Fréttablaðið - 06.03.2014, Síða 54
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
„Þetta er eins og að klappa ketti,“
segir Tómas Einarsson fjalla-
skíðakappi um skinnin sem sett
eru undir fjallaskíði. Fjallaskíði
eru ólík venjulegum skíðum að
ýmsu leyti.
„Skinn eru sett undir skíðin
til að það sé hægt að ganga á
þeim, jafnvel upp brekk-
ur,“ segir Tómas.
„Skinnin eru með
stuttum hárum.
Þau liggja þann-
ig að þú getur
rennt þér aðeins
áfram,“ segir
Tómas. „Skíðin
sjálf eru sosum
ekki mjög ólík
venjulegum skíð-
um, þótt þau séu
aðeins breiðari.
Aðalmunurinn er
sá að hægt er að losa
upp hælinn á binding-
unum fyrir klossana þann-
ig að þú ert frjálsari til gangs á
skíðunum.“
Hópurinn sem stundar fjalla-
skíðamennsku fer ört stækkandi.
„Þetta er alltaf að öðlast meiri
og meiri vinsældir, þessi skíða-
mennska. Það er í rauninni hægt
að stunda þetta nánast allt árið.
Eins og þetta er búið að vera núna
síðastliðið ár er hægt að komast
á skíði alla mánuði ársins,“ segir
Tómas sem byrjaði að stunda
fjallaskíðamennsku fyrir fjórum
árum.
„Ég hef ekki alltaf verið mikill
skíðamaður, en tók upp á því fyrir
um sex eða sjö árum. Krakkarnir
eru búnir að vera að æfa á skíðum
og ég hef fylgt þeim.
Síðan lá beinast við
að fara út í fjalla-
skíðamennsku
meðfram
hinu. Þetta
er að vissu
leyti meira
krefjandi
en venju-
leg skíða-
mennska.
Þú verð-
u r a ð
geta geng-
ið upp ti l
að geta rennt
þér niður. Það
er ekki minnsta
gleðin við það að vera úti
í náttúrunni og bara ganga,“ segir
Tómas.
Tómas er búsettur á Akureyri.
„Svæðið hérna á Tröllaskaganum er
paradís fyrir svona skíðamennsku.
Svo er fólk alveg að fara upp á jökla
á fjallaskíðum, til dæmis á Hvanna-
dalshnjúk. Þá næst alveg ævin-
týralega langt rennsli. Ég hef hins
vegar verið mest hér á þessu svæði
á Tröllaskaganum. Ég var nefnilega
skilinn eftir þegar hópurinn fór upp
á Hvannadalshnjúk. Það var þannig
að Andrésarleikarnir voru haldnir
akkúrat sömu helgi. Sonur minn var
að keppa, og það var ekki hægt að
sleppa því. Á meðan fór kunningja-
hópurinn á Hvannadalshnjúk. Það
tók víst mjög á, ekki síst andlega,
þetta er svo langur gangur.“
Á föstudaginn langa verður
haldið fyrsta fjallaskíðamótið hér
á landi.
„Þá er gengin ákveðin leið sem
við erum ekki alveg búin að negla
niður. Þurfum að meta veður og
aðstæður á keppnisdegi. Þetta snýst
um það hver er fyrstur í mark. Það
verður hópstart. Síðan er gengin
ákveðin leið. Menn þurfa að skíða
niður einhverjar brekkur, og síðan
jafnvel að ganga aftur og skíða
aftur niður. Við komum til með að
birta frekari upplýsingar þegar nær
dregur,“ segir Tómas.
ugla@frettabladid.is
Njóta náttúrunnar
á fj allaskíðum
Fjallaskíði njóta síaukinna vinsælda hér á landi en hægt er að stunda þessa
skíðamennsku nánast allt árið um kring. Fjallaskíði eru ólík venjulegum skíðum
að ýmsu leyti og segir fj allaskíðakapinn Tómas Einarsson íþróttina krefj andi.
Fréttablaðið hafði samband við
búðina Fjallakofann í Kringlunni,
sem selur fjallaskíðabúnað, til að
fá hugmynd um hvað kostar að
stunda þessa íþrótt. Hér er verð á
búnaði frá þeim.
Ódýrasti pakkinn frá þeim kostar
Völkl Qanik skíði 57.995 kr.
Völkl Qanik skinn 36.995 kr.
Marker F10 Tour binding 64.995 kr.
Scarpa Thrill fjallaskíðaskór 79.995 kr.
Samtals 239.980 kr.
Miðlungsdýr pakki
Völkl Nanuq skíði 109.995 kr.
Völkl Nanuq skinn 36.995 kr.
Diamir Fritschi Eagle 12 89.995 kr.
Scarpa Maestrale RS 109.995 kr.
Samtals 346.980 kr.
Ef keyptur er pakki þá gefur
Fjallakofinn 20% afslátt af honum.
Að auki er nauðsynlegt að vera
með góða stafi og hafa þá með
breiðum kringlum.
Verð 19.995-24.995 kr.
Bakpoka er einnig nauðsynlegt
að hafa fyrir aukaföt, nesti og
snjóflóðabúnað. Verð á þeim er frá
13.995-28.995 kr.
Heilög þrenning eins og fjallagarpar
tala um er þetta:
Snjóflóðaýlir 29.995-84.995 kr.
Skófla 10.995-17.995 kr.
Stöng 13.995-19.995 kr.
➜ Hvað kostar búnaðurinn?
Þetta er að vissu leyti
meira krefjandi en venjuleg
skíðamennska. Þú verður
að geta gengið upp til að
geta rennt þér niður.
Tómas Einarsson
„Ég væri orðin ólétt aftur ef ég
væri ekki föst í tónlistarverkefn-
um. Mig langar í átta eða níu börn
með Gerard – mitt eigið fótbolta-
lið,“ segir söngkonan Shakira í
viðtali við tímaritið Latina. Hún
á soninn Milan, þrettán mánaða,
með knattspyrnumanninum Ger-
ard Pique og reynir nú að finna takt
á milli einkalífsins og vinnunnar.
„Ég fór stundum í hringi í kring-
um hugmynd en ég hef ekki tíma
í það síðan hann fæddist. Ég þarf
að flýta mér aftur heim. Þannig að
hann hefur kennt mér að einbeita
mér,“ segir hún og vísar í son sinn.
„Þegar maður á barn, þá finnur
maður ást þess og friðinn í heim-
inum. Maður vill deila góðu frétt-
unum og deila hamingjunni sem
maður finnur,“ bætir Shakira við.
- lkg
Langar í fl eiri börn
Söngkonan Shakira væri til í átta eða níu stykki.
BARNAÓÐ Shakira vill stóra fjölskyldu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
TÓMAS
EINARSSON
➜ Aðalmunurinn
á fjallaskíðum
og venjulegum
skíðum er sá að
hægt er að losa
upp hælinn á
bindingunum
fyrir klossana
þannig að þú ert
frjálsari til gangs
á skíðunum.
SKILINN EFTIR Tómas Einarsson var
skilinn eftir á Akureyri á meðan vinir hans gengu á Hvannadalshnjúk. MYND/EIRÍKUR GEIR RAGNARSSON
2
3
4
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi,
Holtum, föstudaginn 26. mars 2010 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund.
Reykjavík, 9. mars 2010.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
l l s svf. ver ur haldinn á Goðalandi
Fljó shlíð, föstudagi n 21. mars 2014 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillögur til breytingar á samþykktum.
3. Önnur mál.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund.
Reykjavík, 28. febrúar 2014.