Fréttablaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 4
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
DÓMSMÁL
Hleruðu án heimildar
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að
greiða konu 300 þúsund krónur eftir
að sími hennar var hleraður án heim-
ildar af embætti Sérstaks saksóknara.
Ekki lá fyrir úrskurður um hlerun
síma konunnar. Vísbending sem lög-
regla byggði á þegar hún hóf hlerun
síma konunnar var sú að eiginmaður
hennar hafði beðið viðmælanda sinn
um að hringja í símanúmer hennar.
Sú ályktun ein og sér dugði ekki til
að heimila hlerun á síma hennar.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
8-15 m/s.
ÉL EÐA SLYDDUÉL Vestlæg átt með éljum eða slydduéljum næstu daga sunnan- og
vestanlands. Einhver úrkoma verður í dag um norðaustan- og austanvert landið en
úrkomulaust að mestu norðan til næstu daga.
1°
4
m/s
3°
6
m/s
3°
5
m/s
6°
10
m/s
Á morgun
Hvöss vestanátt syðra.
Gildistími korta er um hádegi
0°
-2°
-1°
-2°
-3°
Alicante
Basel
Berlín
19°
11°
10°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
7°
11°
7°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
6°
6°
18°
London
Mallorca
New York
11°
19°
-3°
Orlando
Ósló
París
25°
4°
9°
San Francisco
Stokkhólmur
15°
5°
4°
6
m/s
6°
6
m/s
5°
7
m/s
4°
10
m/s
0°
3
m/s
2°
3
m/s
-2°
4
m/s
2°
-1°
2°
3°
0°
VIÐSKIPTI Íbúðalánasjóður, stærstu bankar
og dótturfélög eiga 3.406 fasteignir. Þetta
kemur fram í samantekt sem spyr.is hefur
unnið.
Langflestar eignirnar eru í eigu Íbúða-
lánasjóðs og dótturfélags hans, Kletts, 2.634.
Íbúðalánasjóður átti 2.117 íbúðir í lok janúar,
þar af stóðu 197 þeirra auðar.
Klettur leigufélag er með 517 íbúðir á
sínum snærum og eru þær allar í útleigu.
Af íbúðunum sem stóðu auðar voru 20 á
höfuðborgarsvæðinu, 102 á Suðurnesjum og
37 á Vesturlandi.
Arion banki og dótturfélagið Landey eiga
236 fasteignir, af þeim flokkast 141 sem
íbúðarhúsnæði og þar af standa 42 eignir
auðar.
Landey á eina eign sem er íbúðarhæf en
stendur auð og bíður þess að verða seld.
Landey er auk þess með 16 eignir sem eru á
byggingarstigi.
Landsbankinn og dótturfélagið Hömlur
áttu 244 íbúðir um áramót. 116 stóðu tómar, í
leigu voru 76 og 52 voru á byggingarstigi.
Íslandsbanki og dótturfélag hans, Miðengi,
eiga 275 íbúðir en af þeim eru 126 í útleigu.
Bankinn áætlar að 159 eignir standi auðar,
séu á byggingarstigi, teljist ekki íbúðar hæfar
eða séu á sölu.
Á heimasíðu spyr.is segir að af þessum
3.406 eignum megi gera ráð fyrir að á milli
400 og 500 eiginir standi auðar. Langflestar
þeirra hafi áður verið í eigu einstaklinga.
johanna@frettabladid.is
KAUPTU FJÓRAR
FÁÐU SEX
HLEðSLA Í FERNU MEð SÚKKULAðIBRAGðI
40 lönd utan Íslands hafa notið þekkingar
sérfræðinga Íslenskra orkurannsókna
á undanförnum árum.
Níu af þeim verkefnum sem stofnunin
hefur komið að hafa verið í Afríku.
Heimild: Vefur ÍSOR
UTANRÍKISMÁL Næsti fundur vinnu-
hópa vegna endursamnings um
fjárframlög EES-ríkjanna til Þró-
unarsjóðs EFTA (Evrópska fríversl-
unarbandalagsins) er ráðgerður um
eða upp úr miðjum þessum mánuði.
Viðræður um greiðslur Íslands,
Noregs og Liechtenstein fyrir
áframhaldandi aðgang að innri
markaði Evrópu á næsta tímabili,
1. maí 2014 til 30. apríl 2019, hófust
22. janúar síðastliðinn.
Á tímabilinu sem nú er að ljúka
hafa greiðslur Íslands samsvar-
að um 1,5 milljörðum króna á ári
hverju, eða 7,8 milljörðum alls.
Hlutur Íslands í heildargreiðslum
hefur numið fimm prósentum og
Liechtenstein einu prósenti, meðan
Noregur hefur staðið undir 94 pró-
sentum heildargreiðslna. Kostnað-
ur EES/EFTA-ríkjanna fyrir tíma-
bilið sem nú er að ljúka nemur alls
998,5 milljónum evra, eða sem svar-
ar 155,5 milljörðum króna.
„Þessar viðræður eru hafnar
en þær eru á algjöru frumstigi
og engu hægt að svara á þessari
stundu um tímasetningar eða fjár-
hæðir,“ segir Urður Gunnarsdótt-
ir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins.
Lars-Erik Hauge, fjölmiðla-
fulltrúi sendinefndar Noregs hjá
Evrópusambandinu, segir að frá
því að samningsaðilar kynntu
upphaflegar kröfur á fyrsta fundi
í janúar hafi vinnuhópar hist tvisv-
ar. Stefnt sé að því að þeir fundi
aftur um miðjan mars. Eiginlegur
samningafundur hafi ekki verið
fastsettur. - óká
Samningar standa yfir um verð EES/EFTA-ríkja fyrir áframhaldandi aðgang að innri markaði Evrópu:
Næsti fundur haldinn um miðjan mánuð
Í janúarlok átti Gunnar Bragi Sveins-
son utanríkisráðherra fund með
Ingvild Næss Stub, aðstoðarevrópu-
málaráðherra Noregs, þar sem EES-
samningurinn og framtíð hans var
til umræðu. Utanríkisráðherra gerði
þá grein fyrir breyttum áherslum
nýrrar ríkisstjórnar í Evrópumálum
og lagði áherslu á mikilvægi EES-
samningsins, sem væri grunnurinn
að samstarfi Íslands við ESB.
➜ Áhersla lögð á EES
MUNUR Kílóið af íslenskri agúrku kost-
aði 420 krónur í Bónus en 714 krónur
hjá Samkaupum-Strax.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NEYTENDUR Allt að 218 prósenta
munur var á verði matvöru þegar
verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð
í matvöruverslunum nýverið.
Hæsta verðið var oftast í versl-
un 10/11, í meira en helmingi til-
vika. Vöruúrvalið reyndist best
í Fjarðarkaupum, þar sem 82 af
83 tegundum sem skoðaðar voru
fengust.
Mesti verðmunurinn var á app-
elsínum, sem kostuðu 157 krónur
kílóið hjá Samkaupum-Strax en
499 krónur hjá 10-11. Munurinn
er 218 prósent. Verðmunur á
ávöxtum og grænmeti var tals-
verður, að lágmarki 70 prósent.
Minnstur var verðmunurinn á
osti, viðbiti og mjólkurvörum. - bj
Verðkönnun ASÍ á matvöru:
Verðmunurinn
allt að 218%
ÍLS og bankar eiga 3.400 íbúðir
Talið er að á milli 400 og 500 íbúðir sem eru í eigu Íbúðalánasjóðs og banka og dótturfélaga þeirra standi auðar.
Bankarnir eiga nær 1.400 íbúðir en Íbúðalánasjóður á rúmlega 2.000. Flestar voru áður í eigu einstaklinga.
FRÁ REYKJAVÍK Íbúðalánasjóður og bankarnir eiga 3.406 fasteignir. Gera má ráð fyrir að af þeim standi á milli
400 og 500 eignir auðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íbúðalánasjóður og Klettur
2634
Arion banki og Landey Íslandsbanki og Miðengi Landsbanki og Hömlur
253 273 244
FASTEIGNIR Í EIGU SJÓÐA OG BANKA Heimild: spyr.is