Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 6
30. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
HEILBRIGÐISMÁL Í fyrra deildu
rúmlega 15 prósent íbúa hjúkr-
unarheimila herbergi með öðrum
eða 354 einstaklingar. Í viðmið-
um félags- og tryggingamála-
ráðuneytisins um skipulag hjúkr-
unarheimila frá 2008 segir að öll
hjúkrunarrými skuli vera ein-
býli. Ekki liggur
fyrir hvert hlut-
fall einbýla var
það ár en árið
2006 bjuggu 39
prósent íbúanna
í herbergi með
öðrum.
„Samkvæmt
könnun sem gerð
var í lok árs 2006
bjó þá um 61 prósent fólks á hjúkr-
unarheimilum í einbýli. Þetta var
einnig kannað árið 2011 og þá var
niðurstaðan sú að um 67 prósent
íbúa byggju í einbýlum,“ segir
Margrét Erlendsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi velferðarráðuneytis-
ins.
Margrét segir að í fyrra hafi
ráðuneytið leitað svara hjá 42
hjúkrunarheimilum á daggjöldum
með 1.372 hjúkrunarrými samtals.
„Miðað við svör sem bárust voru
tæplega 85 prósent íbúa hjúkrun-
arheimilanna í einbýli. Hjúkrunar-
rými á landinu öllu árið 2012 voru
samtals 2.366 á þessum tíma. Ef
við gefum okkur að yfirfæra megi
hlutfallið á öll hjúkrunarrými
svarar þetta því að á þessum tíma
hafi um 2.012 aldraðir búið í ein-
býli en 354 í herbergi með öðrum,“
segir Margrét.
Aðspurð segir Margrét að ekki
hafi verið kannað hversu lengi
íbúar dvelja að jafnaði með öðrum
í herbergi á dvalar- og hjúkrunar-
heimilum.
Margrét getur þess að öll ný
heimili sem byggð hafi verið á
liðnum árum séu einungis með
einbýlum. Á þessu ári hafi verið
tekin í notkun ný hjúkrunar-
heimili í Garðabæ og Mosfellsbæ
með samtals 90 rýmum sem öll eru
einbýli. „Fleiri nýbyggingar eru í
undirbúningi og stöðugt er unnið
að endurbótum á eldri heimilum
til að fjölga einbýlum,“ segir hún.
Í svari velferðarráðherra á
Alþingi í fyrra við fyrirspurn
um áætlanir um uppbyggingu
hjúkrunarrýma kom meðal ann-
ars fram að áætluð væri í sam-
starfi við sveitarfélögin umfangs-
mikil uppbygging ríflega 200
hjúkrunarrýma á höfuðborgar-
svæðinu þar sem brýnast væri að
fjölga rýmum. Ekki væri komin
tímasetning á þá framkvæmd. Í
svarinu kom jafnframt fram að
213 manns væru á biðlista eftir
hjúkrunarrými á öllu landinu.
Nú eru 279 á biðlista eftir
hjúkrunar rými á landinu, sam-
kvæmt upplýsingum frá embætti
landlæknis.
ibs@frettabladid.is
Meira en 300 aldraðir
í herbergi með öðrum
Samkvæmt könnun velferðarráðuneytisins hjá hjúkrunarheimilum í fyrra bjuggu
tæplega 85 prósent íbúanna í einbýli. Árið 2006 var hlutfallið 61 prósent. Eingöngu
einbýli á nýbyggðum heimilum. 279 eru nú á biðlista eftir hjúkrunarrými.
Á HJÚKRUNARHEIMILI Nú bíða 279 á öllu landinu eftir hjúkrunarrými.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MARGRÉT
ERLENDSDÓTTIR
1. Hvaða starfi gegnir Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir hjá Samtökum
atvinnulífsins?
2. Hvaða íslenska fyrirtæki gerði 500
milljarða samning í Eþíópíu?
3. Hvaða fyrrverandi bæjarstjóri er nú
tvíefl dur eftir hjartaaðgerð?
1. Hún er forstöðumaður mennta og
nýsköpunar.
2. Reykjavik Geothermal.
3. Gunnar I. Birgisson í Kópavogi.
UPPLÝSINGAMÁL Arion banki sendi erindi til
allra sveitarfélaga nú í sumar þar sem bank-
inn er með útibú, þar sem farið verður fram
á að uppdrættir að húsnæði útibúanna yrðu
ekki afhent þriðju aðilum yrði þess óskað.
Í erindi til skipulags- og byggingar-
nefndar Fljótsdalshéraðs kom fram að bank-
inn lýsti yfir áhyggjum af því að aðgengi og
afhending samþykktra uppdrátta af hús-
næði bankans á Egilsstöðum væri ekki tak-
markað.
„Af uppdrætti af útbúi bankans má meðal
annars sjá hvar rafmagnstafla útibúsins
er staðsett sem og nákvæma staðsetningu
hvelfingar útibúsins,“ segir í erindum sem
skipulagsnefnd Fljótdalshéraðs samþykkti.
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsinga-
fulltrúi Arion banka, segir að rétt hafi þótt
að fara fram á þetta með vísan til öryggis-
sjónarmiða. Í yfirferð bankans um öryggis-
mál hafi þetta komið upp en ekki væri um að
ræða sérstök vandamál vegna þessa.
Haraldur segir að þau svör sem bankan-
um hefðu borist frá sveitarfélögunum væru
jákvæð og farið yrði að kröfum bankans.
- hrs
Arion banki fer yfir öryggismál útibúa sinna og sendir sveitarfélögum erindi:
Uppdrættir að bönkum séu trúnaðarmál
ARION BANKI Hefur farið fram á að þriðju aðilar fái ekki
afhentan uppdrátt af húsnæði útibúa bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEISTU SVARIÐ?
HEIMURINN
1
2
3
4
Vilja frið um Kasmír
1KASMÍR Forsætisráðherrar Indlands og Pakistans eru sam-
mála um að draga þurfi úr ofbeldi í
Kasmír-héraði til þess að hægt verði
að þoka áfram friðarviðræðum. Þeir
Manmohan Singh og Nawaz Sharif
hittust í New York í gær, þar sem þeir
sitja báðir allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna, og ræddust við í meira en
klukkustund. Deilur landanna um
yfirráð í Kasmír-héraði hafa staðið
yfir áratugum saman og kostað
fjölda mannslífa.
Eldur í ferju á Thames
2BRETLAND Þrjátíu ferðamönnum var bjargað í London í dag þegar
kviknaði í ferju á ánni Thames þegar
hún var stödd nærri breska þinghús-
inu. Margir sáu þann leik vænstan
að stökkva frá borði þegar eldurinn
kom upp en björgunarlið var fljótt á
vettvang auk þess sem fleiri ferða-
mannabátar komu til aðstoðar. Þrír
voru fluttir á spítala með smávægileg
meiðsli en aðra sakaði ekki.
Vörur út í geiminn
3BANDARÍKIN Ný geimsendingar-þjónusta bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar NASA afhenti
fyrstu vörurnar í gær í alþjóðlegu
geimstöðinni. Vörurnar voru fluttar
með mannlausu geimskipi, Cygnus,
sem lagði upp að alþjóðlegu rann-
sóknastöðinni færandi geimförunum,
sem þar þeytast hring eftir hring í
kringum jörðina, hálft tonn af mat-
vælum, fatnaði og öðrum nauðsynja-
vörum. Starfsfólk NASA fagnaði ákaft
þessum áfanga.
Viðvörun ári fyrr
4KENÍA Ráðherrar í Kenía og yfir-menn í keníska hernum fengu
fyrir ári viðvaranir frá leyniþjónustu
landsins um að hætta væri á árás af
svipuðu tagi og gerð var á Westgate-
verslunarmiðstöðina í Naíróbí
fyrir rúmri viku. Þessar viðvaranir
var að finna í stöðuskýrslum, sem
leyniþjónustan skrifar reglulega og
lætur ráðamönnum í té. CNN skýrir
frá þessu.
CYGNUS TENGIST GEIMSTÖÐINNI