Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 22

Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 22
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Sú saga var sögð Einari Benediktssyni, skáldi og sjálfstæðissinna, til háð-ungar að hann hafi reynt að selja sjálf norðurljósin. Hvort sem það er satt eða logið eru norðurljósin nú orðin ein helsta söluvara ferðaþjónustunnar hér á landi yfir vetrarmánuðina. Þegar kvölda tekur krossa hundruð ferðamanna fingurna og vona að skýjafar og aðstæður í himin hvolfunum leiði til þess að hægt verði að berja ljósadýrðina á himnum augum. Þegar mest lætur fara vel á annað þúsund ferðamanna upp í rútur og jeppa og taka stefn- una út í myrkrið á köldum vetrar- kvöldum í Reykjavík. Gróft áætlað má reikna með að rúmlega 100 þúsund ferðamenn hafi skoðað norðurljósin í skipulögðum norðurljósaferðum á síðasta ári. Það er mat stjórnenda fyrirtækja í ferðaþjónustu sem Fréttablaðið hefur rætt við. Hvorki Ferðamála- stofa né Samtök ferðaþjónustunnar halda utan um fjölda slíkra ferða. Fjórir af hverjum fimm sem fara í skipulagðar ferðir fara með öðru hvoru af stóru rútufyrirtækjunum sem bjóða upp á norðurljósaferðir. Restin dreifist á vel á annan tug fyrir tækja sem bjóða ýmiskonar aðra upplifun samhliða leitinni að norðurljósunum. Borga 700 milljónir fyrir ferðir Miðað við verðskrár fyrirtækjanna má áætla að ferðamennirnir greiði um 700 milljónir króna fyrir ferð- irnar. Erfitt er að áætla það með mikilli nákvæmni þar sem flest fyrirtækin bjóða þeim sem fara í ferðir og sjá ekki norðurljós að fara í aðra ferð án endurgjalds. Verð- mæti norðurljósanna er þó marg- falt meira fyrir íslenska þjóðarbúið en þær 700 milljónir sem ferða- mennirnir greiða fyrir ferðirnar á ári, og varlega áætlað eru þær tölur fljótar að komast í milljarða króna. Michael Raucheisen, markaðs- stjóri Icelandair í Bandaríkjun- um, segir að norðurljósin séu orðin eitt helsta aðdráttarafl Íslands yfir vetrartímann fyrir Banda- ríkjamenn. „Eftir að NASA, Geim- ferðastofnun Bandaríkjanna, spáði því að virkni norðurljósanna árin 2013 og 2014 yrði sú mesta í meira en áratug hafa Bandaríkjamenn flykkst til staða þar sem hægt er að sjá norðurljósin,“ segir Raucheisen. Hann segir Ísland vinsælan áfangastað þeirra sem vilji sjá norðurljósin vegna legu landsins. Áætla megi að milli 35 og 40 pró- sent Bandaríkjamanna sem komi hingað á þessum tíma komi sér- staklega til að sjá norðurljósin. „Norðurljósin eru besta sölu- varan fyrir Ísland á veturna,“ segir Ragnar Lövdal, eigandi Superjeep. is. Hann bendir á að ferðamennirn- ir kaupi gistingu, mat og ýmis konar aðrar ferðir og þjónustu. Virði norðurljósanna fyrir Ísland sé því margfalt meira en þær milljónir sem ferðamennirnir borgi fyrir norðurljósaferðirnar sjálfar. Ekki hefur enn verið gerð tilraun til að meta raunverulegt andvirði norðurljósanna, að því er Frétta- blaðið kemst næst. Með aðferðum hagfræðinnar er hægt að leggja mat á virði ýmiskonar gæða, hvort sem það er virði þess að halda hálendinu ósnortnu, eða virði þess að leggja göng undir fjörð frekar en að brúa hann. „Það er eflaust hægt að leggja mat á verðmæti norðurljósanna,“ segir Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann segir það þó fráleitt einfalda útreikninga. „Það þyrfti að leggja mat á tekjur af ferða- mönnum. Inni í því þyrfti að vera mat á því hversu margir koma hingað vegna norðurljósanna, hvað þeir eyða miklu og hve mikið situr eftir. Ég hef engar tölur til að byggja það á,“ segir Gylfi. „Við það þyrfti að bæta því sem er enn erfiðara, það þyrfti að meta til fjár þá ánægju sem við heimamenn höfum af norðurljós- unum, sem er sjálfsagt eitthvað. Það er eins og að meta verðmæti þess fyrir Reykvíkinga að horfa á Esjuna, það er frekar erfitt að meta það til fjár.“ Aukning en enginn veit hve mikil „Allir sem koma til Íslands yfir vetrartímann vilja sjá norðurljósin,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá Iceland Travel. Hún segir að jafnvel þó ferðamenn komi hingað til að sitja ráðstefnur eða fundi gefi þeir sér oft tíma til að fara í ferðir til að reyna að sjá norðurljósin. Upplifun þeirra stjórnenda ferðaþjónustufyrirtækja sem Fréttablaðið hefur rætt við var sú að mikil aukning hafi verið í sölu norð- urljósaferða á síðustu árum. Hversu aukningin er mikil er engin leið að segja til um, enda enginn sem held- ur utan um slíkar upplýsingar. Þó að vel á annað þúsund ferða- manna leggi af stað út í myrkrið til að skoða norðurljósin á góðu kvöldi í Reykjavík er sá mikli fjöldi þó frekar undantekning en reglan. Á venjulegu kvöldi má áætla að um 200 fari í slíkar ferðir, en þegar ekki hefur gefið mörg kvöld í röð safnast saman stærri og stærri hópar þar til ljósin loksins láta á sér kræla. Ferðamenn sem fara í norður- ljósaferðir koma víða að úr heimin- um. Mikið er af Bretum og Banda- ríkjamönnum, og Asíubúar láta ekki sitt eftir liggja. Norðurljósin til sölu allar nætur Hundruð ferðamanna munu fylgjast grannt með skýjafari og veðurspá í dag og vonast eftir góðri norðurljósasýningu í kvöld. Áætla má að ferðamenn borgi um 700 milljónir króna fyrir norðurljósaferðir á ári, en virði norðurljósanna er margfalt meira. Fræg er sagan af Einari Benediktssyni, skáldi og athafnamanni, um að hann hafi afrekað það að selja sjálf norður- ljósin, eða í það minnsta reynt að selja þau. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, sem gaf út ævisögu Einars segir að eftir því sem hann komist næst sé þetta þjóðsaga. „Það gengu nokkuð margar sögur um hversu ósvífinn hann væri í viðskiptum. Hann átti að hafa selt jarðskjálfta, og einu sinni átti hann að hafa selt jörðina Þúfu í Ölfusi. Sá sem keypti átti að hafa farið með honum Austur, og þá á Einar að hafa bent honum á litla þúfu. Þetta eru svona þjóðsögur sem gengu um hann,“ segir Guðjón. „Ein af þessum þjóðsögum var um norðurljósin, en ég fann hvergi heimildir um þetta, hvenær það kom fyrst upp. Ég gæti alveg eins trúað því að einhver hafi búið þetta til,“ segir Guðjón. Sögur af sölu Einars Ben á norðurljósunum stórlega ýktar EINAR BENEDIKTSSON GUÐJÓN FRIÐRIKSSON Engar rannsóknir hafa verið gerðar á því hversu hátt hlutfall þeirra ferða- manna sem sækja Ísland heim að vetri til koma hingað gagngert til að sjá norðurljósin. Í rannsókn sem fjallað er um á vef Ferðamálastofu kemur fram að þegar ferðamenn hafi verið spurðir um hvað hafi staðið upp úr eftir ferð til Íslands nefndu 16,1 prósent norðurljósin, þrátt fyrir að þau sjáist aðeins hluta úr ári. Til samanburðar nefndu 11,2 prósent Geysi eða Strokk, og 10,4 prósent Gullfoss. ➜ Einn af hverjum sex nefndi norðurljósin Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ➜ Sjónarspil Ef meta á verðmæti norðurljósanna þarf ekki bara að meta virði þeirra ferðamanna sem koma hingað til að skoða þau. Einnig þarf að meta hvers virði það er fyrir Íslendinga að geta notið þessa magnaða sjónarspils. Hér sést ljósasýning yfir Elliðavatni. Í baksýn er Elliðavatnsbærinn. 300 250 200 150 100 50 0 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 100.466 105.784 121.840 140.255 145.444 130.921 139.590 154.499 197.622 263.202 þús ➜ Fjöldi erlendra ferðamanna frá október út mars
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.