Fréttablaðið - 18.01.2014, Side 8
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
UTANRÍKISMÁL
Íslendingar telja
starfsemi utan-
ríkisþjónustunn-
ar nauðsynlega
og telja að aðstoð
við Íslendinga
erlendis, gerð
fríverslunar-
samninga,
Evrópusamstarf,
menningarkynn-
ing og norður-
slóðasamstarf eigi að vera megin-
áherslur í starfi hennar.
Þetta er á meðal niðurstaðna
könnunar sem utanríkisráðuneytið
hefur látið gera um viðhorf og
þekkingu á starfsemi þess.
Rétt um 70 prósent telja utanrík-
isþjónustuna nauðsynlega og um
37 prósent treysta henni vel til að
gæta hagsmuna Íslendinga erlend-
is. Hún þykir hins vegar ekkert
sérlega opin og gagnsæ, aðeins um
8 prósent, eða nútímaleg, 12%. - fbj
Viðhorf almennings kannað:
Utanríkisþjón-
ustan nauðsyn
LOKSINS
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
0
8
2
2
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
GE bílar / Reykjanesbæ / 420 0400 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar
/ Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – IB ehf. / Selfossi / 480 8080
SIG AÐ TAKA
BÍLALÁN
Nýi Nissan Note – Verð: 2.890.000 kr.
Bensín, beinskiptur / 4,7 l/100 km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 1.734.000 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 1.156.000 kr. til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 32.111 kr. á mán.
Renault Megane Sport Tourer – Verð 3.890.000 kr.
Dísil, sjálfskiptur / 4,2 l/100km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 2.334.000 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 1.556.000 kr. til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 43.222 kr. á mán.
Renault Kangoo II – Verð: 2.541.000 kr. án V SK.
Dísil, beinskiptur / 4,3 l/100 km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 1.524.600 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 1.016.400 kr. án VSK til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 28.233 kr. án VSK á mán.
HAFÐU SAMBAND VIÐ SÖLUMENN Í SÍMA 525 8000 EÐA SENDU
OKKUR FYRIRSPURN Á bl@bl.is. NÁNARI UPPLÝSINGAR UM
NÚLLVEXTI BL ER AÐ FINNA Á www.bl.is
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
/
N
úl
lv
ex
tir
B
L
gi
ld
a
ek
ki
m
eð
ö
ðr
um
ti
lb
oð
um
.
Með nýju núllvaxtaláni BL getur þú fengið allt að 40% af verði bílsins að
lá in vaxtalaust it l la lt að 36 mán ða a. E ngir vex it r, engin verðtrygging, enginn
þinglýsingarkostnaður og e kkert smátt letur. S em s agt, e ngin ó vissa og þ að
sem meira er – þú ekur um á nýjum bíl í fullri ábyrgð. Farðu á bl.is og kynntu
þér frábæran möguleika til að kaupa nýjan bíl.
NÚLLVEXTIR BL – loksins bílalán sem gæti borgað sig að taka.
DALVÍK
Mældu of lítið heitt vatn
Notendur Hitaveitu Dalvíkur hafa
sumir óskað skýringa á hærri reikn-
ingum í kjölfar mælaskipta. Á fundi
byggðaráðs kom sú skýring fram að
prófanir á tveimur eldri vatnsmælum
hafi leitt í ljós að þeir mældu minni
notkun en raunin var. Þess utan hafi
verið kaldara en árið á undan og því
meiri notkun.
NAUÐSYNLEG
STARFSEMI 37%
Íslendinga treysta
ekki utanríkisþjón-
ustunni.
LÖGREGLUMÁL „Samfélagið brást
þessari konu,“ segir Jón Þorsteinn
Sigurðsson, réttindagæslumaður
fatlaðs fólks á Vesturlandi og
Vestfjörðum, þar á meðal þroska-
hömluðu konunnar frá Stykkis-
hólmi sem var misnotuð af
tengdasyni sínum.
Stjúpfaðir konunnar og fleiri
menn hafa einnig verið grunaðir
um að hafa beitt hana kynferðis-
legri misnotkun. Fyrr í mán-
uðinum felldi saksóknari mál
konunnar gegn stjúpföðurnum
niður þar sem gögn málsins þóttu
ekki nægjanleg til sakfellingar.
Jón Þorsteinn vill að málið verið
tekið upp aftur fyrir dómstólum.
„Samfélagið gaf konunni ekki
réttmætan stuðning í gegnum
tíðina til þess að koma í veg fyrir
ofbeldi. Mér finnst það einkenna
þetta mál,“ segir hann.
Að mati Jóns
Þorsteins eru
ýmsir þættir
málsins gagn-
rýniverðir. „Til
dæmis að konan
þurfti að keyra
oft inn á Akra-
nes. Þetta eru
langar bílferðir.
Það gefur auga-
leið að það er erfitt að fara í svona
langar ferðir til þess að ræða við
lögreglumenn um þín persónu-
legu málefni. Þetta getur byggt
upp kvíða og spennu hjá fólki,
sérstaklega hjá fólki með fötlun,“
segir hann.
Að sögn Jóns
Þorsteins hefur
m á l ið tek ið
mjög á konuna.
„Að ganga í
gegnum svona
tekur á alla.
Hvað þá ef ein-
hver er fatlaður
og þarf stuðning
til þess að skilja
hvað er í gangi.“
Jón Þorsteinn telur fólk með
þroskahömlun vera berskjaldað
gagnvart kynferðisafbrota-
mönnum. „Þegar fötlun einstak-
lings felst í því að geta ekki áttað
sig á tíma eða staðsetningu, þá
verður frásögnin brothætt. Við
þurfum að tryggja öryggi fatlaðs
fólks og gæta þess að það sé ekki
berskjaldaðra en aðrir gagn-
vart kynferðisafbrotamönnum.
Réttar kerfið þarf að laga máls-
meðferðina að þörfum fatlaðra
og fólks með þroskahömlun og
vísa ég í 13.
grein samnings
Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi
fatlaðs fólks,“
útskýr ir Jón
Þorsteinn.
Undir þessi
orð tekur Sveinn
Þór Elinbergs-
son, forstöðu-
maður Félags- og skólaþjónustu
Snæfellinga. Málsmeðferðin hafi
ef til vill ekki verið sniðin að þörf-
um konunnar og jafnvel ekki sam-
ræmst samningi Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi fatlaðra.
„Okkur finnst þessi sjónarmið
hans eiga upp á pallborðið. Ég
vil ekki alhæfa neitt, eða tjá mig
um einstök efnisatriði málsins.
Við höfum áhyggjur af réttar-
stöðu þroskaskerts fólks í svona
málum,“ segir Sveinn.
Dóttir konunnar, Sigríður Sól-
dal, kom fram í fréttaskýringa-
þættinum Kastljósi á fimmtu-
dagskvöld og gagnrýndi ákvörðun
saksóknara um að fella málið
niður. Sigríður vill ekki tjá sig um
málið við Fréttablaðið.
„Ég held að hugur bæjarbúa
sé með þeim mæðgum og þeirra
skyldfólki,“ segir Gyða Steins-
dóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi.
Málið hafi sannarlega snert
bæjar búa. Það sýni fram á mikil-
vægi réttindagæslumanna. „Það
er augljóslega mikilvægt að ein-
staklingar með þroskaskerðingu
fái stuðning faglegra og óháðra
aðila,“ segir Gyða.
kjartanatli@365.is
Allt samfélagið brást
Réttindagæslumaður þroskahömluðu konunnar á Stykkishólmi sem var misnotuð
vill að mál hennar gegn stjúpföður hennar verði tekið upp aftur fyrir dómstólum.
„Aðildarríkin skulu tryggja fötluðu fólki virkan aðgang að réttarkerfinu til
jafns við aðra, meðal annars með því að laga málsmeðferð alla að þörfum
þess og taka tilhlýðilegt tillit til aldurs viðkomandi, í því skyni að gera því
kleift að gegna hlutverki sínu með virkum hætti sem beinir og óbeinir þátt-
takendur, þar með talið sem vitni, í öllum málarekstri, einnig á rannsóknar-
stigi og öðrum undirbúningsstigum.“
➜ 13. grein samnings Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks
UMFJÖLLUN Í FRÉTTABLAÐINU Mál konunnar á Stykkishólmi hefur verið til
umfjöllunar í Fréttablaðinu.
JÓN ÞORSTEINN
SIGURÐSSON
SVEINN ÞÓR
ELINBERGSSON
GYÐA
STEINSDÓTTIR