Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 40

Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 40
FÓLK| HELGIN Keppni fyrir tölvuleikjahönn-uði framtíðarinnar hefst í dag, laugardag. Það eru Samtök leikjaframleiðenda á Ís- landi og Háskólinn í Reykjavík (HR) sem standa fyrir henni en keppnin er opin öllum aldurs- hópum og er aðgangur ókeypis. Að sögn Jóhannesar Sigurðssonar, skipuleggjanda keppninnar, er markmið hennar fyrst og fremst að hleypa nýjum og áhugasömum hópi að borðinu og von- andi um leið að skapa nýja tölvuleiki. „Ekki er nauðsynlegt að vera með fullskapaða hugmynd að tölvuleik heldur dugir að hafa einlægan áhuga á tölvuleikjagerð. Ekki er verra að hafa hugmynd í kollinum en það er þó ekki nauð- synlegt.“ Þátttakendum gefst kostur á að taka þátt í fjórum vinnustofum í HR áður en lokatillögu er skilað inn. „Vinnustofurnar fylgja ferlinu við framleiðslu tölvuleiks. Í fyrstu vinnustofunni verða fulltrúar leikjafyrirtækisins Lumenox Games sem sigruðu í síðustu keppni. Þeir fjalla um hvernig hugmynd þeirra breytt- ist úr skólaverkefni í alvöru tölvuleik sem kemur bráðlega á markað. Viku síðar verður farið yfir leikjahönnun og vikuna þar á eftir verður fjallað um leikjavélar. Í lokavinnustofunni verður fjallað um markaðssetningu fyrirtækja og hvernig sótt er um ýmsa styrki sem tengjast þessum iðnaði.“ Allar vinnustofurnar verða settar á vef keppninnar. Því geta þeir sem missa af þeim sótt þær þangað og mætt viku síðar. Skilafrestur á verkefnum er 16. febrúar og segir Jóhannes æskilegt að frumgerð tölvuleiks fylgi með. „Auðvitað mega vera gallar og ókláraðir hlutir en nauðsynlegt er að fá grófa hugmynd um hvernig hann muni spilast.“ Að sögn Jóhannesar er staða ís- lenska tölvuleikjaiðnaðarins mjög góð og margir spennandi hlutir að gerast. „Það er ekki bara risinn okkar, CCP, sem gengur vel heldur hafa mörg smærri fyrirtæki náð góðum árangri undanfarin ár. Ís- lendingar standa sig vel og það er mikill vöxtur í greininni hérlendis.“ Fyrsta vinnustofan hefst kl. 13 í dag og er enn opið fyrir skráningu. Nánari upplýsingar má finna á gamecreator.igi.is. ■ starri@365.is LEIKJAHÖNNUÐIR FRAMTÍÐARINNAR TÖLVULEIKIR Game Creator-tölvuleikjakeppnin hefst í dag og er ætluð þeim sem vilja kynnast greininni betur. Enn er opið fyrir skráningu. MIKILL VÖXTUR „Íslendingar standa sig vel og það er mikill vöxtur í greininni hérlendis,“ segir Jóhannes Sigurðsson, skipuleggjandi Game Creator. MYND/VILHELM 300 g kjúklingabringur eða svínalund, skorið í strimla ½ kúrbítur ½ laukur 1 rauð paprika 1 msk. olía 1 lítil dós ananashringir, geymið vökvann eldpipar, ef vill ½ tsk. paprikuduft smávegis cayenne-pipar salt og nýmalaður pipar 1 dós kókosmjólk Steikið kjúklinginn á pönnu í nokkrar mínútur og kryddið. Takið frá á meðan grænmetið er steikt þar til það verður mjúkt. Skerið kúrbít og lauk í sneiðar og papriku í bita. Ef notaður er eldpipar er hann fræhreinsaður og saxaður og steikt- ur með á pönnunni. Setjið kjötið á pönnuna aftur og bætið leginum úr ananasdósinni og kókosmjólkinni saman við. Látið malla í 10-15 mín- útur. Gott er að strá kókosflögum yfir réttinn áður en hann er borinn fram. Hrísgrjón passa vel með þessum rétti, hvort sem þau eru hvít eða brún. KJÚKLINGUR FRÁ JAMAÍKA Þessi réttur er ættaður frá Jamaíka og hentar vel þeim sem vilja bragðgóðan og hollan mat. Uppskriftin miðast við tvo. Hægt er að ráða hversu sterkur hann er. Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Heilsu Qigong 5 helstu ástæður þess að iðka qigong Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir “lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”. 1. Aukin vellíðan og lífsþróttur Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi, jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról. 2. Dregur úr þrálátum sársauka Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt. 3. Betra blóðstreymi Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið súrefnisflæði í líkamanum. 4. Dregur úr spennu Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi. Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð. 5. Byggir upp sjálfsvirðingu Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega. Skráning í síma 553 8282 Sunnudag kl. 20:00 Denver Broncos New England Patriots Sunnudag kl. 23:30 Seattle Seahawks San Francisco 49ers
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.