Fréttablaðið - 04.03.2014, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2014 3íslandsmót iðn- og verkgreina 2014 ●
Grunnskólanemendum
gefst kostur á að taka
þátt í ratleik um svæðið í
Kórnum. Í lok hvers dags
verða dregnir út heppnir
vinningshafar og birtast
nöfn þeirra á heimasíðu
verkiðnar, www.verkidn.is.
Hópstjórar fá ratleikinn
í hendur áður en komið er inn á
svæðið. Fjórar útgáfur verða af
ratleiknum svo að þátttakendur
dreifist betur um svæðið.
Miðast skipulag leiksins við
uppbyggingu svæðisins.
Leikurinn fer þannig
fram að nemendur mega
prófa, skoða eða leita svara
við nokkrum spurningum
og fá stimpil í lok hvers
verkefnis. Áður en heim er
haldið skila nemendur leiknum
vel merktum nafni og skóla nærri
útgangi í Kórnum.
Ratleikur í Kórnum
Verkiðn efnir til samkeppni meðal nemenda 8. til
10. bekkjar grunnskóla sem heimsækja Kórinn dag-
ana 6. til 8. mars.
Verkefnið á að fjalla um upplifun nemenda af
heimsókn sinni í Kórinn. Dæmi um heiti er t.d. ÍS-
LANDSMÓT IÐN- OG VERKGREINA OG FRAM-
HALDSSKÓLAKYNNINGIN: Upplifun mín af
því sem ég sá. Hefur heimsóknin áhrif á náms- og
starfsval mitt í framtíðinni?
Þeir grunnskólar sem ákveða að taka þátt í keppn-
inni ákveða útfærsluna sjálfir. Dæmi: Ritgerð eða
myndband. Eða einstaklings- eða hópverkefni (2 til
3 saman).
Dómnefnd í hverjum skóla fyrir sig velur þrjú
bestu verkefnin og sendir þau inn til Verkiðnar.
Dregið verður um veglega vinninga. Frekari upp-
lýsingar má sjá á www.verkidn.is.
Verkefnasamkeppni fyrir unglinga
● KEPPT VERÐUR Í EFTIRTÖLDUM GREINUM Á ÍS
LANDSMÓTI IÐN OG VERKGREINA:
Sjúkraliðar, kjötiðn, rafvirkjun, rafeindavirkjun, grafísk miðlun, skrúð-
garðyrkja, blómaskreytingar, málaraiðn, pípulagnir, trésmíði, bakaraiðn,
snyrtifræði, gullsmíði, hársnyrtiiðn, veggfóðrun og dúkalögn, bílamálun,
bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, leikjaforritun, framreiðsla, matreiðsla,
bilanagreining kælikerfa, vefhönnun og málmsuða.
● EFTIRFARANDI GREINAR VERÐA SÝNINGARGREINAR:
Trébátasmíði, múrverk, hönnun vökvakerfa, fataiðn og ljósmyndun.
● EFTIRFARANDI FRAMHALDSSKÓLAR OG AÐRAR
NÁMSSTOFNANIR VERÐA Á STÓRU FRAMHALDS
SKÓLAKYNNINGUNNI:
Vísindasmiðja HÍ, Ökuskólinn, Rafiðnaðarskólinn (staðsett á keppnis-
svæði), Vinnueftirlitið, Iðan, Iðnú, Kvennaskólinn í Reykjavík, Myndlistaskól-
inn í Reykjavík, Fisktækniskóli Íslands, Tækniskólinn – Skóli atvinnulífsins,
Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í
Reykjavík, Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Námsflokkar
Reykjavíkur, Fashion Academy Reykjavík, Fjölsmiðjan, Menntagátt og Félag
náms- og starfsráðgjafa, Snyrtiakademían, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ,
Verzlunarskóli Íslands, Erasmus +, Flensborg, Fjölbrautaskóli Suðurnesja,
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Iðnskólinn
í Hafnarfirði, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn við Ármúla,
Landbúnaðarháskóli Íslands, Borgarholtsskóli og Menntaskólinn við Sund.
ÞETTA GETUR ÞÚ
Framtíðin er þín
Starfsnám á Íslandi er fjölbreytt og nýtist á öllum sviðum atvinnulífsins. Starfsnám er skapandi og skemmtilegt nám. Því fylg ja oft alþjóðleg starfsréttindi sem opna möguleika á störfum
erlendis. Hugsaðu um sjálfa(n) þig, veldu nám sem veitir ótal tækifæri. Kynntu þér málið nánar á WWW.MENNTAGATT.IS
Starfsmenntun gefur forskot þegar komið er út á vinnumarkaðinn.
VEFSMÍÐI
LEIKLIST
GULL- OG
SILFURSMÍÐI
TÖLVUFRÆÐI
SNYRTIFRÆÐI
FATATÆKNI
HREYFIMYNDAGERÐ
MARGMIÐLUNARFRÆÐI
HÁRSNYRTIIÐN
HLJÓÐTÆKNI
RAFEINDA-
VIRKJUN
PRENTUN
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Myndefni:
Almenn hönnun, fatatæknir, kjólasaumur, klæðskurður, listnám, fatahönnun, gull- og silfursmíði, myndlist, hársnyrtiiðn, snyrtifræði, margmiðlunarhönnun, vefsmíðar, hreyfimyndagerð,
teiknimyndagerð, leiklist, bókband, bókasafnstækni, grafísk miðlun, upplýsinga- og fjölmiðlatækni, ljósmyndun, prentun, tölvufræði, húsasmíði, húsgagnasmíði, húsgagnabólstrun, málaraiðn,
múraraiðn, pípulagnir, tækniteiknun, veggfóðrun og dúkalögn, sjúkraliði, lyfjatæknir, fótaaðgerðafræði, tanntæknir, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun, flugvirkjun, einkaflugmaður,
hljóðtækni, kvikmyndasýningastjórn, rafeindavirkjun, rafvélavirkjun, rafvirkjun, rafveituvirkjun, blikksmíði, rennismíði, stálsmíði, vélstjórn, vélvirkjun, skipstjórn, bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn,
matreiðsla, matartækni, kjötskurður, slátrun, félagsliði, félagsmála- og tómstundanám, verslunarnám, skrúðgarðyrkja, blómaskreytingar, búfræði, leikskólaliði.