Fréttablaðið - 30.08.2014, Side 6

Fréttablaðið - 30.08.2014, Side 6
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | metra sprunga í Holuhrauni opnaðist og skilaði hrauni sem er 0,1 ferkílómetri. 600 Jarðvísindamenn hafa þegar bent á líkindin við upphaf Kröfluelda, en jarðhræring- arnar stóðu frá 1975 allt til ársins 1984. Upphaf þeirra umbrota var sumarið 1975 þegar land tók að gliðna í tengslum við hreyfingar stóru skorpuflekanna á Íslandi. Nam gliðnun fljótlega mörgum metrum og sprungur opnuðust. Örlítið eldgos skammt frá Kröflu var það fyrsta í umbrotahrinunni. Næstu þrjú eldgos þar á eftir, árin 1977 og 1980, voru kraftlítil og hraunin smá. Árin á eftir jókst kraftur eldgosanna og árið 1984 varð stærsta gosið sem stóð í tvær vikur, en þá runnu 24 ferkílómetrar af hrauni og kvikustrókarnir stóðu allt að 70 metra í loft upp. Þetta var níunda eldgosið á tímabilinu, og markaði það lok umbrotahrinunnar í Kröflu. Þá höfðu 60 ferkílómetrar af hrauni runnið. Heimild: Eldgos 1913-2004, Ari Trausti Guðmundsson - Ragnar Th. Sigurðsson MINNIR STERKLEGA Á UPPHAF KRÖFLUELDA HOLUHRAUN Eldgosinu lauk um klukkan fjögur í fyrrinótt en myndin er tekin klukkan 04.31. Gufur stíga upp af gosopunum og ná nokkra tugi metra í loft upp, en hraunin runnu 100 til 200 metra þaðan frá. MYND/MARCONESCHER Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn. Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur D Y N A M O R E Y K JA V ÍK NÝ OG BE TRI HÖNNUN ! TANNBURSTAR OG TANNKREM FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI ASKÝRING | 6 JARÐHRÆRINGAR Í VATNAJÖKLI: ELDGOS Í HOLUHRAUNI Eldsumbrotin í Holuhrauni í fyrrinótt eru flokkuð sem örgos af jarðvísinda- mönnum. Gosið, sem er annað í röðinni á fimm dögum, var mun minna en gosið undir Vatnajökli fyrr í vikunni. Ljóst var í gær að sprunga, um 600 metrar þegar hún var lengst, opnaðist laust eftir miðnætti, og sást upphaf þess á vefmyndavélum fjarskiptafyrirtækis- ins Mílu auk þess sem gosórói var stað- festur með mælakerfi Veðurstofunnar. Sprungan liggur eftir eldri gossprungu um Holuhraun, um fimm kílómetra frá sporði Dyngjujökuls. Hraunrennsli var lítið og stöðvaðist um klukkan fjögur um nóttina, sem markar goslok. Hápunktur þess stóð aðeins í um 20 mínútur nokkru eftir miðnætti. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir að um örgos hafi verið að ræða, og hraunið sem rann aðeins þúsundasti hluti þess kvikumagns sem var undir. Gígarnir eru á sama Eldur uppi í fjórar klukkustundir Kvika braust upp á yfirborð í Holuhrauni norðan Dyngjujökuls laust eftir miðnætti í fyrrinótt og olli skammvinnu hraungosi. Umbrotin undir jökli á laugardag mun stærri. Holuhraunsgosið hafði aðeins tímabundin áhrif á jarðskjálftavirkni sem er jafn áköf og fyrri daga. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.