Fréttablaðið - 04.03.2014, Qupperneq 6
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
UMHVERFISMÁL „Nauðsynlegt er að
skipuð verði sjálfstæð umhverfis-
nefnd innan sveitarfélagsins sem
lætur sig náttúru sveitarfélagsins
einhverju varða,“ segja fulltrúar
minnihlutans í bæjarstjórn Ölf-
uss þar sem samþykkt hefur verið
að senda breytingu á aðalskipu-
lagi Norðurhálsa til umsagnar hjá
Skipulagsstofnun.
Að því er kom fram á fundi bæj-
arstjórnar nær aðalskipulags-
breytingin til svæðis frá Hverahlíð
sem stækkar upp á Norðurhálsa
um 180 hektara. Aflétta á hverfis-
vernd og vatnsvernd að því svæði
sem iðnaðarsvæðið nær til.
„Ef rannsóknir leiða í ljós að
um nýtanlegt vinnslusvæði sé að
ræða, verða borholur á Norður-
hálsum tengdar gufuveitu Hvera-
hlíðarvirkjunar með safnæðum
að skiljustöðvum virkjunarinnar,“
segir um tillöguna.
Fulltrúar minnihlutans vísa til
aðalskipulags Ölfuss til ársins
2022 um að viðhalda eigi samfelld-
um, lítt skertum landslagsheildum
eins og framast sé kostur og á iðn-
aðarsvæðum sé fyrst og fremst
gert ráð fyrir umfangsmikilli iðn-
aðarstarfsemi eða starfsemi sem
geti haft í för með sér mengun.
„Í ljósi þessarar skilgreining-
ar er með öllu óskiljanlegt að
umhverfisþættir í aðalskipulags-
breytingunni séu allir settir í „0
kost“. Það eru með öðrum orðum
engin neikvæð áhrif samfara
þessum hugsanlegu framkvæmd-
um OR á Norðurhálsum,“ benda
fulltrúarnir á. „Er þetta einhver
brandari?“ spyrja þeir.
Þá benda fulltrúar minnihlutans
á að nýta eigi orkuna fyrir álver í
Helguvík og segja það ekki sam-
rýmast markmiðum aðalskipulags
um að orka sem unnin sé innan
Ölfuss nýtist fyrir atvinnulíf þar.
Samkvæmt orðum forseta bæjar-
stjórnar sé markmiðið að aðstoða
OR í vandræðum fyrirtækisins.
Fulltrúar meirihlutans segja
staðreyndavillur og rangan skiln-
ing í málflutningi minnihluta-
manna. Umhverfismat muni draga
fram í hvaða flokk umhverfis-
þættir falla. Minnkun á vatns-
og hverfisvernd verði innan við 1
prósent af heildarstærð verndar-
svæðisins.
Einnig segir meirihluti bæjar-
stjórnar að samskiptin við Orku-
veituna fari fram samkvæmt
eðlilegri stjórnsýslu. Fulltrúar
minnihlutans hafi slitið orð for-
seta bæjarstjórnar úr samhengi
„svo þau þjóni undarlegum mál-
flutningi þeirra“. Orkuveitunni sé
ekki hampað umfram aðra. „Hags-
munir íbúa sveitarfélagsins hafa
verið hafðir að leiðarljósi í þessu
máli sem öðrum.“ gar@frettabladid.is
Er þetta einhver
brandari?
Fulltrúar minnihlutans
í bæjarstjórn Ölfuss.
Verkir í hálsi og öxlum?
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi og bólgueyðandi við
verkjum í hálsi og öxlum!
HELLISHEIÐI Orkuveita Reykjavíkur stefnir að því að nýta orku úr borholum í Hverahlíð í Hellisheiðarvirkjun. MYND/OR
Segja engum hampað í Ölfusi
Bæjarstjórn Ölfuss sendir til umsagnar hjá Skipulagsstofnun breytingu á skipulagi til að Orkuveitan geti nýtt
heitt vatn á Norðurhálsum. Fulltrúar minnihlutans segja málið stríða gegn hagsmunum sveitarfélagsins sjálfs.
Hellisheiðarvirkjun
Ölfusá
Hverahlíð
Þjóðvegur 1
NÁTTÚRA „Klakann hefur tekið
upp, en það eru víða stórir klaka-
flákar eftir. Grasið þolir tvo til
þrjá mánuði undir klaka, og þang-
að erum við komin í dag,“ segir
Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar.
Hann segist hafa áhyggjur af
því að grasið sem enn liggur undir
ísnum verði fyrir kalskemmdum
og drepist.
„Við þolum það þótt það komi kal
á umferðareyjar, en það er verra
með boltavelli og í skrúðgörðun-
um,“ segir Þórólfur. Hann segist
búast við því að eitthvað verði um
graslausar skellur í vor, og líklega
verði brugðist við því með því að
sá grasfræjum í sárin.
Þótt borgarstarfsmenn sái í
kalsárin segir Þórólfur ljóst að
grasið muni aldrei líta vel út þetta
sumarið á þeim stöðum þar sem
kalskemmdir séu verulegar. Enn
sé þó of snemmt að spá um hvort
ástandið verði slæmt. Klakinn sé
óðum að minnka, en helst þurfi
góða hláku til að restin fari. - bj
Komið að þolmörkum fyrir gras sem legið hefur mánuðum saman undir ís:
Gætu þurft að sá fræjum í sárin
1. Hvar vilja sjálfstæðismenn sýna
fornrit Íslendinga í sumar?
2. Hvað hljómsveit, sem fór á ís árið
2004, snýr aftur?
3. Hvaða handboltaþjálfari var ráðinn
til tveggja félaga sama daginn?
SVÖR:
VEISTU SVARIÐ?
1. Í fundarsal borgarstjórnar Reykjavíkur.
2. Maus.
3. Ágúst Jóhannsson.
MENNTUN Sjö manns sóttu um
stöðu rektors við Háskólann á
Akureyri en umsóknarfrestur rann
út 28. febrúar.
Þeir sem sóttu um voru Anna
Elísabet Ólafsdóttir aðstoðarrekt-
or, Eyjólfur Guðmundsson hjá CCP,
Javier Sánchez Merina aðstoðar-
prófessor, Sigurður Kristins-
son prófessor, Sveinn Aðalsteins-
son framkvæmdastjóri, Sveinn
Viðar Guðmundsson prófessor og
Ögmundur Knútsson, forseti við-
skipta- og raunvísindasviðs HA. - fb
Háskólinn á Akureyri:
Sjö sóttu um
stöðu rektors
Hagkvæmasta lausnin til skemmri tíma virðist sú að
leiða gufu frá jarðhitasvæðinu í Hverahlíð niður í Hellis-
heiðarvirkjun og tryggja þannig full afköst virkjunarinnar
og tekjur til næstu ára. Það gefur okkur það tóm sem við
þurfum til þess að vinna að öðrum lausnum og varanlegri
bæði hvað gufuöflun og niðurdælingu á vinnsluvatni
varðar.
Heimild: Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, á
vef fyrirtækisins um kosti þess að leiða gufu frá Hverahlíð fimm
kílómetra að Hellisheiðarvirkjun.
Kostir fyrir OR við nýtingu í Hverahlíð
BJARNI
BJARNASON
LÖGREGLUMÁL Slökkviliðið á
höfuð borgarsvæðinu var kallað
út vegna heitavatnsleka á Baróns-
stíg um hádegisbilið í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu fór lögn í sundur
vegna framkvæmda við gatnamót
Hverfisgötu og Barónsstígs með
þessum leiðinlegu afleiðingum.
Óvíst er hversu mikið tjónið var
en slökkviliðsmenn voru í tvær
klukkustundir á vettvangi við að
ná bleytunni í burtu. - fb
Slökkvilið kallað á vettvang:
Vatnslögn fór
í sundur í húsi
við Barónsstíg
VATNSLEKI Slökkviliðsmennirnir eyddu
tveimur klukkustundum á vettvangi
í gær við að hreinsa upp vatn eftir
lekann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KLAKABÖND Gras þolir að liggja undir
klaka í tvo til þrjá mánuði, en eftir það
fer það að skemmast. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL