Fréttablaðið - 04.03.2014, Síða 42
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 30
Ég hef hafnað
atvinnutilboðum þar
sem ég hefði getað haft
hærri laun því ég hef enn
talsvert fram að færa
fyrir íþróttina.
Hannes S. Jónsson.
SPORT
TIL LEIGU
15619 Útleiga á aðstöðu í Skálholti
til sölu veitinga og gistireksturs.
Kirkjuráð íslensku þjóðkirkjunnar óskar ef tir
t ilboðum í gisti- og veitingarekstur í Skálholti,
Bláskógabyggð. Hið leigða eru ef tir taldar fasteignir
ásamt heitu vatni og búnaði: Skálholtsskóli, Sel
(einbýlishús) og Rektorhús (einbýlishús).
Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu
Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Áhugasamir leggi
inn lágmarksupplýsingar ásamt y firlýstum
áhuga á verkefninu eigi síðar en 12. mars 2014.
AÐALFUNDUR
Brú félag stjórnenda heldur aðalfund sinn mánudaginn
17. mars kl. 19:00 í húsnæði félagsins að Skipholti 50d
D A G S K R Á :
Venjuleg aðalfundastörf
Kosning til stjórnar
Kjósa skal um:
– Formann til eins árs – Gjaldkera til 2ja ára
– Varaformann til 2ja ára – Meðstjórnanda til 2ja ára
– Einn varamann til 2ja ára og einn varamann til eins árs.
Félagar fjölmennum !!
Stjórnin.
Ég er 44 ára kona og óska eftir
aðstoðarkonu í helgarvaktir sem fyrst.
Er gift og móðir 2 ára drengs. Mér finnst gaman að lesa
bækur, ferðast, þjálfa hundinn okkar og er laganemi í
Háskóla Reykjavíkur. Lifi lífinu lifandi.
Starfið felur í sér aðstoð við athafnir daglegs lífs og
heimilishald. Unnið er eftir hugmyndafræði um
notendastýrða persónulega aðstoð.
Hæfniskröfur:
Góð almenn menntun og íslenskukunnátta.
Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, jákvæðni, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
Hreint sakavottorð skilyrði.
Bílpróf.
Umsóknarfrestur er til 10 mars
Umsóknir og nánari upplýsingar berist í tölvupósti
til Ásdísar Jennu: AsdisJenna@npa.is
KÖRFUBOLTI „Í rauninni er þetta
ekki eðlileg staða. Auðvitað er
stjórnin samt alltaf yfirmaður-
inn. Það var samt ákveðið að þetta
yrði svona fram á haustið,“ segir
Hannes S. Jónsson, formaður og nú
framkvæmdastjóri KKÍ, aðspurð-
ur hvort það sé eðlilegt að hann sé
bæði formaður og framkvæmda-
stjóri körfuknattleikssambands-
ins. Hann sé því í raun yfirmaður
sjálfs sín.
KKÍ þurfti að segja Friðriki
Inga Rúnarssyni upp sem fram-
kvæmdastjóra á dögunum í hag-
ræðingarskyni. Hannes hefur nú
tekið við skyldum Friðriks en þrír
menn eru í fullu starfi hjá sam-
bandinu.
„Ég hef alltaf verið á því að
þetta sé engin kjörstaða. Það að
sami maður sé formaður og fram-
kvæmdastjóri. Svona á þetta ekki
að vera í fullkomnum heimi en
svona ákvað stjórnin að leysa þetta
tímabundið.“
Formaður KKÍ er kosinn til
tveggja ára og næst verður kosið
um formann á næsta ári. Hannes
hefur verið á fullum launum hjá
sambandinu í þrjú ár. Þegar hann
bauð sig fram til áframhaldandi
setu í fyrra var ekki tekið sérstak-
lega fram að um launað starf væri
að ræða. Hannes segir þó að flest-
um hefði átt að vera kunnugt um
að svo væri.
„Þetta var rætt á fjárhagsnefnd-
arfundi á þinginu sjálfu þar sem
voru margir þingfulltrúar. Það
var enginn feluleikur í kringum
það þá og hefur aldrei verið,“ segir
Hannes en hann segir það heldur
ekki vera neitt leyndarmál innan
hreyfingarinnar hvað hann sé með
í laun. Hann fær 405 þúsund krón-
ur á mánuði fyrir skatt.
„Menn verða aldrei ríkir af
körfubolta. Ég er ekki í þessu
starfi út af laununum. Mér hefur
boðist vinna þar sem mér hafa
verið boðin umtalsvert hærri laun.
Ég hef hafnað þeim tilboðum því
mér finnst ég vera að gera hreyf-
ingunni gagn og hef enn talsvert
fram að færa fyrir íþróttina,“
segir formaðurinn.
„Ég er ekki í þessu fyrir pen-
ingana. Starfið er skemmtilegt,
krefjandi og ég er líka í þessu af
hugsjón.“
Eins og áður segir verður stað-
an hjá sambandinu aftur skoðuð í
haust og þá líklega í október.
„Þá kemur í ljós hvort við getum
aftur ráðið framkvæmdastjóra
eða gert eitthvað annað. Árið lítur
vel út og við munum á næstunni
kynna nýja styrktaraðila. Sam-
bandið skilaði tveggja milljóna
króna hagnaði í fyrra en við skuld-
um enn 20 milljónir. Það er alvar-
legi hlutinn og ástæðan fyrir því
að við neyddumst til þess að fara í
aðgerðir á dögunum.“
henry@frettabladid.is
Ekki í þessu starfi út
af peningunum
Formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, segir það ekki vera eðlilega stöðu að hann
sinni bæði stöðu formanns og framkvæmdastjóra. Sú staða verður endurskoðuð
í haust. Hannes leynir ekki launum sínum og segir menn ekki verða ríka hjá KKÍ.
Í LYKILSTÖÐU Hannes sinnir tveimur aðalstörfunum hjá KKÍ fram á haust þó að
hann segi það ekki vera eðlilega stöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFAN
HANDBOLTI „Það var ofsalega
gaman að sjá strákinn vinna bik-
arinn. Sjálfur vann ég hann tvisv-
ar og veit hversu gaman það er að
vinna svona stóra titla,“ segir Petr
Baumruk, fyrrverandi stórskytta
Hauka, sem horfði á son sinn,
Adam Hauk Baumruk, vinna bik-
armeistaratitilinn með Haukum
um síðustu helgi.
Petr vann bikarinn tvívegis með
Haukum, fyrst árið 1997. Sautján
árum eftir að stóri-Baumruk vann
sinn fyrsta stóra bikar á Íslandi er
litli-Baumruk kominn á bragðið.
„Ég er rosalega ánægður með
strákinn. Hann fær að spila meira
núna og er að koma meira inn í
varnarleikinn. Hann vantar smá
reynslu í sókninni en þetta tekur
allt sinn tíma. Adam er góður
strákur sem veit hvað hann vill.
Hann hefur tekið stórt skref fram
á við í varnarleiknum og er líkam-
lega sterkari,“ segir Petr sem var
sjálfur þekktur fyrir frábæran
varnarleik.
Haukahjartað er stórt í Petr
enda var það aðeins annað af
tveimur félögum sem hann spil-
aði með á ferlinum. Hann lék með
tékkneska stórveldinu Dukla Prag
í heimalandinu í tíu ár og vann
með því ótal titla, þar á meðal Evr-
ópubikarinn 1984.
„Ég spilaði þrjá vináttulands-
leiki gegn íslandi eftir HM 1990.
Viggó Sigurðsson var ánægð-
ur með mig og spurði hvort ég
vildi ekki koma til Íslands. Hann
hringdi svo svona 100 sinnum
í mig til Tékklands og ég sló til.
Sagðist ætla prófa og skrifaði
undir þriggja ára samning. En nú
er ég hér enn,“ segir Petr Baum-
ruk en ást hans á Haukum er svo
mikil að sonurinn heitir eins og sjá
má eftir félaginu sem hann ann
svo heitt. - tom
Litli-Baumruk vann 17 árum síðar
Adam Haukur Baumruk fagnaði fyrsta stóra titlinum á ferlinum með pabba.
FEÐGAR Petr Baumruk og Adam
Haukur Baumruk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Pepsi-deildarlið Fylkis á von á flottum liðsstyrk fyrir átökin í sumar
en Andrés Már Jóhannesson og Ragnar Bragi Sveinsson eru á leið
aftur til síns uppeldisfélags. Andrés Már hefur leikið með
Haugesund í Noregi undanfarin misseri en Ragnar Bragi verið
í unglingaliði Kaiserslautern í Þýskalandi.
„Við erum búnir að ná samkomulagi við þá báða og
það er verið að ganga frá lausum endum úti. Þeir eru að
öllu óbreyttu á leið í Fylki,“ sagði Ólafur Geir Magnús- son,
stjórnarmaður í Fylki, við fótbolti.net í gær.
Andrés Már kom að láni til Fylkis síðasta sumar og átti
stóran þátt í breyttu gengi liðsins í seinni umferðinni. Þegar hann
var kominn í gott stand spilaði hann frábærlega í hverjum leiknum á
fætur öðrum áður en hann hvarf aftur á braut til Haugasunds.
Ragnar Bragi er eins og Andrés uppalinn Fylkismaður og sá yngsti
sem leikið hefur með meistaraflokki félagsins í sögu þess. Spennandi
leikmaður sem gaman verður að fylgjast með í sumar.
Tveir heimamenn snúa aft ur í Árbæinn
FÓTBOLTI Stelpurnar okkar í knattspyrnulandsliðinu mættu
til Algarve í Portúgal í gærkvöldi en þar hefst Algarve-mótið
á miðvikudaginn. Um er að ræða sterkt alþjóðlegt mót sem
haldið er í 21. sinn í ár en Ísland leikur í efri deild þess eins
og undanfarin ár.
Allt fór vel hjá stelpunum á leiðinni en í fluginu til Lissabon
fengu þær rjómabollur í tilefni bolludagsins. Þegar lent var
tók svo við ríflega þriggja tíma rútuferð til Algarve. Veðrið
er frábært í Portúgal en um 15 stiga hiti var þegar stelpurn-
ar lentu.
Fyrsti leikur íslenska liðsins er á miðvikudaginn gegn Evr-
ópumeisturum Þjóðverja en auk þeirra eru í riðli með Íslandi
lið Noregs, sem lenti í öðru sæti á Evrópumótinu síðasta
sumar, og Kína. Ísland lenti í 9. sæti á Algarve-mótinu í fyrra
eftir sigur á Ungverjalandi í lokaleik. Bestum árangri náði
Ísland á mótinu 2011 en þá komst liðið alla leið í úrslit.
Stelpurnar mættar í sólina
MÆTTAR Dagný Brynjarsdóttir, Glódís Perla og
Sandra Sigurðardóttir í Lissabon í gær. MYND/KSÍ