Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 102

Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 102
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 66 Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hélt fyrirlestur um sjálfstraust fyrir nem- endur á námskeiðinu Samvinna og árangur í Háskóla Íslands í vikunni. „Ég ræddi aðallega sjálfstraust og hvernig maður kemur fram opinberlega á fundum og annað í þeim dúr. Ég ræddi það líka hvernig það er fyrir mann eins og mig að tala opinberlega sem er mjög feiminn að eðlisfari. Stundum þarf maður að leggja það til hliðar og búa sér til nýtt sjálf sem getur komið fram opinberlega og talað.“ - lkg SPJALL UM SJÁLFSTRAUST „Hollywood er eins og slæmur kærasti. Maður getur ekki beðið eftir því að vera boðið upp í dans.“ AMY POEHLER UM AF HVERJU HÚN ÆTLAR AÐ EINBEITA SÉR AÐ LEIK- STJÓRN, FRAMLEIÐSLU OG HANDRITASKRIFUM. „Ég er alls ekkert fúll yfir þessu en ég fékk smá ónot þegar ég fékk bréfið. Þá velti ég fyrir mér hvort þessi kona ætlaði að láta blogg- herinn ræna af mér ærunni,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens. Hann er einn fjögurra dómara í hæfileikaþáttunum Ísland Got Talent sem fer í loftið á Stöð 2 seinna í mánuðinum. Bubba barst miður skemmtilegt bréf á dögun- um frá keppanda sem var ósáttur við það að komast ekki áfram í þáttunum. „Málið var það að kona, sem ég vil ekki nafngreina, söng lag eftir Bob Dylan í þýðingu Jónasar Árna- sonar. Hún komst ekki áfram og skrifaði mér bréf sem var uppfullt af gríðarlegum vonbrigðum. Hún kallaði mig hrokagikk og sjálf- hverfan og ég veit ekki hvað og hvað. Hún sagði að hún hefði einu sinni haft álit á mér en nú væri það farið út um gluggann. Þetta bréf var gríðarlega langt og hún sagðist hafa sungið þetta lag í tuttugu ár og aldrei nokkurn tímann fengið höfnun á flutninginn,“ segir Bubbi „Það eina sem ég sagði við hana þegar hún lauk flutningi sínum, ef ég man rétt, var: Nei, þetta er ekki fyrir mig. Hún hótaði að birta bréfið í fjölmiðlum og á heimasíðu sinni. Í einu orði sagt geta von- brigði, höfnun og reiði fólks orðið svo rosaleg að það blindar það,“ bætir Bubbi við. Hann ber engan kala til þessarar konu. „Ég skrifaði henni til baka og hvatti hana til að syngja áfram en að ég stæði við það að mér þætti hún ekki nógu góð. Mig minnir að ég hafi lokið svari mínu á orðunum ást og friður. Málið var samt sem áður að þetta var ósmekklegt bréf en ég fyrirgaf henni því ég vissi að þetta var skrifað í hita leiksins.“ Bubbi er ekki ókunnugur hæfi- leikakeppnum á borð við Ísland Got Talent því hann var einnig dómari í Idol-Stjörnuleit í denn. „Þetta er ekkert einsdæmi í svona þáttum. Í Idolinu hringdi fólk í mig, sérstaklega þegar það var komið í glas og hafði kjarkinn. Maður getur alltaf búist við því að keppendur missi sig í brjálæði og maður verður bara að taka því,“ segir Bubbi. Hann segist alls ekki vera illkvittinn dómari. „Ég er harður en sanngjarn.“ liljakatrin@frettabladid.is Bubba barst ósmekk- legt hótunarbréf Bubbi Morthens er einn af dómurum í Ísland Got Talent. Hann fékk miður skemmtilegt bréf frá einum keppanda þar sem hann er kallaður hrokagikkur. VINSÆL Í ÞÝSKALANDI Guðrún Helgadóttir á 40 ára rit- höfundarafmæli á árinu og hefur byrjað afmælisárið af krafti. Bók hennar Bara gaman kom út í Þýskalandi síðastliðið sumar og hefur vakið stormandi lukku. Bókin hefur selst upp, verið endurprentuð og hlotið viðurkenningu sem ein af bestu barna- bókum ársins í Þýskalandi árið 2013. Guðrún hefur meðal annars verið kölluð arftaki Astrid Lind- gren í þýskum dómum um bókina og er henni mikið hrósað fyrir þá hlýju og næmni sem einkennir bókina. - ebg Þetta er ekkert einsdæmi í svona þáttum. Í Idolinu hringdi fólk í mig, sérstaklega þegar það var komið í glas og hafði kjarkinn. SANNGJARN EN HARÐUR Bubbi er dómari ásamt Þorgerði Katrínu Gunnars- dóttur, Jóni Jónssyni og Þórunni Antoníu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ STRÁKUR Á LEIÐINNI „Ég er hálfnuð og er sett 4. júní. Mér líður mjög vel fyrir utan smá þreytu af og til þegar ég tek of mikið að mér. Ég finn ekki mikinn mun á hvort kynið er, allavega ekki enn þá. En það er yndis- legt að fá að eiga bæði kynin,“ segir Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, en hún og eiginmaður hennar, Sigursveinn Þór Árnason, eiga von á dreng. Fyrir á Regína Anítu 11 ára, en saman eiga þau Aldísi Maríu, 4 ára. - eá „Ég ætla að vera nakinn og berskjaldaður í heilan mánuð,“ segir Curver Thoroddsen, en hann opnar sýninguna Verk að vinna/ Paperwork í Ketilhúsinu á Akur- eyri í dag klukkan þrjú. Þar stendur lista maðurinn fyrir raunveruleika- gjörningi í anda fyrri verka sinna þar sem daglegt líf hans og list- sköpun skarast. „Ég verð að fara í gegnum blöð og pappíra frá ólíkum æviskeiðum mínum. Pappírar sem hafa safn- ast saman á síðastliðnum 20 árum heima hjá mér. Ég býst við að þetta verði dálítill tilfinningarússíbani að fara svona í gegnum líf sitt í pappírs bréfum,“ segir Curver jafn- framt. Hann kemur til með að loka sig af í heilan mánuði í Ketilhúsinu til þess að flokka póstinn. „Þetta verður sannarlega ferðalag inn á við, sem er dálítið fyndin and- stæða þess að út á við verð ég nak- inn í almenningsrými að gera mjög persónulegan hlut. Verkið fjallar dálítið um þetta, þetta persónulega svæði og svo það almenna. Sam- skiptamiðlar í dag, líkt og Facebook og Instagram, hafa orðið til þess að við erum alltaf að varpa okkar persónulega rými út í almennings- rými og sýningin fjallar í rauninni um þessi mörk,“ segir Curver. - ósk Lokar sig af nakinn í mánuð Curver Thoroddsen opnar sýningu í Ketilhúsinu á Akureyri í dag klukkan fi mm. FERÐALAG INN Á VIÐ Sýningin fjallar um mörkin á milli hins persónulega og hins almenna. MYND/ÚR EINKASAFNI Grundvöllur málstofunnar er: Gralsboðskapurinn„Í ljósi sannleikans“ eftir Abd-ru-shin Frekari upplýsingar má nálgast á síðunni: www.is.gral-norden.net Hver eru lögmál lífsins? Málstofa í Reykjavík 22. febrúar 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.