Fréttablaðið - 04.03.2014, Side 36
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 24
LÍFIÐ
➜ DÓMNEFNDIN
Karen Lind, tískubloggari
og meistaranemi, og Erna
Hrund, tískubloggari og
sminka, eru í dómnefnd
fyrir hönd Trendnets
að þessu sinni.
Óskarinn 2014: Tískan
á rauða dreglinum
Sviðsljósið fyrir Óskarinn beinist gjarnan að rauða dreglinum og fatavali stjarnanna
á verðlaunahátíðinni frægu. Tískan á rauða dreglinum var fj ölbreytt í ár en þar var
Lupita Nyong’o senuþjófur í glæsilegum Prada-kjól. Trendnet-bloggararnir Karen Lind
og Erna Hrund tóku út tískuna á Óskarnum.
EMMA WATSON Í VERU WANG
Erna Hrund „Einn af mínum uppáhaldskjólum.
Emma er að stimpla sig inn sem ein af tískufyrir-
myndum áratugarins og vill alls ekki láta muna
eftir sér sem hinni saklausu Hermione í Harry
Potter. Virkilega falleg hönnun frá Veru sem er að
sjálfsögðu meistari þegar kemur að kjólum. Ég verð
að fá að nota tækifærið og biðja Veru um að senda
mér einn svona í stærð 38, mig vantar þennan
nauðsynlega.“
Karen Lind „Emma Watson er guðdómleg í kjól frá
Veru Wang og það verður að viðurkennast að hún er
ein af mínum uppáhalds frá Óskarnum.“
LADY GAGA Í VERSACE
Erna Hrund „Halló, Jessica Rabbit! Vöxtur hennar
er eins og stundaglas í þessum kjól en ég finn
dáldið til með henni því hún lítur út fyrir að geta
átt erfitt um andardrátt. Kjóllinn öskrar Versace og
hann er alveg flottur en engan veginn minn stíll,
alltof mikil hafmeyja og klúturinn er ekki góður,
dáldið eins og hann sé að kæfa hana.“
Karen Lind „Lady Gaga hefur lagt helming áranna í
bát. Ég bjóst við mun meira æpandi dressi frá henni
þó kjóllinn sé vissulega fallegur. Slæðan virkar eins
og svefnhormónið melatónín á mig, mig langar bara
að sofna, svei mér þá! Nokkur mínusstig í kerlingar-
kladdann vegna slæðunnar, Lady mín! Annars fær
hún fullt hús stiga fyrir hár og förðun.“
CHARLIZE THERON Í DIOR
Erna Hrund „Mér finnst þessi kjóll eins og sniðinn
á leikkonuna, alveg fullkominn og smáatriðin gera
hann frábrugðinn þessum dæmigerðu svörtu
kjólum. Hálfu hlýrarnir móta efri part kjólsins á
skemmtilegan hátt og mesh-efnið sem er á pilsinu
dregur einhvern veginn úr þessu mikla pilsi.“
Karen Lind „Ég skil ekki hvernig Charlize Theron
fer að þessu. Hún er svo náttúrulega falleg og
skartar kjól frá Dior með fullkomnum hætti. Það
hefði þó fullkomnað kjólinn ef svarti hluti hlýranna
væru með mýkri línur.“
PHARRELL WILLIAMS Í LANVIN
OG HELEN LASICHANH
Erna Hrund „Mér finnst lúkkið á Pharrell algjör
snilld, smellpassar við karakter hans og það er gaman
þegar fólk heldur í sinn stíl á svona fínum hátíðum.
Hjónin minna þó óneitanlega á Brad Pitt og Angelinu
Jolie frá BAFTA-hátíðinni þar sem þau voru bæði í
buxnadrögtum, Brangelina voru þó töluvert flottari,
Helen er ekki alveg með þetta og dregur eiginlega
bara heildareinkunnina á lúkki parsins niður.“
„Karen Lind Ó, Pharrell, takk fyrir að sleppa
hattinum í þetta sinn. Nú ertu hins vegar mættur í
stuttbuxum á Óskarinn og það er á hreinu að ef ég
væri lögregla myndi ég ekki sekta þig fyrir þennan
klæðaburð. Þú ert flottur … eða jafnvel flottastur?“
CATE BLANCHETT Í ARMANI
Erna Hrund „Cate er alltaf elegant og klassísk og
hún stígur sjaldan feilspor þegar kemur að klæðnaði.
Mér finnst alveg magnað hvað konan eldist vel og
hún verður jafnvel bara flottari og virðulegri með
aldrinum. Kjóllinn er alveg einstakur og öskrar
Armani. Kjóllinn hæfir svo sannarlega Óskarsverð-
launahafa og styttan flotta er fullkominn fylgihlutur
við hann.“
Karen Lind„Einstaklega fáguð, kvenleg og glæsileg
í kjól frá Armani Privé. Hún ber nude-litinn vel en
það hefði jafnvel verið skemmtilegt að sjá hana með
eilítið dekkri tón á varalitnum.“
JENNIFER LAWRENCE Í DIOR
Erna Hrund „Jennifer braut reglu tískuspekúlant-
anna sem segir að það eigi ekki að vera í kjól sem
er samlitur dreglinum. En hún komst upp með það,
kjóllinn var virkilega fallegur og öfuga hálsfestin
fullkomnaði lúkkið. Ég hefði viljað sjá einhverja
öðruvísi hárgreiðslu, hún er dáldið kerlingarleg að
mínu mati með þennan blástur. Dáldið eins og hún
hafi lent í hvössum mótvindi á rauða dreglinum.“
„Karen Lind Ég tók fyrst eftir hárinu hennar
Jennifer Lawrence en það er skemmtilega látlaust
og afslappað að mínu mati. Kjóllinn er líka lýtalaus!
Það er víst óskrifuð regla að mæta ekki í rauðum
kjól á Óskarinn, og auðvitað fer Jennifer ekki eftir
því enda villingur og töffari fram í fingurgóma.
Til hvers að fara eftir reglum þegar maður heitir
Jennifer Lawrence og getur verið í hverju sem er?“
JARED LETO Í SAINT LAURENT
Erna Hrund „Snillingur í klæðnaði og flutti
áhrifaríka ræðu þegar hann tók á móti styttunni
sinni. Þeir eru ekki margir, karlarnir í Hollywood, sem
þora að fara í einhverju öðru en dökkum jakkafötum
á rauða dregilinn. Jared komst upp með þetta lúkk
sem var kærkomin tilbreyting frá hinum dæmigerðu
herramönnum.“
Karen Lind „What a hunk of a man! Rauða slaufan
er samt eitthvað að angra mig. Hann hefði fengið
11 milljón stjörnur af fimm mögulegum hefði hann
sleppt slaufunni og verið með gróft tagl og snúð.
Auðvitað á ég alls ekki við fullkominn ballerínusnúð,
heldur ekta rokkarasnúð!“
LUPITA NYONG‘O Í PRADA
Erna Hrund „Stjarna kvöldsins, ég fékk gæsahúð
þegar ég sá hana á rauða dreglinum og ég grét
hástöfum þegar hún var tilkynnt sem sigurvegarinn
í sínum flokki. Lupita minnti mig á eina af mínum
uppáhalds Disney-prinsessum, Öskubusku, og að
mínu mati er þetta kjóll sem verður lengi skráður
í sögubækurnar sem einn af flottustu Óskarskjól-
unum. Hárbandið fannst mér æðislegt og ég spái
hárbandatrendi á næstunni.“
Karen Lind „Lupita toppar sig enn og aftur. Hún
er einstaklega glæsileg í pastellitum kjól frá Prada.
Hins vegar hefði mér þótt fallegra að sleppa
spönginni, en spöngin er svo fyrirferðarlítil að hún
hefur engin áhrif á heildarútlit Lupitu.“