Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 18

Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 18
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18 Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Það fyrsta sem fólk sagði við mig þegar ég sagði að ég væri byrjuð í kraftlyft-ingum var að ég þyrfti að passa mig að verða ekki of mössuð. Það halda marg- ir að þetta sport sé bara fyrir stóra skrokka. Flestar athugasemdir sem ég fæ eru: Þú lítur ekki út fyrir að vera í kraftlyftingum. En þetta er algjör misskilningur. Það er svo mikil mýta að fólk þurfi að vera stórt til að vera sterkt,“ segir Ragn- heiður Kristín Sigurðardóttir, lyfja- fræðingur, móðir, Íslandsmeistari, bikarmeistari og Norðurlandameist- ari í kraftlyftingum í sínum flokki, létt í bragði. „Ég keppti í -57 kg flokki og vann flokkinn minn. Ég varð í þriðja sæti í heildarkeppni allra kvenna á mótinu, en var að keppa í þessum þyngdarflokki í fyrsta sinn,“ útskýrir Ragnheiður, en mótið var haldið í Njarðvík þann 22. ágúst síðastliðinn. Massaður lyfjafræðingur Ragnheiður stundaði engar íþróttir að ráði í æsku og því kom það mörg- um í kringum hana á óvart þegar hún reið á vaðið og hóf að keppa í kraftlyftingum upp úr þrítugu. „Ég átti mjög stuttan handbolta feril sem barn og var í kikkboxi þegar ég bjó í Argentínu en annars var ég ekkert í íþróttum. Það er samt dálít- ið skrítið að ég hafi ekki verið sett í íþróttir því ég var mjög kraftmikið barn og þótti eiginlega skemmtileg- ast að slást með strákunum,“ rifjar Ragnheiður upp og hlær. Auk þess að stunda kraftlyft- ingarnar af kappi vinnur Ragn- heiður spennandi starf, en hún er er hópstjóri í framleiðslueiningu Sjúkrahúsapóteks Landspítalans. „Þetta er mjög krefjandi og skemmtileg vinna. Ég tek líka bak- vaktir á spítalanum, þannig að þetta er talsverð vinna og meira en fullt starf. Við framleiðum lyf fyrir sjúk- linga sem þurfa lyf í æð inni á spít- alanum, til dæmis fyrir krabba- meinslyfjameðferð, næringu fyrir nýbura og þar fram eftir götunum.“ Kynntist manninum í lyfjafræði En Ragnheiður ætlaði ekki allt- af að verða lyfjafræðingur. „Ég var frekar óákveðin í þessu öllu saman – ég var upphaflega með vin- konu minni í lífefnafræði. Hún ætl- aði í efnafræði og ég ætlaði í líf- fræði, en við vildum vera saman í skólanum þannig að við ákváðum að gera málamiðlun og fara í lífefna- fræðina saman. Við sátum nokkra kúrsa með fólki úr lyfjafræði og mér fannst þau vera í mörgum spenn- andi fögum sem ég fór á mis við. Þannig að ég ákvað að prófa. Ég sá ekki eftir því. Ég kynntist mannin- um mínum strax á fyrsta ári,“ rifjar Ragnheiður upp. „Við vorum saman í bekk í fimm ár og erum enn þá saman – nýgift,“ heldur hún áfram, en parið gifti sig í október í fyrra. „Hann heitir Kjartan Hákonarson og er lyfjafræðingur hjá Icepharma. Auk þess spilar hann á trompet með fjöldamörgum hljómsveitum. Það er nóg að gera hjá fjölskyldunni,“ segir hún og hlær. Bergrún Agnes, dóttir þeirra, varð þriggja ára gömul nú í júlí. En hvernig er tími fyrir þetta allt saman og það að halda úti heimili? Ragnheiður hlær og segist eiga dásamlega tengdaforeldra. „Þau búa í næstu götu og hjálpa okkur rosa- lega mikið. Við skipuleggjum flesta daga vel og pössum upp á að eiga góðar samverustundir.“ Gekk bróður sínum í móðurstað „Ég missti mömmu mína árið 1995, þegar ég var að verða fjór- tán ára. Hún dó úr krabbameini. Upphaflega sögðu læknarnir að hún ætti eftir að lifa í stuttan tíma, en hún barðist hetjulega og lengi en var mikið á spítala. Ég kvaddi hana oft, en alltaf reis hún upp aftur,“ útskýrir Ragnheiður. „Ég á tvær eldri systur, sem eru mér samfeðra, en svo á ég einn yngri bróður, sammæðra, sem ég gekk dálítið í móðurstað á þess- um árum. Svo þegar mamma var farin þá flutti hann til móðursyst- ur minnar en ég flutti til pabba. Við höfðum alltaf verið í sambandi en ég hafði aldrei búið hjá honum.“ „Ég fór því úr því að búa við þröngan kost í kjallara í Garða- bæ yfir í einbýlishús í Þingholtun- um hjá pabba. Það voru mikil við- brigði,“ rifjar Ragnheiður upp. „Ég bjó um tíma í Noregi sem krakki og líka úti á landi svo það hafði aldrei verið mikill samgang- ur okkar á milli. Ég man að fyrst rifumst við eins og hundur og kött- ur en urðum fljótlega perluvinir. Hann lést árið 2006, en þá var ég komin vel af stað í lyfjafræðinni,“ segir hún, og dugnaðurinn skín úr augum hennar. Ætlaði bara að koma sér í form Systir Ragnheiðar, Solveig, plataði hana á hennar fyrstu æfingu í kraftlyftingum hjá kraftlyftingaþjálfaranum Ingi- mundi Björgvinssyni í Gróttu. „Ég var nýbúin að eiga á þess- um tíma, í janúar 2012, og mig langaði að koma mér í form. Það er barnapössun í World Class á Nesinu þannig að ég hugsaði með mér að ég kæmi í þetta með Sollu í svona mánuð, kannski tvo,“ útskýrir Ragnheiður. „Áður en ég vissi af var ég komin á fullt í kraftlyftingar og farin að keppa. Ég ætlaði alls ekki að feta þessa braut og þaðan af síður að keppa í þessu. En Ingimundur plat- aði mig til að taka þátt í einu móti. Hann sagði við mig að þetta væri góð leið til að koma sér í form, hafa eitthvað til að stefna að og setja sér markmið. Mér fannst, held ég, erf- iðast í þessu í byrjun að stíga svona langt út fyrir þægindarammann.“ Búnaðurinn ekki sexí „Búnaðurinn sem maður klæð- ist er ekkert rosalega sexí,“ segir Ragnheiður og hlær. „En svo um leið og ég tók þátt í mínu fyrsta móti, þar sem ég stóð mig raunar alls ekki vel, sá ég hvað þetta var hrikalega skemmtilegt. Ég held að ég hafi nánast keppt á öllum mótum sem í boði hafa verið síðan.“ Ragnheiður æfir fjórum sinn- um í viku, 2-3 tíma í senn, og hugar vel að mataræðinu. „Fyrst um sinn skilaði ég inn mat- ardagbók til þjálfara. Svo þurfti ég þess bara ekkert lengur. Ég veit hvað ég þarf að borða til þess að mér líði vel og ég þarf að borða nóg. Ef ég er að búa mig undir mót er það talsvert öðru vísi. Þá huga ég enn betur að mataræðinu og æfi frekar stíft, en passa alltaf að hvíla inn á milli.“ Er á heimslista eftir sigurinn Eftir að Ragnheiður vann Norð- urlandameistaramótið suður í Njarðvík er hún komin á svokall- aðan heimslista. „Þetta er alþjóð- legt mót og nú hef ég möguleika á að fara út að keppa í framhald- inu. Ég stefni klárlega á Evr- ópumeistaramótið á næsta ári.“ Aðspurð segist Ragnheið - ur ekki vera í þessu pening- anna vegna. „Það eru ekki peningar í þessu sporti, því miður,“ segir hún og hlær. „En konur eru að uppgötva hversu frábær íþrótt kraftlyftingar eru til að koma sér í gott form. Flestar bestu kraftlyftingakonur í heim- inum eru nettar og í mjög góðu formi. Lykilatriði í kraftlyfting- um er góð tækni. Hugurinn þarf að vera 100% með í æfingunum og maður getur ekki verið að hugsa um neitt annað á meðan sem er mikill kostur við þessa íþrótt. Maður er bæði að huga að líkam- legri heilsu og geðheilsunni á sama tíma. Ég set í algjöran forgang að mæta á æfingar og ég hlakka alltaf til þeirra. Og ekki skemm- ir félagsskapurinn fyrir en ég er að æfa í hóp með þremur frábær- um konum,“ segir Ragnheiður að lokum. Margur er knár þótt hann sé smár Ragnheiður Kristín Sigurðardóttir er lyfjafræðingur sem hóf að æfa kraftlyftingar fyrir tilviljun, þegar hún vildi koma sér í form eftir barnsburð. Nú, rúmum tveimur árum síðar, er hún Norðurlandameistari í greininni í sínum flokki. Ragnheiður missti báða foreldra sína ung en segist eiga dásamlega tengdaforeldra, sem séu þeim hjónum ómetanleg hjálp. Kraftlyftingar eru íþrótt þar sem keppt er í hnébeygju, bekkpressu og rétt- stöðulyftu og ræður samanlagður þyngdarárangur keppnisröð keppenda. Þá telst það einnig til kraftlyftinga þegar keppt er í einstakri sérgrein þeirra á landsmóti eða alþjóðlegu móti. Mótin eru milli keppenda í flokkum, sem aðgreindir eru eftir kyni, líkamsþunga eða aldri. Sérhver keppandi fær þrjár tilraunir í hverri grein. Besta gilda lyfta keppanda í hverri grein myndar samtölu, sem er samanlagður árangur hans. Ef tveir eða fleiri keppendur ná sama samanlögðum árangri, þá raðast sá léttari framar hinum þyngri. Nái tveir keppendur jafn þungir við vigtun sama árangri í samanlögðu, þá sigrar sá sem fyrstur nær samtölunni. Hægt er að keppa í tvenns konar kraftlyftingum, klassískum kraft- lyftingum og kraftlyftingum með búnaði. Klassískar kraftlyftingar eru kraftlyftingar án búnaðar, það er hnébeygjubrókar, réttstöðulyftubrókar, bekkpressubols og hnévafninga. Aftur á móti má nota hnéhlífar, úlnliðs- vafninga og keppnisbelti í báðum tegundum kraftlyftinga. TVENNS KONAR KRAFTLYFTINGAR Svo þegar mamma var farin þá flutti hann til móðursystur minnar en ég flutti til pabba. Við höfðum alltaf verið í sambandi en ég hafði aldrei búið hjá honum. ➜ 150 kg í hnébeygju ➜ 87,5 kg í bekkpressu ➜ 162 kg í réttstöðulyftu RAGNHEIÐUR TEKUR:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.