Fréttablaðið - 18.01.2014, Síða 2

Fréttablaðið - 18.01.2014, Síða 2
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 Elmar Hallgríms Hallgríms- son, lektor í viðskiptafræði kennir háskólanemum að afl a fj ár fyrir góðgerðastarfsemi eft ir hugmyndafræði sjón- varpsþáttanna Apprentice. Ágóðinn rennur til Barnaspítala Hringsins. Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi í upp- sveitum Árnessýslu, biðlaði til sveitarstjórnarmanna Blá- skógarbyggðar að tryggja öryggi ferðamanna í hálku. Aron Kristjánsson, lands- liðsþjálfari íslenska karla- landsliðsins í handbolta, var svekktur eft ir tap Íslands fyrir Spáni. Hann segir þó sína menn ekki hætta. Urður Hákonardóttir tónlistarkona býr til tónlist í danssýningunni Óraunveruleikjum. Urður segir þetta í fyrsta sinn sem frumsamin tónlist eft ir hana er fl utt opinberlega. SJÁVARÚTVEGUR Samningafundi um makríl milli Íslands, Færeyja, Evrópusambandsins og Noregs var frestað fram til næsta miðvikudags í gær. Samningaviðræður um skiptingu aflahlutar milli strandríkja á makríl hafa staðið síðan 2008. Í kjölfar ráðgjafar Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins í haust, sem gaf til kynna betra ástand makrílstofns- ins en áður var talið, boðaði Ísland til samningafundar í september síðastliðnum. Telur ráðuneytið að bætt ástand stofnsins gefi tækifæri á að þoka viðræðum í samkomulagsátt Á þeim grunnni hafi viðræður farið fram frá því í haust. Litið er á fundinn sem úrslitatilraun til þess að finna lendingu í deilunni áður en ríkin fara að gefa út kvóta vegna veiða á þessu ári. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra kveðst síður bjartsýnn nú en í haust. Engu að síður sé mikilvægt að reyna til þrautar að ná samkomulagi. Ráðuneytið segir afstöðu Íslands byggjast á að ná verði samkomulagi á vísindalegum grunni, bæði um hæfilegar veiðar úr stofninum og sanngjarna skiptingu aflahlutar, en á undanförnum árum hefur makríll leitað í síauknum mæli í íslenska lögsögu eftir fæði. - fbj Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra er svartsýnni nú en áður: Fundi í makríldeilunni frestað ÍSLANDSMÓTIÐ Í KARAÓKÍ 20 Íslandsmót í karaókí fer fram á skemmtistaðnum Hendrix um helgina. Böðvar Reynisson, einn eigenda staðarins, ætlar að lífga upp á karaókímenningu Íslands. GEGGJAÐ AÐ NOSTRA VIÐ EXCEL 34 Grínistinn Jóhann Alfreð á sér praktíska hlið og fi nnst geggjað að nostra við excel- skjöl. Hann segir að upphafshljóðið í Windows 95 sé það fallegasta sem hann hafi heyrt. Hann er einnig skotinn í Hollywood-leikkonum sem heita Jennifer. HVERJIR VORU AVARAR? 36 Illugi Jökulsson rekur hausinn inn í rykfallinn sal í þeim kastala sem mannkynssagan er og reynir að kynnast hinni dularfullu þjóð Avara. EINN FÓR YFIR Á RAUÐU 40 Jakobína Þráinsdóttir fylgir börnunum sem eru á leið í Langholtsskóla yfi r fj ölfarin gatnamót Langholtsvegar og Holtavegar á hverjum virkum morgni. LÍTILSVIRÐING 16 Þorsteinn Pálsson um Evrópuumræðuna. STOLTUR AÐ LATIBÆR SÉ ÍSLENSKT HUGVIT 18 Magnús Scheving um niðurskurð á framlögum til kvikmynda- gerðar. EITT BARN ER EINU BARNI OF MIKIЖ FÁTÆK BÖRN 18 Þóra Jónsdóttir um þörf á viðhorfsbreytingum. ➜ Ragnheiður Elín Árnadóttir innanríkisráðherra kallar forsvarsfólk úr atvinnulífi nu á fund til að ræða kosti og galla laga um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Hún útilokar þó breytingar á lögunum á vorþingi. SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON ÚRSLITATILRAUN Ríkin gefa út kvóta vegna veiða á makríl á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR ER MANNLÍF SLYSAGILDRA? 50 Slysagildran, nýtt leikrit eft ir Steinunni Sigurðardóttur, fj allar um heitt mál í sam- tímanum á sérstakan hátt. LÍTIÐ FRAMBOÐ AF LÍKAMS- RÆKT Í 101 64 Fréttablaðið tók saman kort yfi r þá hreyfi ngu sem boðið er upp á í póstnúmerinu 101 í Reykjavík. JAFNRÉTTISMÁL Samkvæmt nýrri úttekt Creditinfo sem unnin var fyrir Samtök atvinnulífsins upp- fyllir rétt rúmlega helmingur fyrir tækja með fleiri starfsmenn en 50 á ársgrundvelli skilyrði laga um kynjahlutföll í stjórnum fyrir- tækja. Lögin kveða á um að hvort kyn skuli eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórn er skipuð þremur mönnum og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum, þá skuli tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Ákvæði um kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja voru færð í hluta- og einkahlutafélaga- lög árið 2010 og fengu fyrirtæki þriggja ára aðlögunartíma áður en ákvæðin tóku gildi, 1. septem- ber 2013. Konur voru um 31 prósent stjórnarmanna í íslenskum fyrir- tækjum með fleiri en 50 heilsárs- starfsmenn í árslok 2013 en hlut- fall karla var 69 prósent. Lögin ná til 287 íslenskra fyrir- tækja, en af þeim uppfylla einung- is 152 fyrirtæki skilyrði laganna. Í úttektinni kemur fram að ætli íslensk fyrirtæki sér að ná að upp- fylla skilyrði laganna þurfi þau að kjósa inn 100 konur á kostnað karla sem eru fyrir í stjórnum. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir ljóst að miðað hafi talsvert í rétta átt og að hlutfall hafi hækkað þó nokkuð á stuttum tíma. Enn vanti þó nokkuð uppá til að hinu lögbundna 40 prósenta markmiði verði náð. „Við fórum í þessa athugun af tveimur ástæðum. Annars vegar með hliðsjón af samningi okkar við viðskiptaráð og Félag kvenna í atvinnurekstri frá árinu 2009 sem fól í sér markmið um að hlutfall hvors kyns yrði ekki undir 40 pró- sentum í lok árs 2013. Hins vegar vildum við vekja athygli á þessu í aðdraganda aðalfunda fyrirtækja sem eru framundan. Við bindum vonir við að ná settum markmið- um á þessu ári,“ segir Þorsteinn. Sambærilegt ákvæði hefur verið sett í lög um lífeyrissjóði og segir Þorsteinn sjóðina hafa náð til- settum markmiðum. „Það hefur náðst gott jafnvægi í lífeyrissjóðunum og er hlutfallið 47 prósent þar. Hér hjá SA eru konur til dæmis meirihluti okkar fulltrúa í þeim stjórnum, 56 pró- sent,“ segir Þorsteinn. elimar@frettabladid.is Þriggja ára aðlögun dugði ekki félögum Rétt rúmlega helmingur hlutafélaga þar sem fleiri en 50 starfsmenn starfa á árs- grundvelli uppfyllir lagaskilyrði um kynjahlutfall í stjórnum hlutafélaga. Fram- kvæmdastjóri SA segir árangur hafa náðst en þó sé nokkuð í land. VILL EKKI SIÐFERÐISMAT 4 „Þessar hugmyndir verða ekki teknar upp á minni vakt. Þær eru gjörsamlega ónothæfar,“ segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sem hafnar öllum hugmyndum um að skóla- stjórum verði falið að leggja siðferðismat á nemendur. KANNAST EKKI VIÐ UPPSAGNIR 6 Formaður Barnavistunar, félags dagforeldra, segist ekki kannast við að félags- menn segi upp eldri börnum til að koma yngri að. Borgarfulltrúi segir leitt að dagforeldrar sjái sig knúna til að segja börnum upp. SAMFÉLAGIÐ BRÁST 8 Réttindagæslumaður þroskahamlaðrar konu sem misnotuð var kynferðislega á Snæfellsnesi segir samfélagið hafa brugðist henni. EKKERT VAFASAMT 10 Frosti Sigurjónsson, alþingismaður Framsóknarflokks, þvertekur fyrir að nokkuð vafasamt sé við tilurð frískuldamarks vegna bankaskatts. VERÐA AFTUR VINIR EFTIR LEIK 60 Gömlu landsliðsfélagarnir og vinirnir Aron Kristjánsson og Patrekur Jóhannesson mætast í dag með sitt landsliðið hvor. Báðir eru þeir mjög spenntir fyrir leik dagsins. Við bindum vonir við að ná settum markmiðum á þessu ári. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins KARLAVELDI Enn virðist nokkuð í land til að jafna hlutskipti kynjanna í stjórnum fyrirtækja. FRÉTTIR 2➜12 SKOÐUN 16➜18 HELGIN 20➜42 SPORT 58➜60 MENNING 50➜56 FIMM Í FRÉTTUM KYNJAKVÓTAR OG HANDBOLTI Inniheldurplöntustanólester sem lækkar kólesteról MEÐ 2 fylgja fríttmeð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.