Fréttablaðið - 30.08.2014, Blaðsíða 34
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 34
Brandarar
Lestrarhestur sumarsinsi
Hvað er skemmtilegast við bækur? „Þær eru
spennandi og maður fer inn í annan heim.“
Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún?
„Rökkurhæðir– Kristófer. Kristófer fann dúkku
sem hann gaf systur sinni í afmælisgjöf og svo
reyndist dúkkan lifandi og vond.“
Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi
hjá þér? „Ronja ræningjadóttir eftir Astrid Lind-
gren– af því að ég heiti Ronja og svo var það líka
Kötturinn með höttinn eftir dr. Seuss.“
Hvers lags bækur þykir þér skemmtilegastar?
„Hræðilegar bækur því þá getur maður ekki hætt
að lesa.“
Í hvaða skóla gengur þú? „Vogaskóla.“
Ferðu oft á bókasafnið? „Já, tvisvar, þrisvar sinn-
um í viku, bæði í aðalsafnið og í Sólheimasafn.“
Hver eru þín helstu áhugamál? „Aðaláhugamál
mitt er að dansa og ég æfi dans í World Class.“
Í verðlaun fékk Ronja Lenovo-spjaldtölvu frá
Nýherja, ávísun á rafbókina Tímakistuna eftir
Andra Snæ Magnason frá Forlaginu og bókina
Bróðir minn ljónshjarta eftir Astrid Lindgren, jafn-
framt gefin út af Forlaginu.
Ronja Auður Pálínudóttir 11 ára
SIGUR-
VEGARINN
Ronja
Auður með
vinkonur
sínar,
Freyju
Dögg og
Nönnu
Bríeti,
hvora til
sinnar
handar.
Að venju efna Borgarbókasafn og Reykjavík Bókmenntaborg til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá les-
endur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og skila í kassa sem eru í öllum söfnum Borgarbókasafns. Vikulega
er dregið eitt nafn úr kassanum og Lestrarhestur vikunnar útnefndur, sem hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Geggjað gaman að
vera byrjuð í skóla
Það eru mikil tímamót að hefj a skólagöngu í fyrsta sinn en Fréttablaðið tók nokkur
nýbökuð skólabörn tali sem eru sammála að það sé frábært að vera sest á skólabekk.
Nafn: Úlfdís Vala Brekadóttir.
Skóli: Laugarnesskóli.
Er gaman að vera byrjuð í skóla? Já, það er geggjað gaman.
Hvað heitir kennarinn þinn? Kristrún.
Hvað er skemmtilegast? Að vera úti að leika með
Þóru vinkonu minni.
Þekkirðu stafina? Ekki alveg alla.
Hver er uppáhaldsbókin þín? Ævintýrabækur.
Nafn: Sigríður Salka Ólafsdóttir.
Skóli: Hólabrekkuskóli.
Er gaman að vera byrjuð í skóla? Já, af því mig langaði svo að
vita hvernig væri í skóla.
Hvað heitir kennarinn þinn? Helga Olsen.
Hvað er skemmtilegast? Það er skemmtilegast í frímínútum.
Þekkirðu stafina? Já, flesta.
Hver er uppáhaldsbókin þín? Blái hnötturinn.
Nafn: Ólafur Grettir Valsson.
Skóli: Barnaskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík.
Er gaman að vera byrjaður í skóla? Já, það er mjög gaman.
Hvað heitir kennarinn þinn? Heiða Brynja.
Hvað er skemmtilegast? Það er skemmtilegast að vera úti að
leika.
Þekkirðu stafina? Já og ég kann að lesa.
Hver er uppáhaldsbókin þín? Herramannabækurnar því mér
finnst þær svo fyndnar og skemmtilegar. Herra Klaufi er samt
fyndnastur.
Nafn: Viktor Steinn Sverrisson.
Skóli: Langholtsskóli.
Er gaman að vera byrjaður í skóla? Já mér þykir rosalega
gaman að vera loksins byrjaður í skólanum.
Hvað heitir kennarinn þinn? Kennarinn minn heitir Þórdís.
Hvað er skemmtilegast? Mér þykir skemmtilegast að vera í
frístund og frímínútum.
Þekkirðu stafina? Já, ég þekki flesta stafina.
Hver er uppáhaldsbókin þín? Herramennirnir.
Amma: „Hvernig líkaði þér peysan
sem ég prjónaði á þig um daginn,
Pétur minn?“
Pétur: „Alveg ágætlega. Hún er bara
dálítið víð um ökklana.“
Lína: „Stelpur eru langtum gáfaðri
en strákar.“
Jens: „Ekki vissi ég það.“
Lína: „Þarna sérðu.“
Viðskiptavinurinn: „Af hverju ætli
jarðarberin séu rauð?“
Kaupmaðurinn (hikandi): „Ætli það
sé ekki af því að þau skammast sín
svo fyrir hvað þau eru dýr?“
Sigga: „Hann Óli minn er eins árs í
dag og hann er búinn að ganga síðan
hann var níu mánaða.“
Gunna: „Aumingja drengurinn,
ósköp hlýtur hann að vera orðinn
þreyttur.“