Fréttablaðið - 04.03.2014, Side 46
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 34
„Slippurinn er besti bæjarhlutinn
í Reykjavík. Kleinur og kókómalt,
darraðardans við mávana með
Esjuna stolta í baksýn.“
Thelma Marín Jónsdóttir, leikkona.
BESTI BÆJARHLUTINN
A4 Skeifunni 17 / A4 Smáratorgi 1 / A4 Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði / A4 Dalsbraut 1, Akureyri / A4 Miðvangi 13, Egilsstöðum / A4 Austurvegi 65, Selfossi
„Eftir viðtalið í Harmageddon töluðu þeir Frosti
og Máni, útvarpsmenn á X-inu, um að ég þyrfti að
fá minn eigin útvarpsþátt og ég og frænka mín,
Katrín Ásmundsdóttir, tókum það glaðar að okkur,“
segir Anna Tara Andrésdóttir, en hún vakti gríðar-
lega athygli í viðtali hjá Frosta og Mána í Harma-
geddon á dögunum þar sem rætt var um klofklipp-
ingar, rapp og hvernig endaþarmsmök stuðla að
jafnrétti kynjanna. Viðtalið vakti misjöfn viðbrögð,
en Hildur Lilliendahl femínisti sakaði þáttastjórn-
endur um andstyggilegustu framkomu sem hún
hefði orðið vitni að frá íslenskum blaðamönnum í
garð kvenna á 21. öldinni, þegar þeir líktu rappferli
Önnu Töru og hljómsveitar hennar, Reykjavíkur-
dætra, við feril Erps Eyvindarsonar rappara.
„Ég kom ekki nálægt þeim umræðum en leið
mjög vel þegar ég kom úr viðtalinu. Þetta viðtal
hefur gert stórkostlega hluti fyrir mig og hljóm-
sveitirnar mínar, Reykjavíkurdætur og Hljóm-
sveitt,“ segir Anna Tara.
Þættirnir sem verða vikulegir heita Kynlegir
kvistir og verða á dagskrá öll miðvikudagskvöld
klukkan tíu. Fyrsti þátturinn fer í loftið annað
kvöld.
Aðspurð segist Anna Tara vera gallharður fem-
ínisti. „Að sjálfsögðu er ég það, tapar einhver á
jafnrétti? Femínistar eru bara þeir sem sjá misrétti
kynjanna og vilja beita sér fyrir jafnrétti þeirra,“
segir Anna Tara að lokum. - ósk
Tapar einhver
á jafnrétti?
Anna Tara Andrésdóttir stjórnar Kyn-
legum kvistum á X-inu ásamt frænku
sinni, Katrínu Ásmundsdóttur.
GALLHARÐUR FEMÍNISTI Vikulegir þættir Önnu Töru og
Katrínar Ásmundsdóttur hefja göngu sína annað kvöld.
VÍSIR/ÚR EINKASAFNI
„Það stendur yfir leit að heimsins
hugrakkasta ferðamanni,“ segir
Daði Guðjónsson, einn verkefnis-
stjóra Inspired By Iceland, en leit-
in fer fram á samfélagsmiðlum
þeirra.
„Við erum að setja upp leik þar
sem við biðjum vini okkar að koma
með hugmyndir að skemmtilegum
hlutum sem hægt er að upplifa um
allt land,“ útskýrir Daði og bætir
við að þau vilji draga fram alla
þá skemmtilegu hluti sem hægt
er að gera í öllum landshlutum. „Í
þessari ferð verður meiri fókus
á menningarlega hluti sem og þá
sem eru tengdir ævintýraferða-
mennsku,“ heldur hann áfram, en
eitt aðaltakmark Inspired by Ice-
land er að dreifa ferðamönnum um
landið allt árið um kring.
„Leikurinn fer fram á Face book
og þú þarft að skrá þig og segja
svo af hverju þú telur þig vera hug-
rakkasta ferðamann heims.“
Vinningshafi leiksins fær svo
ferð að launum á vit ævintýranna
í leynilega dagskrá, ásamt vini.
Aðspurður segir Daði þau ekki
vera að beina ferðamönnum á við-
kvæmar náttúruperlur með upp-
átækinu. „Öll „leyndarmálin“ sem
við erum að sækjast eftir þurfa að
uppfylla ákveðin skilyrði, mega til
að mynda ekki vera viðkvæmar
náttúruperlur eða hlutir sem eru
hættulegir ferðamönnum. Þessu er
ætlað að draga fram alla þá hluti
sem okkur þykja skemmtilegir
fyrir túrista að heimsækja – það
mætti þess vegna vera saltfisk-
uppskriftin hennar ömmu!“ - ósk
Hugrakkasta ferðamannsins leitað
Segjast ekki vera að beina ferðamönnum á viðkvæmar náttúruperlur.
LEIKUR Á SAMFÉLAGSMIÐLUM Sá
hugrakkasti fær að launum óvissuferð
fyrir tvo í ævintýradagskrá.
VÍSIR/ÚR EINKASAFNI
„Það verður upphitunaratriði á tónleik-
um Justins Timberlake og það stefnir
allt í að það verði íslenskt,“ segir Ísleif-
ur B. Þórhallsson, tónleikahaldari Senu.
Ekki hefur verið staðfest hvaða íslenski
listamaður hitar upp á tónleikum hans
sem fram fara 24. ágúst.
Fréttablaðið lagði höfuðið í bleyti og
spurði nokkra listamenn sem gætu verið
líklegir til að hita upp fyrir Justin. Þeir
listamenn sem Fréttablaðið taldi líklega
eru Jón Jónsson, Retro Stefson, Moses
Hightower og Sykur, ásamt mörgum
fleirum.
„Það verður væntanlega þannig að við
munum stinga upp á nokkrum upphitun-
arvalmöguleikum fyrir fólk Justins en
svo mun það fólk taka lokaákvörðun um
hver hitar upp,“ útskýrir Ísleifur. Hann
bætir við að upphitunaratriðið verði
ekki tilkynnt fyrr en nær dregur tón-
leikunum.
Forsala hefst í dag klukkan 10.00 á
tónleika Justins Timberlake fyrir þá
sem skráðir eru í aðdáendaklúbb Just-
ins, The Tennessee Kids. Á morgun
hefst svo forsala Wow Air og Vodafone,
einnig klukkan 10.00, og stendur til
klukkan 17.00.
Talið er að fjölmargir Íslendingar
hafi skráð sig í aðdáendaklúbb Justins
þegar tónleikar hans hér á landi voru
staðfestir.
Um það bil helmingur þeirra 16.000
miða sem í boði eru á tónleikana verður
seldur í forsölu. Ef forsalan gengur vel
og allt selst þá verða einungis 8.000
miðar í boði þegar almenna miðasalan
fer í gang á fimmtudaginn klukkan 10.00.
„Það er ekki fræðilegur möguleiki að
bæta við aukatónleikum, þetta er allt of
umfangsmikið til að hægt sé að ákveða
slíkt með skömmum fyrirvara,“ segir
Ísleifur spurður út í mögulega aukatón-
leika. „Ef það selst upp er þetta bara vel
heppnað og við verðum mjög sáttir.“
gunnarleo@frettabladid.is
Íslenskt upphitunaratriði
á tónleikum Timberlake
Íslenskt tónlistaratriði mun sjá um upphitun á tónleikum Justins Timberlake í sumar. Forsala er
hafi n en aðeins helmingur miðanna mun fara í almenna sölu.
ÍSLENSK UPPHITUN Allt stefnir í að íslenskur tónlistar-
maður hiti upp fyrir Justin Timberlake í sumar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fréttablaðið spurði fjóra lista-
menn hvort þeir og hljómsveitir
þeirra hefðu áhuga á að hita upp
fyrir Justin Timberlake í sumar.
➜ Líkleg íslensk
upphitunaratriði
JÓN JÓNSSON
Já, að sjálfsögðu
væri ég til í það.
Hann er geggjað-
ur og ég hlusta
mikið á hann.
Uppáhaldslagið
mitt er Seniorita
af Justified-
plötunni.
UNNSTEINN MANUEL ÚR RETRO
STEFSON Já, auðvitað, en ég hef svo
sem ekkert pælt í því. Uppáhaldslagið
mitt er My Love af plötunni FutureSex/
LoveSounds.
HALLDÓR ELD-
JÁRN ÚR SYKRI
Við myndum
örugglega taka því,
það væri örugg-
lega mjög gaman.
Uppáhaldslagið
mitt er Sexy Back
af plötunni Future-
Sex/LoveSounds.
STEINGRÍMUR KARL TEAGUE ÚR
MOSES HIGHTOWER Okkur þætti það
mjög gaman. Uppáhaldslagið mitt er
Right for Me af plötunni Justified.