Fréttablaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 8
30. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
PI
PA
R\
TB
W
A
SÍ
A
Skráning fer fram á
www.promennt.is
og þar má einnig finna
allar nánari upplýsingar.
STYRKTU
STÖÐU ÞÍNA
www.promennt.is
Skeifunni 11B 108 Reykjavík Sími 519 7550 promennt@promennt.is
SKRÁÐU ÞIG NÚNA!
BÓKHALD - GRUNNUR
Hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir starfandi skrifstofu- og
verslunarfólk eða þá sem hafa hug á að starfa á þeim vettvangi.
Uppbygging námsins miðast við nemendur með grunnþekkingu
í tölvum og Excel forritinu. Námið hentar einnig einstaklingum
með sjálfstæðan atvinnurekstur og þeim sem eru að hefja
rekstur og vilja vera sem mest sjálfbjarga við bókhaldið.
Morgunhópur hefst 9. október 8. október
Lengd: 110 std. 119.000 kr.
POWERPIVOT
PowerPivot er ókeypis viðbót (add in) í Excel 2010 (innbyggt í
Excel 2013) notað til gagnagreininga og getur tengt saman
gögn úr mörgum og mismunandi tölflum og gagnaupp-
sprettum og unnið hraðar og með mun stærri gagnasett en í
venjulegum Pivot töflum. Í PowerPivot er hægt að útfæra eigin
greiningar, skýrslur og spár með lítilli fyrirhöfn. Þátttakendur
þurfa að vera vanir Excel notendur og þekkja til Pivot taflna.
Morgunhópur hefst 7. október
Lengd: 12 std. 34.000 kr.
EXCEL - GRUNNUR
Tekin eru fyrir helstu grundvallaratriði við notkun Excel við alls
konar útreikninga og úrvinnslu talna ásamt allri útlitsmótun
skjala. Námskeiðið er aðallega ætlað byrjendum en þeir sem
fyrst og fremst hafa notað Excel til uppsetningar á töflum og til
einfaldra útreikninga munu einnig bæta verulega við þekkingu
sína á þessu námskeiði.
Morgun- og kvöldhópar hefjast í dag 30. september
Lengd: 21 std. 34.000 kr.
UMFERÐARMÁL Könnun sem gerð
var meðal 193 fyrirtækja við
gömlu höfnina í Reykjavík sýnir
að margvíslegar brotalamir eru á
umferðarmálum á svæðinu.
Í könnuninni, sem Bergþóra
Bergsdóttir verkfræðinemi
gerði fyrir Faxaflóahafnir, voru
meðal annars lagðar spurningar
fyrir forsvarsmenn og talsmenn
fyrirtækja um viðhorf þeirra til
umferðarmála við höfnina. Sumir
segja lítið við umferðina að
athuga en aðrir nefna bílastæða-
vanda og flöskuhálsa. Áberandi
er hversu olíuflutningar um
svæðið vestan af Örfirisey eru
mönnum mikill þyrnir í augum.
Haft er eftir einum að umferð-
in sé hræðileg, sérstaklega olíu-
bílarnir sem séu stórhættulegir.
„Keyra eins og fávitar á allt of
miklum hraða bæði á Fiskislóð og
Hólmaslóð,“ segir hann.
Annar segir það mundu verða
stórt framfaraspor ef olíustöðin
færi annað. „Það þarf að koma
bensín- og olíubílunum héðan í
burtu,“ svarar hann.
Sá þriðji tekur undir og segir
olíubílunum ekið of hratt. „Væri
gott að losna við olíubílana,“
segir sá fjórði. „En það eitt út af
fyrir sig er ekki nóg. Það þarf að
hægja á umferðinni.“
Fimmti talsmaðurinn segir
„rosalega“ umferð á Granda-
garði. Verst sé með olíubílana
sem komi á fullri ferð. „Það eru
engar hindranir á Grandagarði.
Það voru settar hindranir á Fiski-
slóð og þá hættu þeir að keyra
þar um. Merkilegt að það skuli
ekki hafa orðið slys.“
Enn einn kveður umferðar-
málin vera í „algjörum ólestri“.
Olíubílarnir keyri of hratt og
Geirsgatan sé alltof þröng. „Olíu-
flutningarnir eru ekki góðir.
Maður finnur öðru hvoru fyrir
mikilli mengun og olíustybbu frá
starfseminni,“ er svarið frá enn
öðrum.
Þá segir einn að allt sé í lagi
með höfnina sjálfa en of mikil og
of hröð keyrsla sé á Grandagarði,
til dæmis á olíubílunum. „Þetta
er svolítið mikið og hættulegt,“
segir þessi talsmaður. „Hér er
mikið af þungum bílum sem
keyra svo hratt að maður hefur
áhyggjur af gangandi vegfarend-
um,“ er eitt svarið.
„Það er absúrd að vera með
olíutanka hér og keyra um með
eldsneytið,“ eru ein ummælin
sem keimlík eru svari frá öðru
fyrirtæki. „Umferð olíubílanna
í gegnum miðborgina er alveg
fáránleg.“
Það eru þó alls ekki allir sem
amast við olíuflutningunum.
„Varðandi olíubílana, þá þarf
ekki alltaf að vera kvarta. Við
þurfum öll bensín á bílana okkar
og bensínstöðvarnar líka. Þetta
hefur gengið vel og því er engin
ástæða til að mála skrattann á
vegginn.“
gar@frettabladid.is
Fyrirtæki við höfnina
vilja olíubílana burt
Talsmenn fyrirtækja við gömlu höfnina í Reykjavík kvarta undan olíuflutningum
frá birgðastöð í Örfirisey. Slík umferð sé fáránleg og hættuleg. Merkilegt sé að
ekki hafi enn orðið slys. Þetta kemur fram í nýrri könnun fyrir Faxaflóahafnir.
Umferð olíubílanna í
gegnum miðborgina er
alveg fáránleg.
Forsvarsmaður fyrirtækis
í könnun Faxaflóahafna
ÞUNGAFLUTN-
INGAR VIÐ
GÖMLU HÖFN-
INA Olíubíll og
vöruflutningabíll
aka frá Mýrar-
götu inn Geirs-
götu og í átt að
miðbænum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
RANNSÓKNIR Rektor Háskólans á Bif-
röst, Vilhjálmur Egilsson, sem hætti
störfum sem framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins (SA) fyrr á árinu,
og Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, undirrituðu samn-
ing um stofnun Rannsóknarstofnun
atvinnulífsins-Bifröst.
Á vegum stofnunarinnar verður
unnið að rannsóknarverkefnum í þágu
atvinnulífsins. SA hafa ákveðið að
leggja stofnuninni lið næstu tvö árin
og skapa þannig grunn fyrir aukið
rannsóknarstarf í þágu atvinnulífsins.
Rannsóknastofnun atvinnulífsins mun
starfa sem sjálfstæð stofnun innan
Háskólans á Bifröst. - hrs
Háskólinn á Bifröst og Samtök atvinnulífsins í samstarf:
Setja á fót rannsóknarstofnun
VILHJÁLMUR EGILSSON
Rektor Háskólans á Bifröst var
áður framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN