Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 20

Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 20
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20 „Mörg verkanna eru ný og spila vel á rýmið eins og verkin hans Ásmundar frá sjötta áratugnum.“ Þetta segir Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, önnur þeirra sem stjórnar sýningunni „Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn“ sem opnuð verður í Ásmundar- safni við Sigtún í dag klukkan 16. Þar er vakin athygli á efnistökum Ásmundar Sveinssonar og sam- hljómi hans við listamenn í dag. Níu manns eiga verk á sýn- ingunni, ásamt Ásmundi, það eru Áslaug Í.K. Friðjónsdóttir, Baldur Geir Bragason, Björk Viggósdóttir, Hrafnhildur Hall- dórsdóttir, Ingunn Fjóla Ingþórs- dóttir, Ragnar Már Nikulásson, Sól- veig Einarsdóttir, Þór Sigurþórsson og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir. Öll eiga það sameiginlegt að leyfa efni, formi og rými að stýra lokaútkomu verka sinna. Ásmundur var frumkvöðull í íslenskri höggmyndalist og hafði víðtæk áhrif. Hann vann í hefð- bundin efni framan af en á síðari hluta sjötta áratugarins fóru reka- viður og brotajárn að verða áber- andi í verkum hans og hann byrjaði líka að huga að rýminu sem umlukti þau. Hann sagði sjálfur: „Ég hef leyft mér að gera non-fígúratífa mynd af rafmagninu, því ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn.“ Á morgun fer fram listamannaspjall um sýninguna. gun@frettabladid. Samspil Ásmundar og listamanna nútímans Á sýningu sem opnuð verður í Ásmundarsafni í dag eru samtímaverk níu listamanna ásamt abstraktverkum Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) frá sjötta áratug síðustu aldar úr óhefðbundnum efniviði. EITT VERKANNA Á SÝNINGUNNI What the world needs now frá 2010 eftir Sólveigu Einarsdóttur. „Það verður öllu tjaldað til og ég reikna ég með að flestar, ef ekki allar helstu karaók- ístjörnur landsins mæti,“ segir Böðvar Reynisson, einn eig- enda skemmtistaðarins Hendrix sem stendur fyrir Íslandsmóti í karaókí í kvöld. Á staðnum er kominn einn flottasti karaókí- búnaður sem sést hefur á land- inu og syngur þátttakandinn í gegnum sama hljóðkerfi og stærstu sveitir og dj-ar landsins sem skemmta á staðnum nota. Þá verður ekkert til sparað í ljósa- dýrð svo söngvarinn verður svo sannarlega í sviðsljósinu. „Ég hef talað við nokkrar af skærustu stjörnum karaókí- bransans á Íslandi en hann er nokkuð stór á heimsvísu,“ segir Böðvar sem gerir ráð fyrir mikilli og skemmtilegri keppni í kvöld. Eins og flestir vita þá koma oft í ljós leyndir hæfileikar þegar í karaókí er komið og er Böðvar sannfærður um að fjöldi hæfileikaríkra einstaklinga komi fram á sjónarsviðið í kvöld. Karaókí hefur lítið verið stundað á staðnum hingað til en gert er ráð fyrir breytingu í þeim efnum með tilkomu nýju karaókígræjanna. „Þetta á eftir að stækka í framtíðinni, það er alltaf erfitt að byrja svona og það tekur tíma að víkka flóruna. Það er svo mikið af hæfileikaríkum karaókísöngvurum þarna úti.“ Yfir 12.000 lög eru í boði sem stendur og bætist stöðugt á laga- listann. „Stærsti hluti laganna er erlendur en Birgir Jóhann Birgis- son, sem gerði garðinn frægan með hljómsveitunum Sálinni hans Jóns míns, Hvar er Mjall- hvít? og Þúsund andlitum, vinnur nú hörðum höndum að því að búa til karaókíútgáfur af íslenskum lögum,“ útskýrir Böðvar. Stefnt er að því að gera karaókíviðburði algengari á staðnum. „Þetta verður haldið reglulega en það þarf auðvitað bara að byrja á byrjuninni og krýna fyrsta Íslandsmeistar- ann svo við getum haldið áfram. Þetta er þéttur en þröngur hópur og karaókíbransinn er svolítið klíkukenndur en við ætlum að brjóta þetta aðeins upp.“ Íslandsmótið hefst klukkan 22.00 og kostar ekkert að taka þátt. Hendrix er til húsa á Stór- höfða 17 við Gullinbrú. gunnarleo@frettabladid.is Áhugasöngvarar sameinast á Íslandsmóti í karaókí í kvöld Íslandsmót í karaókí fer fram á skemmtistaðnum Hendrix um helgina. Böðvar Reynisson, einn eigenda Hendrix, ætlar að lífga upp á karaókímenningu á Íslandi. Yfi r tólf þúsund lög eru í boði fyrir keppendur. RITHÖFUNDURINN Einar Már ætlar að segja frá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BARA BYRJUNIN Böðvar Reynisson, einn eigenda Hendrix, boðar bjarta tíma í karaókímenningu þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is Ég hef talað við nokkrar af skærustu stjörnum karaókíbransans á Íslandi. Tökum lagið Samkoma verður á vegum dansk-íslenska félagsins á morgun, sunnudag, í Norræna húsinu. Einar Már Guðmundsson rithöfundur talar þar um kynni sín af dönsku menningarlífi og Borgþór Kjærnested fjallar um dagbækur Kristjáns konungs tíunda. Einnig verður kórsöngur og almennur söngur. Samkoman hefst klukkan 14. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Í Norræna húsinu Sögur og söngur Söngur Þórunn Vala Valdimarsdóttir sópran syngur á sínum fyrstu stóru einsöngstónleikum í Kaldalóni í Hörpu á morgun, sunnudag klukkan 20. Þar flytur hún ljóðaflokkinn Frauenliebe und Leben eftir Schumann og aríur eftir Scarlatti, Caccini, Händel og Mozart við meðleik strengjakvartetts. Þórunn Vala útskrifaðist frá Tón- listarháskólanum í Utrecht í Hollandi 2012. Hún hefur víða komið fram, bæði í virtum kórum og sem ein- söngvari hérlendis og erlendis. - gun Þórunn Vala Debúterar í Hörpu ÞÓRUNN VALA Hún hóf tónlistarnám á unga aldri. Tryggvi Gunnarsson, leikari og leikstjóri Drykkjuvísur og djamm „Ég verð eitthvað að vinna á Loft-Hosteli í Bankastræti en svo erum við bræðurnir í Bartónum, karlakór Kaffibarsins, að byrja nýtt ár með því að borða saman, drekka bjór og syngja ættjarðarljóð og drykkjuvísur. Svo hef ég verið með Stúdentaleikhúsið á námskeiði. Við erum að fara að setja upp sýningu sem fjallar um íslenska djammið í Reykjavík og erum að fara í ákveðna rannsóknarvinnu um helgina!“ Guðrún Snæfríður Gísladóttir leikkona Horfi r í kringum sig „Það fer allt eftir því hvort ég kemst út úr bænum. Í öllum tilfellum ætla ég að horfa í kringum mig.“ Andrea Ólafsdóttir, fyrrverandi forsetaframbjóðandi Afmæliskaffi „Eftir yndislegt kvöld yfir skrafli með eiginmanninum ætla ég í kaffiboð í dag ásamt fleiri fyrrverandi stjórnarmönnum Hagsmunasamtaka heimilanna í tilefni fimm ára afmælis sam- takanna.“ Andri Ólafsson, bassaleikari í Moses Hightower Addar fólki á Myspace „Ég ætla að klára horfa á aðra seríu af Bachelorette og svo hugsa ég að ég addi fullt af fólki á Myspace, af því að ég þarf að krydda aðeins upp á félagslífið, sem hefur verið heldur fábrotið hingað til.“ HELGIN 18. janúar 2014 L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.