Fréttablaðið - 30.08.2014, Qupperneq 18
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Það fyrsta sem fólk sagði við mig þegar ég sagði að ég væri byrjuð í kraftlyft-ingum var að ég þyrfti að passa mig að verða ekki of mössuð. Það halda marg-
ir að þetta sport sé bara fyrir stóra
skrokka. Flestar athugasemdir sem
ég fæ eru: Þú lítur ekki út fyrir að
vera í kraftlyftingum. En þetta er
algjör misskilningur. Það er svo
mikil mýta að fólk þurfi að vera
stórt til að vera sterkt,“ segir Ragn-
heiður Kristín Sigurðardóttir, lyfja-
fræðingur, móðir, Íslandsmeistari,
bikarmeistari og Norðurlandameist-
ari í kraftlyftingum í sínum flokki,
létt í bragði. „Ég keppti í -57 kg
flokki og vann flokkinn minn. Ég
varð í þriðja sæti í heildarkeppni
allra kvenna á mótinu, en var að
keppa í þessum þyngdarflokki í
fyrsta sinn,“ útskýrir Ragnheiður,
en mótið var haldið í Njarðvík þann
22. ágúst síðastliðinn.
Massaður lyfjafræðingur
Ragnheiður stundaði engar íþróttir
að ráði í æsku og því kom það mörg-
um í kringum hana á óvart þegar
hún reið á vaðið og hóf að keppa
í kraftlyftingum upp úr þrítugu.
„Ég átti mjög stuttan handbolta feril
sem barn og var í kikkboxi þegar
ég bjó í Argentínu en annars var ég
ekkert í íþróttum. Það er samt dálít-
ið skrítið að ég hafi ekki verið sett í
íþróttir því ég var mjög kraftmikið
barn og þótti eiginlega skemmtileg-
ast að slást með strákunum,“ rifjar
Ragnheiður upp og hlær.
Auk þess að stunda kraftlyft-
ingarnar af kappi vinnur Ragn-
heiður spennandi starf, en hún er
er hópstjóri í framleiðslueiningu
Sjúkrahúsapóteks Landspítalans.
„Þetta er mjög krefjandi og
skemmtileg vinna. Ég tek líka bak-
vaktir á spítalanum, þannig að þetta
er talsverð vinna og meira en fullt
starf. Við framleiðum lyf fyrir sjúk-
linga sem þurfa lyf í æð inni á spít-
alanum, til dæmis fyrir krabba-
meinslyfjameðferð, næringu fyrir
nýbura og þar fram eftir götunum.“
Kynntist manninum í lyfjafræði
En Ragnheiður ætlaði ekki allt-
af að verða lyfjafræðingur.
„Ég var frekar óákveðin í þessu öllu
saman – ég var upphaflega með vin-
konu minni í lífefnafræði. Hún ætl-
aði í efnafræði og ég ætlaði í líf-
fræði, en við vildum vera saman í
skólanum þannig að við ákváðum að
gera málamiðlun og fara í lífefna-
fræðina saman. Við sátum nokkra
kúrsa með fólki úr lyfjafræði og mér
fannst þau vera í mörgum spenn-
andi fögum sem ég fór á mis við.
Þannig að ég ákvað að prófa. Ég sá
ekki eftir því. Ég kynntist mannin-
um mínum strax á fyrsta ári,“ rifjar
Ragnheiður upp. „Við vorum saman
í bekk í fimm ár og erum enn þá
saman – nýgift,“ heldur hún áfram,
en parið gifti sig í október í fyrra.
„Hann heitir Kjartan Hákonarson
og er lyfjafræðingur hjá Icepharma.
Auk þess spilar hann á trompet með
fjöldamörgum hljómsveitum. Það er
nóg að gera hjá fjölskyldunni,“ segir
hún og hlær. Bergrún Agnes, dóttir
þeirra, varð þriggja ára gömul nú í
júlí.
En hvernig er tími fyrir þetta allt
saman og það að halda úti heimili?
Ragnheiður hlær og segist eiga
dásamlega tengdaforeldra. „Þau búa
í næstu götu og hjálpa okkur rosa-
lega mikið. Við skipuleggjum flesta
daga vel og pössum upp á að eiga
góðar samverustundir.“
Gekk bróður sínum í móðurstað
„Ég missti mömmu mína árið
1995, þegar ég var að verða fjór-
tán ára. Hún dó úr krabbameini.
Upphaflega sögðu læknarnir að
hún ætti eftir að lifa í stuttan
tíma, en hún barðist hetjulega og
lengi en var mikið á spítala. Ég
kvaddi hana oft, en alltaf reis hún
upp aftur,“ útskýrir Ragnheiður.
„Ég á tvær eldri systur, sem eru
mér samfeðra, en svo á ég einn
yngri bróður, sammæðra, sem ég
gekk dálítið í móðurstað á þess-
um árum. Svo þegar mamma var
farin þá flutti hann til móðursyst-
ur minnar en ég flutti til pabba. Við
höfðum alltaf verið í sambandi en
ég hafði aldrei búið hjá honum.“
„Ég fór því úr því að búa við
þröngan kost í kjallara í Garða-
bæ yfir í einbýlishús í Þingholtun-
um hjá pabba. Það voru mikil við-
brigði,“ rifjar Ragnheiður upp.
„Ég bjó um tíma í Noregi sem
krakki og líka úti á landi svo það
hafði aldrei verið mikill samgang-
ur okkar á milli. Ég man að fyrst
rifumst við eins og hundur og kött-
ur en urðum fljótlega perluvinir.
Hann lést árið 2006, en þá var ég
komin vel af stað í lyfjafræðinni,“
segir hún, og dugnaðurinn skín úr
augum hennar.
Ætlaði bara að koma sér í form
Systir Ragnheiðar, Solveig,
plataði hana á hennar fyrstu
æfingu í kraftlyftingum hjá
kraftlyftingaþjálfaranum Ingi-
mundi Björgvinssyni í Gróttu.
„Ég var nýbúin að eiga á þess-
um tíma, í janúar 2012, og mig
langaði að koma mér í form. Það
er barnapössun í World Class
á Nesinu þannig að ég hugsaði
með mér að ég kæmi í þetta með
Sollu í svona mánuð, kannski
tvo,“ útskýrir Ragnheiður.
„Áður en ég vissi af var ég komin
á fullt í kraftlyftingar og farin að
keppa. Ég ætlaði alls ekki að feta
þessa braut og þaðan af síður að
keppa í þessu. En Ingimundur plat-
aði mig til að taka þátt í einu móti.
Hann sagði við mig að þetta væri
góð leið til að koma sér í form, hafa
eitthvað til að stefna að og setja sér
markmið. Mér fannst, held ég, erf-
iðast í þessu í byrjun að stíga svona
langt út fyrir þægindarammann.“
Búnaðurinn ekki sexí
„Búnaðurinn sem maður klæð-
ist er ekkert rosalega sexí,“ segir
Ragnheiður og hlær. „En svo um
leið og ég tók þátt í mínu fyrsta
móti, þar sem ég stóð mig raunar
alls ekki vel, sá ég hvað þetta var
hrikalega skemmtilegt. Ég held
að ég hafi nánast keppt á öllum
mótum sem í boði hafa verið síðan.“
Ragnheiður æfir fjórum sinn-
um í viku, 2-3 tíma í senn,
og hugar vel að mataræðinu.
„Fyrst um sinn skilaði ég inn mat-
ardagbók til þjálfara. Svo þurfti ég
þess bara ekkert lengur. Ég veit
hvað ég þarf að borða til þess að
mér líði vel og ég þarf að borða
nóg. Ef ég er að búa mig undir mót
er það talsvert öðru vísi. Þá huga
ég enn betur að mataræðinu og æfi
frekar stíft, en passa alltaf að hvíla
inn á milli.“
Er á heimslista eftir sigurinn
Eftir að Ragnheiður vann Norð-
urlandameistaramótið suður í
Njarðvík er hún komin á svokall-
aðan heimslista. „Þetta er alþjóð-
legt mót og nú hef ég möguleika
á að fara út að keppa í framhald-
inu. Ég stefni klárlega á Evr-
ópumeistaramótið á næsta ári.“
Aðspurð segist Ragnheið -
ur ekki vera í þessu pening-
anna vegna. „Það eru ekki
peningar í þessu sporti, því
miður,“ segir hún og hlær.
„En konur eru að uppgötva hversu
frábær íþrótt kraftlyftingar eru
til að koma sér í gott form. Flestar
bestu kraftlyftingakonur í heim-
inum eru nettar og í mjög góðu
formi. Lykilatriði í kraftlyfting-
um er góð tækni. Hugurinn þarf
að vera 100% með í æfingunum og
maður getur ekki verið að hugsa
um neitt annað á meðan sem er
mikill kostur við þessa íþrótt.
Maður er bæði að huga að líkam-
legri heilsu og geðheilsunni á sama
tíma. Ég set í algjöran forgang
að mæta á æfingar og ég hlakka
alltaf til þeirra. Og ekki skemm-
ir félagsskapurinn fyrir en ég er
að æfa í hóp með þremur frábær-
um konum,“ segir Ragnheiður að
lokum.
Margur er knár þótt hann sé smár
Ragnheiður Kristín Sigurðardóttir er lyfjafræðingur sem hóf að æfa kraftlyftingar fyrir tilviljun, þegar hún vildi koma sér
í form eftir barnsburð. Nú, rúmum tveimur árum síðar, er hún Norðurlandameistari í greininni í sínum flokki. Ragnheiður
missti báða foreldra sína ung en segist eiga dásamlega tengdaforeldra, sem séu þeim hjónum ómetanleg hjálp.
Kraftlyftingar eru íþrótt þar sem keppt er í hnébeygju, bekkpressu og rétt-
stöðulyftu og ræður samanlagður þyngdarárangur keppnisröð keppenda.
Þá telst það einnig til kraftlyftinga þegar keppt er í einstakri sérgrein
þeirra á landsmóti eða alþjóðlegu móti.
Mótin eru milli keppenda í flokkum, sem aðgreindir eru eftir kyni,
líkamsþunga eða aldri.
Sérhver keppandi fær þrjár tilraunir í hverri grein.
Besta gilda lyfta keppanda í hverri grein myndar samtölu, sem er
samanlagður árangur hans. Ef tveir eða fleiri keppendur ná sama
samanlögðum árangri, þá raðast sá léttari framar hinum þyngri.
Nái tveir keppendur jafn þungir við vigtun sama árangri í samanlögðu,
þá sigrar sá sem fyrstur nær samtölunni.
Hægt er að keppa í tvenns konar kraftlyftingum, klassískum kraft-
lyftingum og kraftlyftingum með búnaði. Klassískar kraftlyftingar eru
kraftlyftingar án búnaðar, það er hnébeygjubrókar, réttstöðulyftubrókar,
bekkpressubols og hnévafninga. Aftur á móti má nota hnéhlífar, úlnliðs-
vafninga og keppnisbelti í báðum tegundum kraftlyftinga.
TVENNS KONAR KRAFTLYFTINGAR
Svo þegar mamma
var farin þá flutti hann
til móðursystur minnar
en ég flutti til pabba. Við
höfðum alltaf verið í
sambandi en ég hafði
aldrei búið hjá honum.
➜ 150 kg í hnébeygju
➜ 87,5 kg í bekkpressu
➜ 162 kg í réttstöðulyftu
RAGNHEIÐUR TEKUR: