung-
lingar glíma við; vonlausa foreldra,
leiðinleg systkini og fyrstu ástina.
Við erum bestar! er dásamleg „feel
good“-kvikmynd og bera hinar ungu
leikkonur hana á öxlum sér – þó að
fullorðna fólkið eigi einnig frábær-
an leik. Persónusköpunin er einstök
og myndataka Moodyssons gerir
það að verkum að áhorfandanum
finnst hann vera fluga á vegg, sem
gerir myndina enn betri. Sara McMahon
NIÐURSTAÐA: Frábær „feel good“-
mynd frá hinum hæfileikaríka Moodys-
son. Þó að söguþráðurinn sé hversdags-
legur leiðist áhorfandanum ekki í eina
mínútu.
Frábær „feel-goodari“
EINSTAKAR Ungu leikkonurnar
sýna stórleik í nýjustu mynd Lukasar
Moodys son.
Reykjavík
International
Film
Festival 26. SEPT. - 6. OKT. 2013 BÍÓ ★★★ ★★
Coldwater
Leikstjóri: Vincent Grashaw
Leikarar: P.J. Boudousqué, James C.
Burns, Chris Petrovski og Nicholas
Bateman.
RIFF-HÁTÍÐIN
Unglingspiltur er sendur á
betrunarheimili sem rekið er
af fyrrverandi herforingja í
bandaríska hernum.
Piltarnir sem þar dvelja eru
beittir miklu harðræði og þurfa
að taka á honum stóra sínum
ætli þeir að komast heilir heim.
Inn í söguna fléttast baksaga
söguhetjunnar.
Coldwater er fyrsta kvik-
mynd leikstjórans í fullri lengd
og tekst honum þokkalega til.
Myndina má flokka sem dramat-
íska spennumynd og er hún ekki
ætluð viðkvæmum. Í fyrstu
virðist hún ætla að fylgja klisj-
um en þegar líður á breytir hún
um stefnu og spennan ágerist.
Sara McMahon
NIÐURSTAÐA: Þokkaleg byrjun hjá
leikstjóranum Vincent Grashaw.
Sagan er spennuþrungin en ekki ný
af nálinni.
Gömul saga en spennandi