Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 56
| ATVINNA |
Seltjarnarnesbær seltjarnarnes.is
Seltjarnarnesbær auglýsir laust starf
Sviðsstjóri umhverfissviðs
Umhverfissvið annast umsýslu veitna, gatnakerfis,
fasteigna, skipulags-og byggingarmála Seltjarnarness.
Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með fjárhags- og starfs-
áætlunargerð, rekstrareftirliti og gerð tillagna til að auka
hagkvæmni og skilvirkni í rekstri. Sviðsstjóri ber m.a.
ábyrgð á starfsemi áhaldahúss, hitaveitu, fráveitu, vatns-
veitu, brunavörnum, eignasjóði, umferðar- og samgöngu-
málum, smábátahöfn, framkvæmda- og viðhaldsmálum
bæjarfélagsins svo eitthvað sé nefnt. Næsti yfirmaður er
bæjarstjóri.
Leitað er að kröftugum og metnaðarfullum einstaklingi til
að sinna starfi sviðsstjóra, sem er vanur framkvæmdum
og hefur þekkingu og áhuga á umhverfis-, skipulags- og
byggingarmálum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Yfirumsjón með daglegri stjórnun sviðsins, ábyrgð á
starfsemi áhaldahúss, hitaveitu, fráveitu, vatnsveitu,
brunavörnum, eignasjóði, umferðar- og samgöngu
málum, sorphirðu, smábátahöfn, framkvæmda og við
haldsmálum bæjarfélagsins
• Yfirumsjón með rekstri eignasjóðs
• Yfirumsjón með verklegum framkvæmdum,
nýbyggingum og viðhaldsverkefnum
• Yfirumsjón með umhverfismálum, skipulags- og
byggingarmálum, brunamálum og almannavörnum
• Yfirumsjón með framkvæmdum, verklegum útboðum
og gerð samninga
• Undirbúningur og framlögn erinda til bæjarráðs og
fagráða ásamt eftirfylgd mála
• Ábyrgð og eftirlit með öryggismálum
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af stjórnun og framkvæmdum
• Reynsla af verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlunum
• Þekking og áhugi á umhverfis-, skipulags- og
byggingarmálum æskilegur
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, framsýni
og skipulagshæfni
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
• Góð almenn tölvukunnátta
Sviðsstjóri er hluti af stjórnendateymi Seltjarnarnes-
bæjar. Starfsmenn sviðsins eru 11. Æskilegt er að
viðkomandi hefji störf sem fyrst. Um launakjör fer eftir
ákvörðun bæjarráðs um stjórnendakjör Seltjarnarnes-
bæjar.
Upplýsingar um starfið veitir Ásgerður Halldórsdóttir,
bæjarstjóri, í síma 5959-100, netfang
postur@seltjarnarnes.is
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru
konur jafnt sem karlar hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir skulu hafa borist bæjarskrifstofum Seltjarnar-
nesbæjar, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi eigi síðar en
miðvikudaginn 22. janúar 2014 á netfangið
postur@seltjarnarnes.is.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfi.
Seltjarnarnesbær tilheyrir höfuðborgarsvæðinu, en þar
búa rúmlega 44oo manns. Á síðasta ári störfuðu um 311
manns hjá Seltjarnarnesbæ og voru ársverkin um 235. Á
Seltjarnarnesi eru 92% íbúa ánægðir með búsetuskilyrði
bæjarfélagsins, samkvæmt árlegri þjónustukönnun, sem
Capacent gerir meðal sveitarfélaga. Yfirbragð bæjarins
er friðsælt og fagurt, bærinn leggur áherslu á að vera
leiðandi í skóla-, æskulýðs- og íþróttastarfi á landsvísu,
þar sem lögð er áhersla á jöfn tækifæri, árangur og
vellíðan.
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Leitar þú að starfsmanni?
HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi
þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga.
Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og
tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er
ráðning í hans stað án endurgjalds.
Ekkert staðfestingargjald
Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt
langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú
ekkert ef ekki verður af ráðningu.
Fjöldi hæfra umsækjenda
Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni
okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn
fyrir starfið.
Fjölbreyttar þjónustuleiðir
Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum
og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina
hjá okkur.
Reynsla og þekking
Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna-
mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og
hagnýtri menntun.
Sanngjarnt verð
Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á
þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita
afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
kopavogur.is
Kópavogsbær
Menntasvið Kópavogs
óskar eftir
talmeinafræðingi
Sérfræðiþjónusta leikskóla Kópavogs óskar eftir
talmeinafræðingi í 50% starf með möguleika á
aukningu á starfshlutfalli með haustinu.
Ráðningartími
Frekari upplýsingar eða samkvæmt samkomulagi.
Menntunar og hæfniskröfur
Löggiltur talmeinafræðingur eða nýútskrifaður
(skv. nánari upplýsingum hér fyrir neðan)
Frumkvæði og samstarfshæfni
Góðir skipulagshæfileikar
Réttindi á helstu próftæki
Reynsla æskileg af vinnu með börnum á leikskólaaldri
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í
teymi við aðra sérfræðinga
Frekari upplýsingar
Til greina kemur að ráðinn verði nýútskrifaður
talmeinafræðingur, þ.e. án löggildingar, sem
myndi þá starfa undir eftirliti og handleiðslu
reynds talmeinafræðings.
Laun og kjör fara eftir viðkomandi kjarasamningum
stéttarfélaga við launanefnd sveitarfélaga.
Allar nánari upplýsingar um störfin er að finna á
vef bæjarins www.kopavogur.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar. 2014.
Nánari upplýsingar veita Anna Karen Ásgeirs-
dóttir, sérkennslufulltrúi, annak@kopavogur.is og
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, sérkennsluráðgjafi,
asdisgu@kopavogur.is, eða í síma 570 1500.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja
um starfið.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Afleysing á sjó óskast.
Maður á besta aldri óskar eftir að komast á sjó,
í afleysingar næstu tvo mánuði.
Er heilsuhraustur og vinnusamur, vanur á færum,
hefur farið á línubát og skuttogara.
Hefur vélavörsluréttindi á 24 metra en vantar tíma.
Laus strax. Bjarni s: 893 5950
STARFIÐ
Sjá um bakvinnslu og innskráningu á verðsamningum.
Taka á móti bókunum og skrá þær.
Uppfæra efni á samfélagsmiðlum.
Uppfæra efni á vefsíðum hótelana.
Taka þátt í kaupstefnum þegar þess gerist þörf.
Leysa önnur verkefni sem til falla.
HÆFNISKRÖFUR
Reynsla og þekking á ferðaþjónustu æskileg.
Reynsla af sölustörfum.
Góð íslensku og ensku kunnátta.
Góð almenn tölvukunnátta.
Frumkvæðni og sjálfstæð vinnubrögð.
Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Geta sinnt mörgum viðfangsefnum samtímis.
Góð þekking á samfélagsmiðlum kostur.
Góð þekking á Wordpress kostur.
SÖLUFULLTRÚI
Vegna aukinna verkefna bætum við við okkur sölufulltrúa
í fullt starf. Unnið er í dagvinnu en viðkomandi þarf að vera
tilbúinn til að vinna lengur þegar þörf krefur.
Um fjölbreytt starf er að ræða þar sem viðkomandi verður
að vera tilbúinn að takast á við ýmis og fjölbreytt verkefni.
Umsóknarfrestur er til 27. janúar 2014
og umsóknir sendist ásamt ferilsskrá á geir@hotelcabin.is
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR16