Fréttablaðið - 18.01.2014, Síða 53
| ATVINNA |
Útgáfufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir
sölufulltrúum á Íslandi, Noregi og Danmörku. Um er að
ræða sölu- og kynningastarf fyrir fjöldan allan af ýmis
konar ritum sem fyrirtækið gefur út, sjá heimasíðuna
www.sagaz.is
Krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi.
Reynsla af sölu- og kynningarmálum æskileg en ekki
skilyrði. Árangurstengd verktaka laun.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
umsokn@sagaz.is fyrir 24. janúar nk.
Sölufulltrúi
Við óskum eftir í fullt starf:
Faglærðum bifvélavirkja / vélvirkja eða ófaglærðum manni
vönum viðgerðum vörubíla og vinnuvéla. Viðkomandi þarf
að hafa rafsuðukunnáttu og geta unnið sjálfstætt, vera
reglusamur og eiga gott með mannleg samskipti.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar
Frekari upplýsingar veitir Guðmundur í síma 899-6810
Umsóknir skulu sendar á veffangið mummi@vvehf.is
Við leitum að drífandi og jákvæðum
starfskröftum í framleiðslueiningu okkar á
höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tvö störf.
Starfsmaður í þvottahúsi
Starfssvið:
Framkvæmd verkferla í þvottahúsi fyrirtækisins
Hæfniskröfur:
Metnaður, drifkraftur og áreiðanleiki
Góðir skipulagshæfileikar og geta unnið sjálfstætt
Metnaður og nákvæmni í vinnubrögðum
Góðir samskiptahæfileikar
Starfsmönnum býðst að fara á námskeið samkvæmt
námskeiðs og fræðsluáætlun fyrirtækisins
Umsóknir sendist á saeunn@varma.is fyrir 31. janúar
Starfsmaður í prjónasal
Starfssvið:
Dagleg umsýsla prjónavéla, viðhald og umhirða.
Menntun:
Nám í vélvirkjun eða sambærilegum iðngreinum er kostur.
Starfsreynsla:
Reynsla af vinnu við vélar er æskileg.
Hæfniskröfur:
Metnaður, drifkraftur og áreiðanleiki
Góðir skipulagshæfileikar og geta unið sjálfstætt
Metnaður og nákvæmni í vinnubrögðum
Góðir samskiptahæfileikar
Tölvukunnátta
Ensku- og/eða þýskukunnátta
Viðkomandi býðst að fara á námskeið í meðferð
tölvustýrðra prjónavéla samkvæmt námskeiðs
og fræðsluáætlun fyrirtækisins.
Umsóknir sendist á saeunn@varma.is fyrir 31. Janúar.
Glófi ehf er stærsti framleiðandi á prjóna-og mokkavöru á
Íslandi. Aðalvörumerki fyrirtækisins er VARMA the warmth
of Iceland. Markmið og áherslur fyrirtækisins er að þróa og
nýta íslenskt hráefni sem mest og setja á markað fallegar
og vandaðar prjóna-og mokkavörur. Öll framleiðsla fer fram
á Íslandi. Umsvif fyrirtækisins eru í stöðugri aukningu og
leitum við því að einstaklingum sem hafa áhuga og metnað
til að taka þátt í uppbyggingu á þessu öfluga fyrirtæki.
Sjá einnig www.varma.is og á Facbook undir
VARMA The warmt of Iceland.
Sérfræðingur í hugbúnaðargerð Hæfniskröfur
Alhliða hugbúnaðargerð, hönnun, skjölun og
forritun. Fjölbreytt verkefni, forritun notendaviðmóts,
algrím, myndvinnsla, úrvinnsla tölulegra gagna,
netsamskipti og gagnagrunnar. Flest verkefni eru
leyst með .NET eða Qt. Til greina kemur bæði
reynslubolti í hugbúnaðargerð eða efnilegur
einstaklingur sem vill læra og vaxa með starfinu.
Háskólamenntun í tæknigrein t.d. MSc í verkfræði,
stærðfræði, eðlisfræði eða tölvunarfræði.
Kunnátta í C# eða C/C++
Kunnátta í tölulegri greiningu og merkjafræði kostur
Kunnátta í 3D eða 2D myndvinnslu er kostur
Starfsreynslu er ekki krafist en er kostur
Kvikna er alþjóðlegt hátækni hugbúnaðarfyrirtæki með
sérhæfingu í úrlausn flókinna verkefna. Helstu viðskiptavinir
eru fyrirtæki í olíu-, heilbrigðis-, fjármála- og tæknigeiranum.
www.kvikna.com
your solution envisioned
Umsókn sendist til: job@kvikna.com
Hvalfjarðarsveit óskar eftir að
ráða í starf félagsmálastjóra.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með rekstri og ábyrgð
á allri starfsemi sem heyrir undir málefni fjölskyldunnar.
• Barnavernd
• Félagsleg heimaþjónusta
• Félagsleg ráðgjöf
• Fjárhagsaðstoð
• Málefni aldraðra
• Málefni fatlaðra
• Umsjón með æskulýðsstarfi
• Fræðslumál
Félagsmálastjóri ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna,
úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og
þjónustugæða. Félagsmálastjóri sinnir teymisvinnu og starfar
með mismunandi fagstéttum á þjónustusvæðinu.
Almennt stjórnunarsvið
Félagsmálastjóri starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglu-
gerðir sem gilda um verkefni félagsþjónustu. Einnig
eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu og
samkvæmt markmiðum félagsþjónustunnar og fjárhagsáætlunar
á hverjum tíma. Nokkrir helstu samráðsaðilar
eru félagsmálanefnd, barnaverndarnefnd og þjónusturáð
í málefnum fatlaðra. Starfar með fjölskyldunefnd og fræðslu- og
skólanefnd.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
• Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra
eða sambærileg störf mikilvæg
• Reynsla af stjórnunarstörfum á vettvangi félagsþjónustu
sveitarfélaga er æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulags
hæfileika
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Kjör
Laun og starfskjör samkvæmt kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags og launanefndar sveitarfélaga.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar nk.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá berist á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, 301 Akranes eða á
netfangið; hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri
í síma 4338500 eða laufey@hvalfjardarsveit.is
Verkefnastjóri fasteigna- og búnaðarmála
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu verkefnastjóra fasteigna- og búnaðarmála. Verkefnastjóri hefur
yfirumsjón með búnaði sem heyrir undir skóla- og frístundasvið. Næsti yfirmaður verkefnastjóra er fjármálastjóri sviðsins.
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur 62 leikskóla, 36 grunnskóla og 6 frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar,
starfsemi Námsflokka Reykjavíkur, skólasafnamiðstöðvar og skólahljómsveita. Skóla- og frístundasvið veitir um
20 þúsund börnum og fjölskyldum þeirra þjónustu
Helstu verkefni:
• Gerð innkaupaáætlana og innkaup á búnaði
• Gerð kostnaðaráætlana
• Þarfagreiningar og útboðslýsingar
• Ráðgjöf og greiningarvinna
• Gerð rammasamninga í samráði við Innkaupaskrifstofu
• Samstarf um fasteignir á vegum sviðsins
• Mat á viðhalds- og endurnýjunarþörf á húsnæði og búnaði
• Umsjón með búnaðarlager
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á byggingasviði
• Starfsreynsla af sviði byggingariðnar æskileg
• Reynsla á rekstri og mati á viðhaldsþörf fasteigna
æskileg
• Reynsla í gerð innkaupa- og kostnaðaráætlana æskileg
• Góð tölvukunnátta og þekking á tölvuforritum sem nýtast
í starfi æskileg
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
• Námkvæmni og öguð vinnubrögð
• Lipurð og hæfni í samskiptum
Umsókn fylgi starfsferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar nk.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri og Valgerður Janusdóttir, mannauðsstjóri í síma 411-1111,
netföng: kristjan.gunnarsson@reykjavik.is , valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
LAUGARDAGUR 18. janúar 2014 13