Fréttablaðið - 18.01.2014, Qupperneq 76
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 40
Heilabrot
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
79
„Hvað skyldi þetta nú vera,“ sagði Konráð og tók upp pappírsblað með tölu-
stöfum og undarlegum táknum sem hann sá liggja á jörðinni. „Mér sýnist þetta
vera stærðfræðiþraut,“ sagði Lísaloppa. „En þessi þarna þrjú tákn eru ekki
standa, svo þessi fjögur dæmi gangi upp,“ bætti hún við.
svo dæmin gangi upp?
GRÍN MEÐ RÍMI Myndir úr bókinni Allir krakkarnir eftir Gunnar Kr. Sigurjónsson.
1. Hvaða fræga dúkka átti 50 ára afmæli þann 9. mars 2009?
2. Hvert er þjóðarblóm Íslendinga?
3. Hvert er bílnúmer Andrésar Andar?
4. Hvað kemur fyrir nefið á Gosa í hvert sinn sem hann segir ósatt?
5. Hvað eru margir leikmenn inni á vellinum í tveimur fullskipuðum hand-
boltaliðum?
6. Hvað heita systur Barts Simpson?
1.Barbie
2.Holtasóley
3.313
4.Það lengist
5.14
6.Lísa og Magga
Er gaman að vera gangbrautar-
vörður? „Já, það er gaman en
því fylgir líka mikil ábyrgð.“
Hefurðu bjargað mörgum frá
því að lenda í slysum? „Já, og
það hefur munað litlu, eins og
þegar einn keyrði yfir á rauðu
og leit ekki fram fyrir sig.“
Ertu að fylgja börnum á sér-
stökum aldri yfir götuna? „Nei,
öllum skólakrökkunum.“
Leiðir þú börnin yfir götuna
eða gengur þú á undan þeim?
„Stundum leiði ég þau og geng
aldrei á undan þeim. Ég vildi
óska að fólkið færi hægar á bíl-
unum og keyrði ekki yfir á rauðu
ljósi.“
Hefurðu verið gangbrautar-
vörður lengi? „Rúmlega tvö ár
og er voða fegin að engin slys
hafa orðið hjá mér.“
Ertu alltaf við sömu gatna-
mótin? „Já, við Langholtsveg og
Holtaveg.“
Ertu þar allan skólavetur-
inn eða bara í skammdeginu?
„Allan skólaveturinn.“
Hvenær þarftu að vakna á
morgnana og á hvaða tímum
ertu við Langholtsveginn? „Ég
vakna klukkan hálf sex og er við
gatnamótin frá kortér í átta til
hálf níu, stundum lengur.“
Hvað er skemmtilegast við
starfið? „Það er svo margt. Þau
eru svo yndisleg börnin.“
Geturðu sagt mér frá einhverju
atviki í starfinu? „Ein mamman
gekk yfirleitt með syni sínum
yfir gangbrautina en einn dag-
inn lét hún hann labba einan og
hann grét svo mikið að ég fylgdi
honum í skólann, þá var allt í
lagi.“
Manstu eftir einhverju sniðugu
sem barn hefur sagt við þig á
leiðinni í skólann? „Það kemur
svo margt sniðugt frá þeim.
Einn í fyrsta bekk sem ég var
að tala við hvíslaði í eyrað mitt,
„Þú ert vinur minn,“ Svo hvíslaði
hann: „Ég á kærustu.“ Hann er
yndislegur strákur.“
Þú ert vinur minn
Jakobína Þráinsdóttir fylgir börnunum sem eru á leið í Langholtsskóla yfi r fj öl-
farin gatnamót Langholtsvegar og Holtavegar á hverjum virkum morgni.
GANGBRAUTARVÖRÐURINN Jakobína segir margt skemmtilegt við starfið. „Þau eru svo yndisleg börnin.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA