Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 12

Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 12
30. ágúst 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ MÍN SKOÐUN: PAWEL BARTOSZEK Úkraínsk stjórnvöld birtu í vikunni myndbands-klippur af, að því er virtist, rússneskum her- mönnum sem teknir höfðu verið til fanga innan Úkraínu. Mynd- birtingunni var eflaust ætlað að renna enn frekari stoðum undir það sem flestir fjölmiðlar hafa þegar staðfest, að rússneski her- inn tekur virkan þátt í átökunum í austurhluta landsins. Atburðir fimmtudagsins, þegar þungvopn- aðar sveitir mynduðu nýja víg- línu í suðausturhluta landsins, ættu að taka af allan vafa. Þ ví miður kemur þetta varla á óvart. Handritið hefur þegar ver ið notað á Krím- skaganum: Ein- hver hulduher nær svæðinu á sitt vald og svo eru skipulagðar kosningar um innlimun héraðsins í annað ríki með fyrirvara sem hefði ekki dugað til að halda lög- legan húsfélagsfund. Svo kemur á daginn að þessi hulduher er auð- vitað bara rússneski herinn. Og Pútín kemst upp með allt. Í tengslum við þessar mynd- birtingar úkraínskra stjórnvalda verður þó að árétta eitt. Það að birta myndir af stríðsföngum er brot á 13. grein þriðja Genfar- sáttmálans þar sem segir að „stríðsfangar eigi að njóta vernd- ar í hvívetna, sérstaklega gegn ofbeldi, hótunum sem og niður- lægingu eða forvitni almenn- ings.“ Innrásin í Úkraínu Ólöglegar myndbirtingar Í Íraksstríðinu áréttaði Alþjóða Rauði krossinn þessa reglu og benti stríðandi fylkingum á að virða hana. Sama gildir nú. Hér skiptir ekki máli að Úkra- ínumenn líti á andstæðinga sína sem „hryðjuverkamenn“ eða að þeir síðarnefndu líti á stjórnvöld í Kíev sem fasista sem rænt hafa völdum. Átökin falla í það minnsta undir 3. grein þriðja Genfarsátt- málans sem fjallar um lágmarks- vernd stríðsfanga í vopnuðum innanlandsátökum. Hitt er svo annað mál að auð vitað eru þetta vopnuð átök milli tveggja ríkja, þótt heimurinn hafi undanfarn- ar vikur sammælst um þá sjálfs- blekkingu að svo væri ekki. En aftur að Genfarsáttmál- unum: Það skiptir ekki máli að dómarinn hafi ekki „flaut- að til stríðs“. Stríðsfangar njóta verndar. Þá reglu eiga jafnt úkra- ínsk stjórnvöld að halda í heiðri, sem og þeir sem ráða ríkjum í Donetsk-borg. Þeir síðarnefndu ákváðu um síðustu helgi að senda stríðsfanga í skrúðgöngu um götur borgarinnar þar sem borg- arbúum gafst færi á að henda í þá matvælum. Á eftir þeim keyrðu hreinsunarbílar og spúluðu strætin. Kannski þykir einhverj- um þetta ekki verstu glæpir sem fremja má í stríði. En þeir eru sorglegir í illkvittnu tilgangs- leysi sínu. Þetta ætti að þykja sjálfsagt, en í hvert skipti sem ég gagn- rýni Pútín fæ ég yfir mig gusu misvinalegra kveðja frá mönnum sem kalla sig friðarsinna, en eru fyrst og síðast andstæðingar þess sem þeir kalla „vestræna heims- valdastefnu“. Ég bíð spenntur eftir því að heyra hvaða þvætting frá bullsíðunni GlobalResearch. ca mér verður bent á að þessum pistli birtum. Hver veit, kannski mun einhverjum jafnvel takast að halda því fram, líkt og gert var á vef íslenskra friðarsinna um daginn, að Bandaríkjamenn hafi sjálfir sprengt upp tvíburaturn- ana fyrir tæpum 13 árum í stríðs- æsingaskyni? Klárt brot á fullveldi Hugmyndafræðilegur munur milli mín og manna sem trúa á alls konar samsæriskenn- ingar verður ekki brúaður á hálfri blaðsíðu. Ég viðurkenni að þegar flestir vestrænir fjöl- miðlar eru farnir að telja það sannað að rússneski herinn taki virkan þátt í átökunum í Austur- Úkraínu, og þegar leiðtogi upp- reisnarmannanna gortar sig af því, þá trúi ég því, jafnvel þótt Pútín þræti enn stundum fyrir það. Það má heldur ekki gleyma aðalatriðunum. Úkraína er full- valda lýðræðisríki. Erlendur her hertók nýlega hluta ríkisins og innlimaði í annað ríki. Nú er verið að leika sama leikinn og viðbrögð umheimsins eru í raun frekar dempuð. Forsetar land- anna tveggja hittust í vikunni. Diplómatísk samskipti alþjóða- samfélagsins við Rússland eru enn óbreytt. Kannski vegna þess að mörgum finnst afleiðingar þess að viðurkenna Pútín sem óvin vera enn verri en það að láta sem maður trúi lygum hans. Öll viljum við að friður komist á í Úkraínu. En óskorað fullveldi Úkraínu, með óbreyttum landa- mærum, verður samt að vera skilyrði. Vilji menn endurteikna landamæri verður það að gerast án hervalds. Stórveldi eiga ekki að geta valsað inn í nágrannaríki og tálgað þau í sundur. Þetta ætti að þykja sjálfsagt en samt er til fólk sem er tilbúið að mæla þess- um aðgerðum stórveldisins bót, eða allavega lætur vera að for- dæma þær. Bara vegna þess að stórveldið sem um ræðir er ekki það stórveldi í heiminum sem það hatar mest. T veir af hverjum þremur svarendum í skoðanakönnun fréttastofu 365 miðla segist þeirrar skoðunar að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra eigi að segja af sér embætti. En er það mikið, eða er það lítið? Svarið er eflaust breytilegt. Flestum mun eflaust þykja það mikið, jafnvel tveimur af hverjum þremur. Öðrum kann að finnast það lítið, að stuðningur þriðjungs svarenda sé ekki svo lítið miðað við allt og allt. Mikið, segja þeir sem ólmir vilja hana frá, segja hana hafa gert mörg pólitísk mistök, hafa jafnvel hagrætt sannleikanum og að gera verði ríkari kröfur, en nú er gert, til stjórnmála- manna á Íslandi. Á seinni tímum eru ekki önnur dæmi um stjórnmálamann sem hefur þurft að verjast eins mikið og Hanna Birna. Þeir sem eru þess- arar skoðunar segja eflaust að þegar tveir af hverjum þremur vilja að hún víki, séu varnir hennar að endingu brostnar. Neikvæðar fréttir af henni, embættisverkum hennar og við- brögðum hafa verið margar að undanförnu. Fjöldi fólks hefur nýtt samskiptamiðlana, einkum og sér í lagi, til að tjá sig um Hönnu Birnu og hefur haft uppi stór orð og hvergi sparað full- yrðingar um nánast allt í fari hennar. Lítið, kunna þeir að segja, sem finnst ágætt hjá Hönnu Birnu þegar einn af hverjum þremur er þeirrar skoðunar að hún eigi ekki að segja af sér, þrátt fyrir þann ólgusjó sem hún hefur siglt. Og benda á að í grunninn voru 53 prósent svarenda ákveðin í að henni bæri að víkja. Eflaust særir það Hönnu Birnu að nærri helmingur kjósenda Sjálfstæðisflokksins er þeirra skoðunar hún eigi að segja af sér. Þegar Fréttablaðið hefur leitað eftir afstöðu einstakra flokksfélaga Hönnu Birnu kemur í ljós að margir þeirra forðast að svara, vilja ekki opinbera afstöðu sína til hennar og fram- tíðar hennar á ráðherrastóli. Í könnun, sem birt er í Fréttablaðinu í dag, þar sem spurt er til hvaða ráðherra svarendur bera mest traust og svo minnst traust, skipar Hanna Birna efsta sæti verri listans, Og kemur það ekki á óvart, miðað við það sem á undan er gengið. Þegar betur er rýnt í niðurstöður könnunarinnar er kannski einna merkilegast hversu margir svarendur treysta sér ekki til að nefna neinn ráðherranna, þegar spurt var til hvers fólk bæri mest traust, eða rétt um fjörutíu prósent svarenda. Bjarni Benediktsson er sá ráðherra sem oftast er nefndur, en ekki er fjarri að tvöfalt fleiri en nefndu Bjarna hafi kosið að svara að enginn ráðherra væri þess verðugur að vera nefndur sem svar við spurningunni. Eftir allt sem hefur gerst, verið sagt og skrifað og sem hefur gengið á er staða Hönnu Birnu samkvæmt skoðanakönnuninni kannski ekki afleit, þótt hún sé ekki góð. Könnunin var jú gerð meðan umfjöllunin, sem vissulega er neikvæð fyrir hana, var í hámarki. Og þá kemur aftur að spurningunni, eru tveir þriðju mikið eða lítið? Og nú svarar hver fyrir sig. Staða Hönnu Birnu meðal þjóðarinnar: Eru tveir þriðju mikið eða lítið? Sigurjón Magnús Egilsson sme@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.