Fréttablaðið - 04.03.2014, Síða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
14
VÍTAMÍNBOMBATómatar eru afar hollir og góðir. Litlu kirsuberjatómat-
arnir eru svo ljúffengir að þeir eru upplagðir sem milli-
biti. Í tómötum er A-, C-, K- og B6-vítamín auk magn-
esíns og trefja svo eitthvað sé nefnt. Allt gott fyrir
heilsuna og betri líðan. Tómata er hægt að nota á marg-
víslegan hátt í matargerð.
R oseberry er náttúrulegt þrívirkt efni gegn blöðrubólgu sem hefur verið fáanlegt hérlendis sl. 2 ár. Blöðrubólga er algengur kvilli og fá kon-ur hana mun oftar en karlar. Sennilega má rekja hærri tíðni meðal kvenna til þess að þær hafa mun styttri þvag-rás en karlar. Roseberry hentar bæðikonum og körlum
einkenni að taka inn þrjár töflur á dag
í þrjátíu daga en þeir sem vilja fyrir-byggja þennan kvilla taka inn eina til tvær töflur. Gott er að taka töflurnar áður en farið er að sofa.
Roseberry er fáanlegt í fle ttek h
ÞJÁIST ÞÚ AF BLÖÐRUBÓLGU?GENGUR VEL KYNNIR Roseberry er öflug, fljótvirk og fyrirbyggjandi lausn
gegn blöðrubólgu sem hentar fyrir alla.
ROSEBERRY
Inniheldur þykkni úr trönuberjum með háu hlutfalli af PAC sem er virkasta efnið í þykkninu.
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝTT – NÝTTHLAÐBORÐ Í HÁDEGINU
TILBO
2 SÉRBLÖÐ
Fólk | Íslandsmót iðn- og verkgreina
2014
Sími: 512 5000
4. mars 2014
53. tölublað 14. árgangur
Vilja róa umræðuna
Þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna
funduðu í gær um málefni tengd
ESB. Innan raða sjálfstæðismanna er
vilji til að reyna að ná áttum og róa
umræðuna 2
3.400 íbúðir banka og sjóða
Íbúðalánasjóður á um 2.000 íbúðir
og bankarnir um 1.400. Á milli 400
og 500 eru taldar standa auðar. 2
Deila um Norðurhálsa Ölfus sendir
til umsagnar breytingu á skipulagi til
að OR geti nýtt heitt vatn á Norður-
hálsum. Minnihlutinn er ósáttur. 6
Vilja svör um norskan lax Erfða-
nefnd landbúnaðarins krafin um svör
af Landssambandi veiðifélaga. 12
MENNING Gæsahúð aftur
og aftur! Óperan Ragnheið-
ur fær fimm stjörnur. 22
LÍFIÐ Íslensk hljómsveit
hitar upp fyrir Justin
Timber lake. 34
SPORT Ekki eðlilegt að
sinna bæði starfi formanns
og framkvæmdastjóra. 42
Svaraðu hreykallinu &
TAKTU ÞÁTT Í MOTTUMARS
Opið
til
kl. 21
í kvöld
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Saltkjöt og baunir
á tilboði
SKOÐUN Heiðar Már Guð-
jónsson skrifar um galla
haftakerfis. 17
Bolungarvík 1° NA 4
Akureyri 0° A 3
Egilsstaðir 5° A 7
Kirkjubæjarkl. 4° A 6
Reykjavík 3° V 5
VÍÐA ÚRKOMA Í dag verður vestlæg
átt með éljum eða slydduéljum V-til
en norðaustan 8-15 m/s og rigning eða
slydda A-til. Hiti 0-7 stig. 4
STJÓRNSÝSLA „Ég skil
ekki hvernig það varð-
ar almannaöryggi hvort
einhver standi í forræð-
isdeilu, eigi í nágranna-
erjum eða hversu mikið
viðkomandi skuldi í hús-
inu sínu. Það gerir flug-
manninn ekki að óheiðar-
legum eða hættulegum
manni,“ segir Hafsteinn
Pálsson, formaður Félags
íslenskra atvinnuflug-
manna (FÍA).
Aðalfundur félagsins
gagnrýnir harðlega laga-
frumvarp innanríkisráð-
herra sem veitir embætti
ríkislögreglustjóra heim-
ildir til að afla persónu-
legra upplýsinga um flug-
menn.
Fullyrðingu FÍA um aðför að
starfsöryggi og afkomu félags-
manna er hafnað af ríkislög-
reglustjóra og í tilkynningu
vegna málsins, sem birt var á
vef embættisins, er áréttað að
bakgrunnsathuganir „eru til þess
ætlaðar að efla öryggi í flugi og
á flugvöllum og eru samkvæmt
alþjóðakröfum um flugvernd“.
- ebg / sjá síðu 10
Atvinnuflugmenn gagnrýna lagafrumvarp innanríkisráðherra harðlega:
Telja vegið að starfsöryggi sínu
ÚKRAÍNA Ástandið á Krímskaga
nálgaðist suðupunkt í gær þar sem
Rússar höfðu lokað aðgangi megin-
lands Úkraínu að skaganum og til-
kynnt áform um að byggja brú yfir
sundið til Rússlands.
Rússneski herinn hafði í gær í
reynd náð öllum Krímskaga á sitt
vald, þótt úkraínskir hermenn á
skaganum hafi ekki verið búnir
að gefast upp. Krímskagi tilheyrði
lengi Rússlandi og þar er rússnesk
flotastöð.
Rússar báru hins vegar í gær til
baka fréttir um að þeir hefðu gefið
úkraínskum hermönnum á Krím-
skaga lokafrest þangað til klukk-
an þrjú í nótt, eða fimm að staðar-
tíma, til að gefast upp. Rússneska
fréttastofan Interfax hafði full-
yrt að Alexander Vitko, yfirmaður
Svartahafsflota rússneska sjóhers-
ins, hefði sett Úkraínumönnum
þennan lokafrest.
Vesturlönd hafa fordæmt aðgerð-
ir Rússa og hvatt þá til að fara held-
ur samningaleiðina. Engar raddir
hafa heyrst um að Vesturlönd telji
til greina koma að senda herlið
til Úkraínu en refsiaðgerðir gegn
Rússum hafa komið til tals.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
var kallað saman á neyðarfund í
gærkvöld þar sem sendifulltrúi
Rússlands las meðal annars tilkynn-
ingu frá Janúkovitsj, sem var settur
af sem forseti Úkraínu á dögunum.
Janúkovitsj kallaði þar eftir því að
Rússar sendu herlið inn í Úkraínu
meðal annars til að stuðla að friði
og stöðugleika og vernda úkraínsku
þjóðina.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari lét þau orð falla í gær að Pútín
gæti hafa misst öll tengsl við raun-
veruleikann, en Rússar segjast vera
að verja rússneskumælandi íbúa
Úkraínu gegn öfgahægriöflum sem
hafi tekið völdin í Úkraínu.
- gb, þj / sjá síðu 8
Krímskagi nú á valdi Rússa
Inngrip Rússa á Krímskaga vekur hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins, en fátt bendir til þess að vopnavaldi verði
beitt á næstunni. Rússar hafa náð undir sig meginhluta skagans og hyggjast byggja brú yfir til Rússlands.
HAFSTEINN
PÁLSSON
Þýska tímaritið Der Spiegel velti í gær upp þremur líklegustu möguleik-
unum í stöðunni í Úkraínu.
■ Stríð milli Rússa og Úkraínumanna.
■ Samningaviðræður með þátttöku Vesturlanda og alþjóðastofnana til að
ná sáttum milli úkraínskra stjórnvalda og Rússa.
■ Úkraína liðast smám saman í sundur. Rússar hafi Krímskaga á valdi sínu
til frambúðar og hertaka mögulega önnur svæði í austurhluta landsins.
Telja líklegast að Úkraína liðist í sundur
FAGNAR HERMÖNNUM Rússneskir hermenn streymdu inn á Krímskaga í gær, að sögn úkraínskra landamæravarða, þar sem deilurnar milli Rússlands og stjórnvalda í
Úkraínu náðu nýjum hæðum. Þessi mynd var tekin þar sem um 1.000 manns umkringdu úkraínska flotastöð nærri Simferopol. Alþjóðasamfélagið veltir því nú fyrir sér
hvernig bregðast megi við án þess að vopnuð átök brjótist út. NORDICPHOTOS/AFP