Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 32

Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 32
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Ekki er … kyrt eða dautt í inníblum jarðarinnar, því þar geýsar jafnan geigvænlegasta og ablmesta höf-uðskepnan, enn það er eldurinn, sem ástundum brýzt uppúr undir-djúpunum og klýfur sundur fjöll og jökla, enn bráðnað grjót og jarðtegund- ir fljóta eínsog árstraumur, og eýða hvurju sem fyrir verður. Eítthvað er líka að, þegar jarðskjálftarnir fara eínsog hryllíngur yfir hinn ofurstóra líkama jarðarinnar; þá hrynja húsin og björgin klofna, og stundum koma eýar uppúr sjónum, þarsem áður var hyldýpi, ellegar stórhèröð hrapa til grunna, og ekkèrt er eptir nema vatn, þar sem áður voru bygðir manna.“ Ekki veit ég hvaða einkunn sá skólakrakki fengi sem tefldi þessum texta fram í nátt- úrufræðiprófi um hræringarnar í Vatnajökli nú í byrjun skólatíðar, kannski mundi þetta þykja aðeins of mikil persónugerving en reyndar finnst mér þessi lýsing á hamförun- um sem fylgt geta eldgosum alveg prýðileg og mættu kannski blaðamenn taka drama- tík textans sér til fyrirmyndar. En hitt veit ég að ef krakkinn skrifaði þetta í stafsetn- ingarprófi, þá fengi hann núll og gott ef ekki -27 eins og einu sinni var víst hægt. Það mun því kannski koma ýmsum á óvart að þennan texta skrifaði enginn annar en rómaðasti íslenskusnillingur sögunnar, jafn- vel að Halldóri Laxness meðtöldum, nefni- lega skáldið Jónas Hallgrímsson. Þetta er úr grein hans „Um eðli og uppruna jarðar- innar“ sem birtist í fyrsta hefti Fjölnis árið 1835. Leiðréttir textar birtir Útkoma Fjölnis hefur gjarnan þótt marka mikil tímamót í sögu varnarbaráttu íslenskrar tungu, sem sögð er hafa verið komin ansi illa að fótum fram í upphafi 19. aldar. Og eins og annað fólk á mínu reki lærði ég í skóla um mikilvægi þeirra Fjöln- ismanna, en man að ég furðaði mig stund- um á því að við skyldum ekki vera látin lesa neitt að ráði af textum upp úr Fjölni; það var helst kvæðið „Ísland, farsælda frón“ sem við fengum að lesa. En ég skildi þetta betur þegar ég fór einu sinni sjálfur á bókasafn og blaðaði í Fjölni, þá sá ég að jafnvel hið rómaða kvæði Jónasar var í Skólaljóðunum birt með „leiðréttri“ stafsetningu, okkur var ekki treyst fyrir stafsetningu Jónasar sjálfs. Annars var það víst ekki Jónas sem réði FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson furðaði sig á því hve sjaldan orð- réttir kaflar úr Fjölni birtust í skólabókunum. Ástæðan var að stafsetning Konráðs Gísla- sonar þótti óbrúkleg. Í inníblum jarðarinnar geýsar ablmesta höfuðskepnan Stund- um koma eýar uppúr sjónum, þarsem áður var hyldýpi, ellegar stórhèröð hrapa til grunna, og ekkèrt er eptir nema vatn, þar sem áður voru bygðir manna. stafsetningu Fjölnis fyrsta kastið, heldur félagi hans og vinur, Konráð Gíslason. Hann hafði kannski mest áhrif allra á íslenska stafsetningu en stóð jafnvel á mínum skóla- árum í skugga Jónasar meðal Fjölnismanna, hvað þá heldur núna, en saga hans var að sumu leyti dæmigerð en að sumu leyti ein- stæð saga íslensks menntamanns á 19. öld. Merkur maður Konráð var fæddur á Löngumýri í Vall- hólmi, foreldrar Gísli Konráðsson bóndi og fræðaþulur og sagnaritari og Evfemía Benediktsdóttir. Fyrsti kennari hans var „mín ástríka og guðhrædda móðir“, hún kenndi honum á sjötta ári lestur, skrift og ágrip af veraldarsögu. Gísli og Evfemía voru fremur fátæk og gekk Konráð til allra algengra sveitastarfa í æsku, var smali og „vandist fljótt við þetta frjálsa, óstöðuga og einmanalega líf og fór að fá óbeit á inni- verum“. Hann sótti síðar sjó, en námfýsi hans fór aldrei milli mála. Með hjálp góðra manna komst hann til Kaupmannahafnar og endaði í málvísindum. Þá kynntist hann Jónasi Hallgrímssyni og mun hafa kveikt áhuga hjá Jónasi á hinu ljóðræna og róman- tíska þýska skáldi Heinrich Heine sem „ann frelsinu, eins og allir þeir sem bestir og vitr- astir eru“. Tómas Sæmundsson hafði um þetta leyti forgöngu um stofnun Fjölnis og fékk til liðs við sig Konráð, Jónas og Brynj- ólf Pétursson. Konráð annaðist skrif Fjölnis um íslenskt mál og lagði til hina nýju staf- setningu sem átti að fara mjög nærri fram- burði. Umfram allt vildi Konráð þó bæta og hreinsa málið af „bjöguðum dönskuslett- um í orðum og talsháttum“ og réðist gegn þeim „golþorskum með eintrjáningssálirn- ar“ sem sögðu að íslenskan væri „ósveigjan- leg og óhæfileg til að taka á móti skáldskap og vísindum“, af því að þeir sjálfir „vaða á bægslunum gegnum vísindin og gleypa hug- myndirnar eins búnar og þær verða á vegi fyrir þeim, og þá vill stundum svo óheppi- lega til að hugmyndin sjálf skreppur í burtu, svo ekki er eftir annað en danski búningur- inn. … Við finnum að hin íslenska tunga er sameign okkar allra saman, og við finnum að hún er það besta sem við eigum.“ Og Konráð hélt áfram: Ef íslenskan yrði lögð niður og tekin upp danska „hvað yrðum við þá annað en brjóstumkennanleg aum- ingjaþjóð, sem hefði reynt að murka úr sér lífið, en ekki tekist það nema til hálfs? Hvað yrði úr okkur, segi ég enn og aftur, utan fáráð afturganga … en ekki lifandi þjóð?“ Málstefna Fjölnis, sem mótuð var af Konráð, hafði meiri áhrif á þróun íslenskunnar en flest annað, þótt hin upphaflega stafsetning hans fengi mjög misjafnar viðtökur. Í síð- ustu árgöngum Fjölnis endurskoðaði Konráð raunar að verulegu leyti skoðanir sínar á stafsetningu og urðu nýju reglurnar hans þá undirstaða þeirrar stafsetningar sem notuð er enn í dag. Í „Bókafregnum“ sínum í Fjölni lagði hann höfuðáherslu á fegurð málsins og gerði mjög strangar kröfur. Tungumálið var kjarni þjóðernisins í hans augum. „Þjóðerni vort, sem einkanlega er fólgið í málinu, hefur verið troðið undir fótum og hörmulega saurgað og svívirt margar aldir í sífellu … Hvert er þetta ljós, degi bjartara og sólu varmara, sem skín yfir lönd og lýði, og sýnir mönnunum að þeir eru menn, en ekki skynlaus kvikindi? Hvað er það annað en málið, óskabarn mannlegs anda. Og sé nokkur sá, að minnsta kosti í menntaðra manna tölu, að einu gildi hvernig málið er og hvernig með það er farið – er honum þá ekki nærri því ofnefni að heita maður?“ Í miklum metum Konráð fékkst við margvísleg merk fræða- störf í Kaupmannahöfn og 1846 fékk hann kennarastöðu við Lærða skólann í Reykja- vík og hugðist flytja til Íslands með heitmey sína danska. En síðan andaðist heitmey hans og hann hætti þá við að flytja heim. Konráð varð að lokum prófessor í Kaupmannahöfn. 1855 gekk hann að eiga systur heitmeyjar sinnar sálugu og gekk vanheilum syni henn- ar í föður stað en átti ekki börn sjálfur. Var lengst af fremur þröngt í búi hans en rætt- ist úr á síðari hluta ævinnar. Konráð vann að fræðistörfum sínum af fádæma iðni og þótt hann hefði á seinni hluta ævinnar lítil afskipti af íslenskum málefnum almennt var hann í metum meðal íslenskra stúdenta og hélt kröfuhörku sinni um fagurt mál óskertri. Hann skrifaði Birni M. Ólsen 1885 sex árum fyrir andlát sitt: „Ósköp þætti mér vænt um ef þér vilduð taka að yður … kven- væflu, sem hefur verið sæmilegur kven- maður á unga aldri, en nú er orðin púta og hefur [fransós=sárasótt] eða er að minnsta kosti danósa. Þessi aumingja kvenvæfla er íslenskan. Mér er nærri því sama hvernig hún er, ef hún er ekki danósa. Við Íslend- ingar, að minnsta kosti vel flestir, förum með hana eins og við værum djöflar en ekki menn.“ KONRÁÐ GÍSLASON: „Hvað yrðum við þá annað en brjóstumkennanleg aumingjaþjóð, sem hefði reynt að murka úr sér lífið, en ekki tekist það nema til hálfs? Hvað yrði úr okkur, segi ég enn og aftur, utan fáráð aftur- ganga … en ekki lifandi þjóð?“ MEDILINE Heilsurúm Íslenskt hugvit og hönnun 20% AFSLÁTTUR Verð: 154.160.- MINIMAL Svefnsófi Margir litir - (140x195cm) 20-50% A F S L Á T T U R 160x200cm án höfðagafls 20% aukaafsláttur af sýningarrúmum Síðumúla 30 - Reykjavík | Hofsbót 4 - Akureyri 50% AFSLÁTTUR Verð: 149.990.- Nokkrir sófar eftir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.