Fréttablaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2014 | FRÉTTIR | 11
OSCAR PISTORIUS Réttarhöldin yfir
Oscar Pistorius halda áfram í dag.
MYND/AFP
ÁSKORUN TIL HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
OG ALLRA ALÞINGISMANNA
VEGNA HÓPLEITAR AÐ RISTILKRABBAMEINI
VIÐSKIPTI Sala á nýjum bílum
jókst um 30,3 prósent í febrúar.
Nýskráðir fólksbílar í mánuð-
inum voru 495 samanborið við
380 í sama mánuði 2013, sam-
kvæmt fréttatilkynningu Bíl-
greinasambandsins.
Samtals hafa verið skráðir 1.037
fólksbílar þar sem af er árinu. Það
er 23,5 prósenta aukning frá fyrra
ári. Þar af hafa verið nýskráðir
293 bílaleigubílar
„Bílasala heldur áfram að aukast
og er aukningin aðallega í sölu til
einstaklinga og fyrirtækja,“ segir
Özur Lárusson, framkvæmdastjóri
Bílgreinasambandsins, í tilkynn-
ingunni. - hg
Bílasala jókst um 23,5%:
Nýskráningum
fjölgar um 30%
SKOÐAÐ Endurnýjun bílaflotans virðist
vera í ágætum farvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DANMÖRK Ungir prestar í Dan-
mörku vilja fá að hafa guðsþjón-
ustu á öðrum dögum en á sunnu-
dögum.
Þeir vilja ekki bara hefðbundn-
ar messur og nefna sem dæmi
hugleiðingarmessur, spagettí-
messur eða annars konar messur
sem söfnuðurinn vill.
Ungu prestarnir benda á að
miklu fleiri sæki óhefðbundnar
messur á virkum dögum heldur
en sunnudagsguðsþjónustur og
vilja losna við kröfuna um þær
síðarnefndu. Frá þessu er greint
í frétt á vef Kristilega dag-
blaðsins. - ibs
Ungir danskir prestar:
Messur verði á
virkum dögum
NOREGUR Prófarkalesara hjá
bókasafni blindra í Noregi, sem
var sagt upp þegar prófarkalestr-
inum var úthýst til Indlands,
hafa verið dæmdar 76 milljónir
íslenskra króna í bætur.
Yfirmaður prófarkalesarans
sagði fyrir rétti að prófarkalestur-
inn væri auðveldari fyrir Indverja
sem ekki kynnu norsku. Á það
féllst rétturinn ekki.
Yfirmaðurinn hélt því fram að
lesturinn í Indlandi væri sjálf-
virkur. Verjandinn fékk upplýs-
ingar frá Indlandi um að svo væri
ekki. - ibs
Starfi úthýst til Indlands:
Prófarkalesari
fær tugi millj-
óna í bætur
VERÐLAUN Samskip hafa verið
útnefnd Menntafyrirtæki ársins
2014. Þetta er í fyrsta skipti sem
þessi verðlaun eru veitt. Auk Sam-
skipa voru Isavia, Landsbankinn
og Rio Tinto Alcan á Íslandi til-
nefnd. „Þetta er mikill heiður og
um leið viðurkenning á því góða
starfi sem unnið hefur verið á
þessu sviði hjá Samskipum,“ segir
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam-
skipa.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, afhenti
verðlaunin á Hilton Reykjavík Nor-
dica, þar sem fram fór Mennta-
dagur atvinnulífsins í fyrsta sinn.
Samtök atvinnulífsins standa að
deginum ásamt aðildarfélögum
sínum, LÍÚ, SVÞ, SF, SFF, SI, Sam-
orku og SAF. - fb
Menntafyrirtæki ársins:
Samskip bar
sigur úr býtum
SUÐUR-AFRÍKA Suður-afríski
íþróttamaðurinn Oscar Pistorius
sagðist fyrir dómi í gær vera sak-
laus af ásökunum saksóknara um
að hafa myrt Reevu Steenkamp,
kærustu sína, á Valentínusar-
daginn í fyrra.
„Það var eitthvað hræðilegt að
gerast í húsinu,“ sagði Michelle
Burger, vitni í málinu, fyrir rétti
í gær. Burger segist hafa heyrt
ógnvænleg óp og skothvelli frá
íbúð þeirra Pistorius og Steen-
kamp.
„Hún rak upp skelfingaröskur
og bað um hjálp. Síðan heyrði
ég karlmann hrópa þrisvar eftir
hjálp,“ sagði Burger.
„Skömmu eftir óp hennar
heyrði ég fjóra skothvelli,“ bætti
Burger við.
Pistorius sat svipbrigðalaus
í réttarsalnum í gær og horfði
niður í gólfið. Hann hefur alla tíð
haldið því fram að dauði Steen-
kamp hafi verið hræðilegt slys, en
hann taldi sig vera að skjóta inn-
brotsþjóf sem hefði falið sig inni
á klósettinu.
Steenkamp varð fyrir þremur
skotum sem hæfðu hana í hand-
legg, mjöðm og höfuð. Hún var
úrskurðuð látin á vettvangi.
Takist ákæruvaldinu að sýna
fram á ásetning Pistorius um að
myrða kærustu sína gæti hann átt
yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
Réttarhöldin munu standa yfir
í þrjár vikur hið minnsta, en ráð-
gert er að þau muni taka töluvert
lengri tíma í ljósi þess að 107 vitni
hafa verið kölluð til í málinu.
Réttarhöldunum er sjónvarpað
beint í Suður-Afríku og þau halda
áfram í dag. - js
Aðalmeðferð hafin í máli íþróttamannsins Oscars Pistorius vegna meints morðs á kærustu sinni:
Nágranni heyrði skelfingaröskur Reevu