Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 88

Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 88
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 52 ? Ég hef verið með kærastanum mínum í nokkra mánuði og okkur kemur vel saman og sam- bandið er frábært. Kynlífið er mjög gott, en fyrir um tveimur mánuð- um hefur hann ekki getað fengið sáðlát við „venjulegar“ samfarir og þarf þá að klára á annan hátt (þar sem ég fer niður á hann eða nota hendurnar) sem ég glöð geri. Kyn- lífið er því mjög gott, en við viljum bæði geta klárað á svipuðum tíma og að hann fái það með mér, í stað þess að hann ofhugsi hlutina stuttu eftir samfarir um af hverju hann getur ekki fengið það. Fyrst var þetta ekkert mál og allt gekk eðli- lega, en eftir tvo mánuði af munn- gælum og öðru er ég farin að hugsa hvað ég geti gert til þess að hjálpa honum við að koma á ný? ●●● SVAR Það er eitt sem ég rak augun sérstaklega í við lestur spurningar- innar og það var þetta með tíma- setningu fullnægingarinnar. Það getur verið óraunhæf krafa að reyna í hverjum samförum að fá fullnægingu samtímis. Það geta svo ótalmargir hlutir haft áhrif á fullnæginguna eins og forleikur og stemming og stundum bara getur verið ómögulegt að fá fullnægingu. Það gildir um bæði drengi og dömur. Meðaltími samfara eru 3-7 mínútur og það ná ekki allir að fá fullnægingu innan þess tímaramma og því þarf stundum að auka við for- leik eða bæta við eftirleik. Nú veit ég ekki hversu langar samfarirn- ar ykkar eru en þær gætu verið of langar, eða of stuttar. Ég velti því einnig fyrir mér hvort samförum ljúki þegar þú hefur fengið fullnægingu því þú segist „klára“ hann eftir á og það virðist ganga. Það segir mér að vandamálið snerti ekki van- getu hans til fullnægingar heldur kannski frekar tímasetninguna á henni. Það gæti verið ágætt að taka pressuna af samförum og tíma- settri fullnægingu og leyfa ykkur bara aðeins að vera og njóta. Þið gætuð prófað að auka forleikinn og þú fengið fullnægingu þar svo það sé „frá“ og þá ferð þú fullnægð í samfarirnar og gætir mögulega náð þér í aðra fullnægingu seinna. Hann þyrfti þá ekki að hafa áhyggj- ur af því að þú værir ófullnægð. Þú getur notið kynlífsins og veitt ykkur báðum beina örvun með höndunum á meðan á samförum stendur. Hér reynir á samskiptahæfileika ykkar beggja. Hann þarf að segja þér hvernig honum líður og hvað honum þykir gott. Kannski er stell- ingin sem þið eruð í óþægileg? LAUGARDAGUR 18. JANÚAR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Hvernig hjálpa ég honum Sýningar 16.00 Opnun sýningar í Ásmundarsafni kl. 16. Á sýningunni er vakin athygli á efnistökum Ásmundar Sveinssonar á síð- ari hluta ferils hans og samhljómi hans við níu starfandi listamenn í dag. Tónlist 22.00 Nú er lag fyrir tjúttþyrsta að koma á krána í Kringlunni um helgina því þar mun Rokksveit Jonna Ólafs sjá um tjúttið. 23.00 Vestfirðingaball á Spot. Hljóm- sveitin Xpress spilar. Aðgangseyrir er kr. 2.000 við hurðina. BESTA MYND 12 Years a Slave BESTI LEIKARI Matthew McConaughey, Dallas Buyers Club BESTA LEIKKONA Cate Blanchett | Blue Jasmine BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI Jared Leto | Dallas Buyers Club BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI Lupita Nyong‘o | 12 Years a Slave BESTA LEIKARALIÐ American Hustle BESTI LEIKSTJÓRI Alfonso Cuaron | Gravity BESTA FRUMSAMDA HANDRIT Spike Jonze | Her BESTU TÆKNIBRELLUR Gravity BESTA TEIKNIMYND Frozen BESTA HASARMYND Lone Survivor BESTA GAMANMYND American Hustle BESTI LEIKARI Í GAMANMYND Leonardo DiCaprio The Wolf of Wall Street BESTA LEIKKONA Í GAMAN- MYND Amy Adams | American Hustle BESTA ERLENDA MYND Blue Is the Warmest Color BESTA LAG Let It Go | Frozen HEITASTA STJARNA HOLLYWOOD Benedict Cumberbatch HELSTU SIGURVEGARAR Verðlaunahátíðin Critics‘ Choice var haldin í Santa Monica í Kaliforníu á fimmtudag og dró þar helst til tíðinda að Lupita Nyong‘o hlaut verð- laun sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í 12 Years a Slave. Höfðu margir tippað á að Jennifer Lawrence myndi hreppa hnossið fyrir hlutverk sitt í American Hustle. Þetta er fyrsta hlutverk Lupitu í Hollywood og komu verðlaunin henni mjög á óvart. „Ég er pínulítið hrædd. Það er svo mikill heiður að vera hér og mig langar að þakka fyrir þennan ótrúlega heiður. Þetta hefur verið frá- bært ár með framúrskarandi frammistöðu í flokknum mínum og mér finnst það heiður að vera tilnefnd með konum á borð við June Squibb, Juliu Roberts, Jennifer Lawrence og Scarlett Johansson,“ sagði Lupita við blaðamenn eftir verðlaunahátíðina. - lkg Lupita kom, sá og sigraði Critics’ Choice-verðlaunahátíðin var haldin í Santa Monica á fi mmtudaginn. Holtagörðum | 2.hæð | 104 Reykjavík | reebokfitness@reebokfitness.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.