Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 70
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 20144
GIST Í GÖMLUM TURNI
Á lista Lonely Planet yfir
mögnuðustu hótel heims er
meðal annarra Torre Prendiparte
í Bologna á Ítalíu sem var meðal
annars notað sem fangelsi um
tíma. Listann tóku blaðamenn
vefsíðunnar saman en á honum
eru þeir gististaðir sem þeim
fannst merkilegast að gista á í
öllum sínum fjölmörgu ferðum
um heiminn.
Þegar gist er í þessum níu
hundruð ára gamla og sextíu
metra háa turni er ekki aðeins
eitt herbergi í boði heldur allur
turninn. Gistirýmið er á fyrstu
tveimur hæðunum, þar er meðal
annars vel búin stofa, stórt svefn-
loft og eldhús. Fyrir ofan eru
gömlu fangageymslurnar og á
þakinu er verönd þar sem útsýnið
yfir Bologna er stórfenglegt.
Torre Prendiparte var notaður sem
fangelsi á 18. öld. MYND/GETTY
UNDUR HAFSINS TIL
BRETLANDS
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
Undur hafsins, eða The Wonders
of the World’s Oceans, verður
haldin víðs vegar um Bretland í
september og október. Á hátíð-
inni, sem upphaflega var haldin
í Ástralíu, verða sýndar ellefu af
áhrifaríkustu sjávarstuttmyndum
heims. Þær eru skeyttar saman
í tveggja tíma prógramm og fá
áhorfendur þannig magnaða
innsýn inn í líf kafara, brimbretta-
kappa, sundfólks og sjávardýra.
Hátíðin hefst 4. september í
Truro í Cornwall og ferðast svo til
17 bæja og borga víðs vegar um
landið til 30. október.
Þeir sem eiga leið um geta
skoðað dagskrána á www.
oceanfilmfestival.co.uk.
ÍSLAND ER EYJA ANDAGIFTAR
Ísland er töfrum gætt í augum útlendra gesta og vitaskuld endalaus uppspretta
ævintýra fyrir landsmenn um farsæla Frón. Í vikunni birtist á ferðasíðum BBC
lofræða um ágæti Íslands. Þar segir að miðað við höfðatölu eigi Ísland fleiri rit-
höfunda en nokkurt annað land í heiminum og að þar hafi fæðst mikils metnir
rithöfundar og bókmenntir undanfarið árþúsund. Því til stuðnings eru víðfrægar
Íslendingasögurnar nefndar, auk almennra skáldverka og ljóða, að ógleymdum
Nóbelshafanum Halldóri Kiljan Laxness.
Helstu áhrifavaldar eru sagðir stórbrotið landslag íslenskrar náttúru, óvið-
jafnanlegur menningararfur og ófyrirsjáanlegt veðurfar sem hafi einnig haft áhrif
á nafntogaða höfunda utan íslenskra landsteina. Þannig eru sögur af íslenskum
víkingum sagðar hafa fyllt JRR Tolkien andagift og íslenskt landslag spila æ stærri
rullu í umgjörð kvikmynda á borð við Die Another Day og sjónvarpsþátta eins og
Game of Thrones. Þá hafi Reykjavík verið útnefnd bókmenntaborg Unesco árið
2011 vegna ástar íslensku þjóðarinnar á bókmenntum og skáldskap.
EX
PO
•
w
w
w
.e
xp
o.
is
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR!
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka á: 3.500 kr.
1.750 kr.*
FYRIR AÐEINS
Frí þráðlaus internet -
tenging í öllum bílum
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Alltaf laus sæti Alltaf ferðir
Hagkvæmur kostur Umhverfisvænt
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
main@re.is • www.re.is
Skannaðu strikamerkið
með snjallsímanum og
kynntu þér áætlunina.
Kauptu miða núna á
www.flugrutan.is
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.