Fréttablaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 18
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR NÍELSDÓTTIR
Hagamel 44, Reykjavík,
lést í Sóltúni 26. febrúar 2014. Hún verður
jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Reykjavík
miðvikudaginn 5. mars 2014 kl. 15.00.
Pétur Guðmundarson Erla Jóhannsdóttir
Níels Guðmundsson Jónanna Björnsdóttir
Snorri Guðmundsson Bolette Steen Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
ÓLÖF COOPER
Gullsmára 7, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 26. febrúar 2014. Útför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 7. mars 2014, kl. 13.00.
Gylfi Einarsson
Margrét Björnsdóttir
Konráð Gylfason Anna María Harðardóttir
Margrét Gylfadóttir Ólafur Sveinsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
STEINUNN J. STEINSEN
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
laugardaginn 1. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Rúnar Steinsen Guðrún Guðmundsdóttir
Steinn Steinsen Ásta María Björnsdóttir
Anna Steinsen Sigurður Már Einarsson
Ragnheiður Steinsen
Rakel Steinsen
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
ARNDÍS BJARNADÓTTIR
tannsmiður,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Bragi Magnússon
Aðalheiður G. Kristjánsdóttir
Birna Kristjánsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSBJÖRG RAGNARSDÓTTIR
frá Hellissandi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
föstudaginn 28. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristinn Kársson Ingibjörg Leósdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
ÓSKAR LÁRUS TRAUSTASON
varð bráðkvaddur á heimili sínu mánudaginn
24. febrúar. Útför hans fer fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju fimmtudaginn 6. mars kl. 15.00.
Guðrún Pálsdóttir
Trausti Ó. Lárusson Hanna Kjeld
Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason
Anna Kristín Traustadóttir
Sigrún Traustadóttir
Þórunn Sigurðardóttir Sigurður Knútsson
Elín Ósk, Trausti, Svava Dís, Bjarni, Páll Arnar og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR UNNAR ÞORFINNSSON
netagerðarmeistari,
Grænatúni 6, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 26. febrúar síðastliðinn. Útför fer fram
fimmtudaginn 6. mars kl. 13.00 frá Kópavogskirkju.
Stella Guðvarðardóttir
Margrét Þórðardóttir
Torfi Þórðarson Kristjana Ólafsdóttir
Þorfinnur Unnar Þórðarson
Bentína Þórðardóttir Reynir Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN ÞENGILSDÓTTIR
Mýrarvegi 115, Akureyri,
lést miðvikudaginn 26. febrúar. Útförin fer
fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 7. mars
kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunarheimilið Hlíð. Sérstakar
þakkir sendum við til starfsfólks Reynihlíðar fyrir góða umönnun.
Ásgrímur Tryggvason
Tryggvi Ásgrímsson Guðrún Agnes Sigurðardóttir
Arnheiður Ásgrímsdóttir Hafberg Svansson
Ásrún Ásgrímsdóttir Baldvin Stefánsson
Þengill Ásgrímsson Selma Hauksdóttir
Hákon Ásgrímsson Anna Elín Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Aríurnar eru úr óperum eftir Verdi og Strauss og ástin
er í brennidepli í þeim öllum,“ segir Helga Rós Indriða-
dóttir sópran sem er komin suður yfir heiðar til að syngja
á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag fyrir höfuðborgar-
búa. Ekki snýst efnið þó um eintóma sælu að hennar sögn
heldur um mismunandi leiðir stoltra kvenna til að höndla
vonbrigði ástarinnar og endurupplifa góða tímann.
„Við tökum eina aríu úr óperettunni Leðurblökunni, þar
eru ungverskir taktar, kampavín og líkjör. Hún er heldur
ekkert af baki dottin hún Rosalinde sem við sögu kemur
þar,“ segir Helga Rós glaðlega.
Antonía Hevesi stendur fyrir þessum viðburði eins og
öðrum hádegistónleikum í Hafnarborg sem jafnan eru
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Þeir eru styrktir af Sam-
félagssjóði Rio Tinto Alcan og eru öllum opnir meðan
húsrúm leyfir. Húsið verður opnað klukkan 11.30. - gun
Syngur um ástir stoltra kvenna
Helga Rós Indriðadóttir sópran fl ytur aríur eft ir Verdi og Strauss í dag við undirleik Ant-
oníu Hevesi píanóleikara. Tónleikarnir kallast Andlit ástarinnar og hefj ast klukkan 12.
ANTONÍA OG HELGA RÓS „Við tökum eina aríu úr óperettunni
Leðurblökunni, þar eru ungverskir taktar, kampavín og líkjör,“ segir
söngkonan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kvæðið Hallmundarkviða er talið lýsa
eldgosi og hraunrennsli og undrun
landnámsmanna á slíkum fyrirbærum.
Árni Hjartarson jarðfræðingur segir
að frá náttúrufræðilegu sjónarmiði sé
kviðan einn merkilegasti texti fornrit-
anna og ætlar að halda hádegiserindi
um hana í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safnsins í dag. Þar setur hann fram
kenningar um tímasetningu eldsum-
brotanna, áhrif þeirra á byggðir og bú
og um aldur kvæðisins.
„Hallmundarkviða hefur verið talin
ort á 12. til 13. öld en það kemur í ljós
þegar farið er að skoða hana nánar að
hún er mun eldri. Mín kenning er sú
að hún sé frá 10. öld,“ segir Árni sem
giskar á að kvæðið hafi varðveist í
munnlegri geymd í tvær til þrjár aldir
áður en það var skráð.
„Kvæðið endurspeglar reynslu land-
námsmanna af jarðeldum. Þegar þeir
komu til Íslands frá Skandinavíu og
Bretlandseyjum þekktu þeir ekki eld-
gos, nema hugsanlega af sögusögnum
sunnan úr heimi. Þeir höfðu aldrei
upplifað slíkt. En strax á landnáms-
öld verða þeir vitni að eldgosum og
og velta fyrir sér hvaða reginöfl valdi
þeim og telja ljóst að það séu jötnar og
æsir sem þar takist á.“
Nokkur ár eru síðan fræðimenn tóku
að velta fyrir sér tengslum Hallmund-
arkviðu og Hallmundarhrauns, að sögn
Árna. „Fram að því var haldið að Hall-
mundarhraun hefði runnið fyrir land-
nám en þegar gerðar voru rannsóknir
á öskulögum þar þóttust menn sjá að
það væri runnið á landnámstíð. Þá fór
menn að gruna að tengsl væru milli
kvæðisins og eldgossins.“
Árni segir þetta fráleitt í fyrsta sinn
sem jarðfræði og kveðskapur sé sett í
samhengi. „Margir jarðfræðingar hafa
blandað saman sínum fræðum og sögu
þjóðarinnar,“ segir hann og nefnir Sig-
urð Þórarinsson og Guðrúnu Larsen og
öskulagarannsóknir þeirra sem dæmi.
Höfundur Hallmundarkviðu hefur
verið óþekktur hingað til en Árni
kveðst ætla að upplýsa skoðanir sínar
á því leyndarmáli í fyrirlestrinum í
dag. Ókeypis er inn og allir velkomnir.
gun@frettabladid.is
Sambland af jarðfræði,
sögu og kveðskap
Árni Hjartarson jarðfræðingur heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafninu í dag klukkan 12 um
tengsl Hallmundarhrauns og hins forna og torræða kvæðis Hallmundarkviðu.
JARÐFRÆÐINGURINN Margir jarðfræðingar hafa blandað saman sínum fræðum og sögu þjóðarinnar,“ segir Árni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL