Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 46
Meistaramánuður MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 201312
MEISTARAÁSKORANIR
RÁÐ TIL AÐ HÆTTA
Fjórtán prósent Íslendinga
reykja daglega samkvæmt nýlegri
könnun Landlæknisembættisins.
Teitur Guðmundsson læknir segir
nákvæmlega ekkert jákvætt við
það að reykja og finnst upp-
lagt að reykingamenn noti
meistaramánuð og önnur álíka
tilefni til að hætta. „Ef horft er
til sjúkdóma eru reykingar einn
mesti skaðvaldur sem til er en auk
þess hafa þær í för með sér ýmis
önnur vandamál eins og vonda
líkamslykt og andfýlu.“
En hvernig á að bera sig að við
að hætta?
„Fyrst þarf að taka ákvörðun
um að hætta. Sama hvernig fólk
fer að þurfa allir að taka þessa
ákvörðun og standa við hana. Oft
verður eitthvað til þess að fólk
ákveður allt í einu að nú sé komið
nóg. Má þar nefna ef viðkomandi
finnur fyrir einkennum sem hann
rekur til reykinga eða ef einhver
nákominn veikist af völdum
reykinga,“ segir Teitur.
Þegar ákvörðun hefur verið tekin
þarf að ákveða tíma eða tímabil
til að hætta. „Best er að fjarlægja
allt sem minnir á reykingarnar úr
umhverfinu. Eins er gott að gera
aðstandendum og vinnufélögum
viðvart og biðja þá um að styðja
sig.“
Reykingar eru að sögn Teits að
stórum hluta vani og þarf að
skapa nýjar venjur. „Hreyfing
gerir mikið gagn og eins gagnast
mörgum að fá sér sítrusávexti,
vatn eða tyggjó þegar reykinga-
þörfin gerir vart við sig. Þá þarf að
gera ráðstafanir þegar kemur að
aukaáreiti eins og skemmtunum
og getur til að mynda verið ráð
að draga úr áfengisdrykkju enda
getur hún ýtt undir reykingaþörf.“
Mörgum hefur gagnast að nota
lyf til að hætta að reykja. „Þetta
eru annars vegar nikótínlyf eins
og tyggjó, sprey og plástrar sem
eru notuð þegar nikótínþörfin
kemur upp og hins vegar lyf sem
draga úr nikótínþörfinni. Zyban
er gamalt geðlyf sem hefur verið
notað í þessum tilgangi en það
hefur þá aukaverkun að nikótín-
þörfin minnkar og fólk verður
afhuga reykingum. Nýrra lyf er
Chanpix. Það blokkerar nikótín-
viðtakana í heilanum en sá sem
reykir býr til meira af nikótínvið-
tökum sem aftur leysa úr læðingi
dópamín sem veldur hluta af
þeirri vellíðan sem reykingamenn
sækjast eftir. Lyfið sest á nikótín-
viðtakana sem gerir það að
verkum að nikótínið kemst ekki
að. Það framkallar engu að síður
dópamín og menn finna því síður
fyrir fráhvarfseinkennum.
Teitur segir að hættan á að falla
sé mest fyrstu sex mánuðina.
„Haldi fólk það út eru ágætar líkur
á að því takist alfarið að hætta.“
TEITUR GUÐMUNDSSON
LÆKNIR
1. Vertu jákvæð(ur) og snúðu öllu
neikvæðu í kringum þig þér í vil.
2. Finndu þér hreyfingu við hæfi.
Það er alveg ókeypis að fara
út að hlaupa og kostar lítið að
synda í sundlaugunum sem
Ísland hefur upp á að bjóða. Svo
eru margar líkamsræktarstöðvar
með byrjendanámskeið.
3. Taktu til í mataræðinu. Prófaðu
að taka til dæmis allar sykraðar
vörur út. Skoðaðu innihalds-
lýsingarnar, sykur leynist mun
víðar en þig grunar!
4. Berðu virðingu fyrir náunganum.
Ef þú hefur ekkert gott um hann
að segja, slepptu þá að segja
eitthvað um hann.
5. Hugsaðu vel og vandlega hvar
þú sérð þig eftir fimm ár. Sæktu
um draumastarfið í Meistara-
mánuðinum!
6. Reyndu að eyða meiri tíma með
fjölskyldunni. Heimsæktu ömmu
gömlu og bjóddu börnunum í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
7. Finndu þér góða bók og
lestu nokkrar blaðsíður á dag.
Þú gætir til dæmis byrjað á
ævisögu einhvers sem þú lítur
upp til.
8. Samkvæmt Gandhi er besta
leiðin til breytingar að byrja á
sjálfum sér. Ekki ljúga að sjálfum
þér né öðrum í heilan mánuð.
9. Skrifaðu aðgerðalista fyrir hvern
dag. Það hjálpar þér að skipu-
leggja þig og koma hlutunum í
verk.
10. Hringdu í gamlan vin og
bókaðu hann í hádegismat í
mánuðinum.
MINNKAÐU SÍGARETTUNOTKUN SMÁM SAMAN
OG VERTU REYKLAUS MEÐ NICOTINELL
Hættu þegar þú notar einungis 1-2 stk. á dag.
Ekki er mælt með notkun lengur en 1 ár.
Dæmi um minnkun reykinga með Nicotinell 2 mg
lyfjatyggigúmmíi - valkostur á leið til reykleysis
Haltu áfram með því að
draga smám saman úr fjölda
lyfjatyggigúmmís á dag.
1 ÁR
Byrja:
20 síg./dag
NÚ ERTU
REYKLAUS!
Minnkaðu
notkun smám
saman og
skiptu hverri
sígarettu út
fyrir 1 stk. af
lyfjatyggi-
gúmmíi
6 MÁN.
4 MÁN.
3 MÁN.
2 MÁN.
1 MÁN.
NÚNA