Fréttablaðið - 04.03.2014, Qupperneq 26
4. MARS 2014 ÞRIÐJUDAGUR6 ● íslandsmót iðn- og verkgreina 2014
Áfangaskóli með bóknám til stúdentsprófs, starfsnám
í heilbrigðisgreinum, viðbótarnám til stúdentsprófs,
sérnámsbraut og fjarnám.
Áhersla er lögð á hvetjandi námsumhverfi, fjölbreytt náms-
úrval og námsmat, sveigjanlega kennsluhætti og framúrskar-
andi þjónustu.
Skólinn býr við framúrskarandi aðstöðu fyrir nemendur og
starfsfólk og er í alfaraleið. Lögð er áhersla á öfluga stoðþjónustu
við nemendur þar sem hæfileikar hvers og eins nemanda fá að
njóta sín.
BÓKNÁM
Skólinn býður upp á hefðbundið nám til stúdentsprófs á félags-
fræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskipta- og hag-
fræðibraut. Þetta nám er undirbúningur fyrir háskólanám auk
þess sem stúdentsprófið nýtist þeim sem hafa hug á annars
konar námi eða þátttöku í atvinnulífinu. Einnig er í boði nám á
almennri námsbraut sem er sniðin að þörfum þeirra sem hafa
ekki ákveðið á hvaða braut þeir vilja stunda nám eða fullnægja
ekki inntökuskilyrðum sem krafist er á aðrar brautir skólans.
STARFSNÁM
Heilbrigðisskólinn er kjarnaskóli í heilbrigðisgreinum á framhalds-
skólastigi og leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt starfsnám
á heilbrigðissviði sem er ávallt í takt við þarfir samfélagsins. Nám
í Heilbrigðisskólanum veitir fjölbreytt starfsréttindi innan og utan
stofnana auk þess að undirbúa nemendur fyrir frekara nám í heil-
brigðisgreinum. Í boði er nám á sjúkraliðabraut, tanntæknabraut,
lækna- og heilbrigðisritarabraut, lyfjatæknabraut og heilsunudd-
braut. Einnig er í boði framhaldsnám á fjórða þrepi framhalds-
skólans fyrir sjúkraliða og lyfjatækna. Nemendur sem ljúka starfs-
námi geta lokið viðbótarnámi til stúdentsprófs.
FJARNÁM
Frá sumrinu 2002 hefur FÁ boðið upp á fjarnám en um 100 áfang-
ar eru kenndir í fjarnámi og stunda að jafnaði 1.400 nemendur í
fjarnámi við skólann. Fjarnámið hefur það markmið að sem flestir
geti stundað það óháð stað og stund.
FÉLAGSLÍF
Félagslíf nemenda er fjölbreytt og öflugt og er áhersla lögð á
virka þátttöku nemenda. Allir nemendur eiga að geta fundið sér
hlutverk í félagslífinu sem fellur að áhugasviði hvers og eins.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Í Iðnskólanum í Hafnarfirði er í boði nám á
mörgum spennandi brautum.
Iðnnám hefur alla tíð verið aðalsmerki skólans enda
eftir sótt nám í góðu samstarfi við atvinnulífið. Nýjasta
viðbótin í námsframboði skólans er stúdentspróf með
fjölbreytilegu verklegu vali af þrem línum, félagsvísinda-
línu, náttúrufræðilínu og línu með opnu vali. Nemendur
á stúdentsbraut fá góða innsýn í valda starfsgrein sem
er dýrmætur undirbúningur undir frekara nám.
Í iðngreinum er starfsþjálfun á vinnustað hluti af
náminu. Nemendur sem ljúka prófi í iðngrein og taka
stúdentspróf hafa öðlast mjög góðan undirbúning
fyrir nám á háskólastigi í tæknigreinum. Öflugt félags-
líf er í skólanum en nemendafélagið stendur reglu-
lega fyrir ýmsum viðburðum yfir veturinn. Iðnskólinn
er rótgróinn skóli í hjarta Hafnarfjarðar sem státar af
frábærum tækjabúnaði, vel menntuðum og reynslu-
miklum kennurum og starfsfólki sem hefur mikla
sérþekkingu á sínu sviði.
Iðnskólinn í Hafnarfirði
Fagmennska - Virðing - Þekking
Í Hótel- og matvælaskólanum í
MK er boðið upp á fjölbreytt nám í
matvælagreinum.
Nemendum sem eru að ljúka 10. bekk stendur
til boða nám á almennri braut matvælagreina
en þar fá nemendur innsýn í nám bakara, fram-
reiðslumanna (þjóna), kjötiðnaðarmanna og
matreiðslumanna (kokka). Brautin hefur verið
mjög vinsæl undanfarin ár og færri komast að
en vilja. Eftir eins árs nám velja nemendur iðn-
grein og sækja um námssamning hjá fyrirtæki
í matvæla- og veitingagreinum. Námstíminn
eftir það skiptist á milli skólans og vinnustaðar-
ins. Nemendur eru að jafnaði tvær annir í skól-
anum eftir að þeir hafa lokið náminu á almennu
brautinni og ljúka námi sínu á þremur til fjórum
árum með burtfararprófi og sveinsprófi í sinni
grein. Að námi loknu eru nemendur fullgildir
fagmenn sem geta hafið störf í greinum sínum
en mjög góð atvinnutækifæri eru í matvæla-
og veitingagreinum í dag. Hvað varðar annað
námsframboð í Hótel- og matvælaskólanum þá
er um nokkra möguleika að ræða.
Hótel- og matvælaskólinn í
Menntaskólanum í Kópavogi
● Bygginga- og
mannvirkjagreinar
● Húsasmíði
● Húsgagnasmíði
● Tréskipasmíði
● Pípulagnir
● Háriðnir
● Listnám
● Hönnunarlína
● Handverkslína
● Málmiðnir
● Rennismíði
● Stálsmíði
● Vélvirkjun
● Grunnnám bíliðna
● Rafiðnir
● Starfsbraut
● Stúdentsbraut
● Náttúruvísindalína
● Félagsvísindalína
● Opið val
● Tækniteiknun
● Tengibraut
NÁMSBRAUTIR IÐNSKÓLANS:
NEMENDUR GETA LAGT STUND Á:
● Iðnstúdentsnám
● Matsveinanám
● Matartæknanám
● Meistaranám að loknu sveinsprófi
● Hótelstjórnunarnám
Eins og segir hér að framan þá er fjöl-
breytt námsframboð í skólanum. Hefur
skólinn að bjóða frábæra aðstöðu til
kennslu í öllum matvælagreinum og
er hann vel tækjum búinn. Allir sem
áhuga hafa á að sækja í nám í Hótel- og
matvæla skólanum eru hvattir til að hafa
samband við starfsmenn skólans, áfanga-
stjóra, námsstjóra eða námsráðgjafa til að
fá frekari upplýsingar. Sveinspróf í mat-
væla- og veitingagreinum býður einnig
upp á mjög fjölbreytt viðbótarnám s.s.
til stúdentsprófs, í hótelstjórnun og iðn-
meistaranám.