Fréttablaðið - 04.03.2014, Page 10
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Ólafur Jóhannsson
534 1020
TIL LEIGU
GLÆSILEGT HÚSNÆÐI
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkratrygging-
ar Íslands hófu um mánaðamótin
útgáfu rafrænna afsláttarkorta
vegna heilbrigðisþjónustu og hefur
útgáfu afsláttarkorta á pappír
alfarið verið hætt. Í tilkynningu
frá Sjúkratryggingum segir að
kortin hafi hingað til verið heim-
send, en því verður nú hætt.
Framvegis verður ekki nauðsyn-
legt að framvísa korti þegar leitað
er til læknis eða sjúkrastofnunar,
þar sem allir veitendur heilbrigðis-
þjónustu hafa rafrænan aðgang að
upplýsingum um útgefin afsláttar-
kort. - eb
Sjúkratryggingar Íslands:
Afsláttarkort nú
á rafrænu formi
HEILSA Reykskýli hefur verið reist fyrir
framan annan innganginn á fyrstu hæð
Kringlunnar. Framkvæmdin tengist endur-
nýjun á aðalinngöngunum fimm í húsið en sá
fyrsti var endurnýjaður fyrr á árinu. Skýlið
er upphitað og upplýst og kostaði á þriðju
milljón króna.
„Við höfum sett okkur það markmið við
endurnýjun á inngöngum í húsið að koma upp
svona aðstöðu þar sem annars vegar reyk-
ingamenn geta verið í skjóli og hins vegar að
þeir sem ganga um inngangana okkar geta
gert það án þess að ganga í gegnum eitthvert
reykjarkóf. Markmiðið er að koma til móts
við báða aðila,“ segir Sigurjón Örn Þórsson,
framkvæmdastjóri Kringlunnar.
Kvartað hefur verið yfir reykingamönnum
fyrir framan innganga Kringlunnar, sérstak-
lega á neðri hæðinni. „Við höfum fengið flest-
ar athugasemdir við inngangana sem eru ekki
undir beru lofti,“ segir Sigurjón Örn og bætir
við að ætlunin sé að reisa annað reykskýli
á fyrstu hæðinni síðar á þessu ári. Hinum
tveimur verði bætt við seinna.
„Þetta kostar allt skildinginn en ég held
að það muni skila sér þegar þetta er komið í
gagnið alls staðar í ánægðari viðskiptavinum,
bæði reyklausum og þeim sem reykja.“ - fb
Reykskýli sem kostaði á þriðju milljón króna hefur verið reist og annað er væntanlegt:
Ekkert reykjarkóf lengur við Kringluna
STJÓRNSÝSLA Aðalfundur Félags
íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA)
gagnrýnir lagafrumvarp innanrík-
isráðherra sem veitir ríkislögreglu-
stjóra heimildir til að afla persónu-
legra upplýsinga um flugmenn.
Um er að ræða upplýsingar um
hvort viðkomandi eigi aðild að
einkamáli fyrir dómstólum, sé á
skrá Creditinfo yfir fjárhagsmál-
efni og lánstraust auk upplýsinga
um hjúskaparstöðu viðkomandi.
Sambærilegra upplýsinga má afla
um maka eða sambýling.
Öflun þessara upplýsinga er
liður í bakgrunnsskoðun á starfs-
mönnum sem fara í gegnum Kefla-
víkurflugvöll, til að tryggja öryggi
og gæta almannahagsmuna.
Hafsteinn Pálsson, formaður
FÍA, segir eðlilegt að bakgrunns-
athuganir séu gerðar til að sann-
reyna hver viðkomandi er og
athuga hvort hann hafi hlotið dóm
en hér sé gengið of nærri friðhelgi
einkalífsins.
„Ég skil ekki hvernig það varð-
ar almannaöryggi hvort ein-
hver standi í forræðisdeilu, eigi í
nágrannaerjum eða hversu mikið
viðkomandi skuldi í húsinu sínu.
Það gerir flugmanninn ekki að
óheiðarlegum eða hættulegum
manni,“ segir Hafsteinn.
FÍA kærði þessar athuganir til
Persónuverndar þegar þær birt-
ust fyrst á eyðublaði félagsmanna
árið 2012. Persónuvernd úrskurð-
aði fyrir ári að öflun þessara upp-
lýsinga væri ríkislögreglustjóra
óheimil á grundvelli ákvæða
mannréttindalaga um friðhelgi
einkalífsins og rétt til atvinnu.
Hafsteinn segir viðbrögð stjórn-
valda við þeim dómi vera að lög-
leiða þessar persónurannsóknir.
„Ríkislögreglustjóri fullyrð-
ir að verið sé að uppfylla reglur
ESB en þær reglur hef ég hvergi
séð. Samkvæmt frumvarpinu mun
Ísland ganga mun lengra en önnur
Evrópuríki í persónunjósnum við
framkvæmd bakgrunnsathugana.
Þetta minnir á ástandið sem var
í Austur-Evrópu á tímum kalda
stríðsins.“
Hann segir að með frumvarp-
inu sé valtað yfir úrskurð Pers-
ónuverndar. Einnig að um mikið
hagsmunamál sé að ræða þar sem
flugmenn séu háðir því að fá sam-
þykkta bakgrunnsskoðun til að
geta stundað sína atvinnu.
„Þetta varðar starfsöryggi
og afkomu félagsmanna og fjöl-
skyldna þeirra. Samt sem áður var
ekki haft samband við eitt einasta
hagsmunafélag við gerð frum-
varpsins og leitað álits.“
Í svari sem birtist á vef Ríkislög-
reglustjóra er fullyrðingu FÍA um
aðför að starfsöryggi og afkomu
félagsmanna hafnað og áréttað að
bakgrunnsathuganir „eru til þess
ætlaðar að efla öryggi í flugi og
á flugvöllum og eru samkvæmt
alþjóðakröfum um flugvernd“.
Endurskoða þurfi lagaheimild-
ir er varða bakgrunnsathuganir
og kveða skýrt á um hvað skuli
athuga hjá viðkomandi og hvaða
ástæður geta valdið neikvæðri
umsögn. erlabjorg@frettabladid.is
Gagnrýna „persónunjósnir“
Í nýju frumvarpi eru ríkislögreglustjóra veittar auknar heimildir til bakgrunnsskoðunar á flugmönnum. Geng-
ið er gegn úrskurði Persónuverndar og formaður FÍA segir eftirlit minna á Austur-Evrópu á kaldastríðsárunum.
Nýlegt dæmi af félagsmanni FÍA sýnir hversu alvarlegar afleiðingar bak-
grunnsskoðun getur haft á líf og starf flugmanna.
Flugmaðurinn svaraði spurningu um hvort hann hefði einhvern tímann
tekið þátt í ólöglegu athæfi. Hann taldi sig þurfa að útskýra að hann hefði
tekið gengislán hjá Íslandsbanka, sem síðar voru dæmd ólögleg.
Í framhaldi af því var hann kallaður á fund þar sem hann útskýrði betur
hlið sína og baðst afsökunar á misskilningi. Í kjölfarið var honum samt
sem áður hafnað um bakgrunnsskoðun. Það þýðir að hann hafði ekki leyfi
til að fara í gegnum Keflavíkurflugvöll og stóð þar af leiðandi frammi fyrir
því að geta ekki stundað starf sitt.
FÍA kærði málið til innanríkisráðuneytisins sem sagði höfnunina ómál-
efnalega og var hún dregin til baka.
„Þetta dæmi sýnir að ríkislögreglustjóri stendur ekki faglega að at-
huguninni og við óttumst þessi vinnubrögð,“ segir Hafsteinn. „Með
auknum heimildum fást fleiri fletir sem gætu haft áhrif á bakgrunns-
skoðun. Þetta eru atriði sem hafa ekkert með flugöryggi að gera en ógna
um leið verulega starfsöryggi flugmanna.“
Óvönduð vinnubrögð ríkislögreglustjóra
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Til að flugmenn geti farið um Keflavíkurflugvöll þurfa
þeir að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
SKÁK Fimmtugasta Reykjavíkur-
skákmótið hefst í Hörpu í dag og
stendur yfir til 12. mars. Í tilefni
afmælisins verða ýmsar upp-
ákomur.
Heiðursgestur verður Garrí
Kasparov, fyrrverandi heims-
meistari í skák, og verður hann
á landinu 9.-11. mars. Hann
ætlar að heimsækja leiði Bobbys
Fischer á 71. fæðingardegi
Fischers, 9. mars. Kasparov mun
einnig árita bækur fyrir skák-
áhugamenn í Hörpu 10. mars.
Búist er við metþátttöku í mótinu.
Gera má ráð fyrir að keppendur
verði á bilinu 260 til 270 talsins,
frá um 45 löndum. Meðal kepp-
enda eru 27 stórmeistarar og
þrjátíu alþjóðlegir meistarar. - fb
Reykjavíkurskákmótið:
Garrí Kasparov
heiðursgestur
GARRY KASPAROV Heimsmeistarinn
fyrrverandi verður heiðursgestur.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ég skil
ekki hvernig
það varðar
almanna-
öryggi hvort
einhver
standi í
forræðisdeilu, eigi í
nágrannaerjum eða
hversu mikið viðkomandi
skuldi í húsinu sínu.
Hafsteinn Pálsson, formaður FÍA
REYKSKÝLIÐ Skýlið við inngang Kringlunnar er bæði
upphitað og upplýst. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VIÐSKIPTI Hlutabréfavelta í Kaup-
höllinni jókst um 28 prósent milli
janúar og febrúar, samkvæmt yfir-
liti sem Kauphöllin birti í gær.
Aukning milli ára nemur 58 pró-
sentum. Í febrúar í fyrra námu við-
skiptin um 1.006 milljónum á dag.
Viðskipti með hlutabréf í Kaup-
höllinni í nýliðnum mánuði námu
31.892 milljónum króna eða sem
svarar 1.595 milljónum á dag.
Mest voru viðskipti með bréf
Icelandair Group, 14,6 milljarðar.
- óká, fbj
Dagsvelta var 1,6 milljarðar:
Hlutabréfavelta
jókst um 58%
MATVÆLI Gylfi Magnússon, dósent
við viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands og fyrrverandi efnahags-
og viðskiptaráðherra, furðar sig
á orðum formanns Bændasam-
taka Íslands, Sindra Sigurgeirs-
sonar, um sóknarfæri í útflutn-
ingi matvæla.
Í ræðu Sindra kom fram að inn-
flutningur á matvöru nemi um
fimmtíu milljónum króna á dag
umfram útflutning.
„Staðreyndin er að við flytjum
út fyrir meira en 600 milljónir
króna á dag umfram innflutn-
ing,“ skrifaði Gylfi á Facebook-
síðu sína. Stærsti hluti matvæ-
laútflutnings Íslendinga skrifast
á sjávarútvegsafurðir. „Við flytj-
um út um tvö tonn á ári fyrir
hvern Íslending og varla nokkur
þjóð í heimi sem gerir betur en
það.“
Í samtali Vísis við Gylfa árétt-
aði hann undrun sína á málflutn-
ingnum og sagði: „Mér finnst
þetta mjög skrýtið af því það er
ekki eins og þetta sé leyndarmál.
Þetta eru opinberar hagtölur um
útflutning.“ - ss
Gylfi Magnússon hjá viðskiptafræðideild HÍ:
Undrast ummæli
GYLFI MAGNÚSSON Furðar sig á
orðum formanns Bændasamtaka
Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA