Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 90

Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 90
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 46 Fredrik T. Olsson hefur starfað sem höfundur að kvikmynda- handritum og sjónvarpsþáttum síðustu átján ár og hefur skrif- að bæði spennu- og gamanþætti auk þess að vera uppistandari í Svíþjóð. En Síðasti hlekkurinn er hans frumraun í skáldsagna- skrifum. Hún hefur rokselst og því sendi ég kappanum nokkrar spurningar sem hann svaraði um hæl. Þar sem Síðasti hlekkurinn er þín fyrsta bók vaknar spurning- in: Hefurðu skrifað mikið fyrir skúffuna fram að þessu? „Eiginlega ekki – og ég er næstum með slæma samvisku þar sem fólk skrifar venjulega og skrifar og berst við að fá eitthvað útgefið árum saman áður en það tekst. En þetta var mín fyrsta til- raun og meðan ég skrifaði vissi ég ekkert (vonaði auðvitað – en vissi ekki) hvort hún yrði gefin út. Að vissu leyti er svarið líka já. Ég hef skrifað mikið gegnum tíðina þótt það hafi verið í formi handrita fyrir sjónvarp og kvik- myndir. Svo segja má að ég hafi æft mig og þroskað og yddað minn stíl og að sú kunnátta hafi komið mér til góða við gerð bók- arinnar. Ég hef bara verið svo heppinn að skrif mín hafa ekki hafnað í skúffunni heldur verið send í sjónvarpið.“ Geturðu lýst útgáfusögunni? „Svíþjóð var fyrsta landið sem bókin kom út í en Finnland númer tvö, mánuði seinna. Þegar bókin hafnaði á bókamessunni í London 2013 var hún fullskrifuð og samningur um útgáfu henn- ar hjá sænska forlaginu mínu, Wahlström & Widstrand, var frágenginn. En á messunni seld- ist hún til fjölda landa. Mörg for- lög hafa fólk sem kann sænsku í sinni þjónustu. Svo höfðum við látið þýða fyrstu hundrað síðurn- ar á ensku og þeir sem heilluðust fengu sænskumælandi lesara til að ljúka við hana og dæma. Meðan við lögðum svo loka- hönd á sænsku útgáfuna, kápu, prentun og kynningu var hún þýdd erlendis, meðal annars á Íslandi. Á þessu ári kemur hún út, að mér skilst, í átta löndum fyrir utan Svíþjóð. Hún er þegar komin út í Finnlandi, Bretlandi, á Ítalíu og Íslandi og í haust bætast Danmörk, Þýskaland, Bandaríkin og Tyrkland við. Samtals er hún seld til 25 landa, sem mér finnst svo æðislegt að ég veit ekki hvað ég á af mér að gera!“ Ertu ánægður með dómana? „Já, virkilega. Frá því að hafa setið við skrifborðið og ekk- ert vitað hvort ég væri bara að skrifa fyrir sjálfan mig og til þess að fá svona ótrúleg viðbrögð er hreint ævintýri fyrir mig.“ Hver nig kom st War n er Brothers á slóð þína? „Það er óráðin gáta. Ég og útgefendur mínir urðum mjög hissa þegar fyrirtækið hafði samband. Ég sat seint um kvöld í sumarbústaðnum og kepptist við að ljúka þætti í sjónvarpsser- íu þegar allt í einu poppaði upp tölvupóstur frá Warner Brothers. Það tók góða stund að átta mig á að þetta væri ekki hrekkur frá einhverjum. En trúlega hefur einhver af erlendu útgefendun- um haft samband við Warner Brothers og sagt frá bókinni. Svo gekk allt upp. Sem handritshöfundur kvik- mynda hef ég auðvitað oft látið mig dreyma um Hollywood. Þess vegna var það margföld ánægja fyrir mig þegar Hollywood hafði samband að fyrra bragði.“ Fredrik kveðst hafa fæðst í hauststormunum 1969 og alist upp rétt fyrir utan Gautaborg. En hvað las hann í uppvextinum? „Allt. En spennandi varð það að vera og helst svolítið flókið. Ef ég á að velja eitthvað sem hefur mótað mig sem persónu þá er það Tinni. Það skipti engu máli hversu oft ég las Tinnabækurnar mínar, þær hættu aldrei að vera spennandi og áhugaverðar og vekja hjá mér furðu. Hvort það var Tinni sem vakti áhuga minn á sögum, eða hitt að ég dýrkaði Tinna af því að ég elskaði sögur, veit ég ekki. En enn, sem full- orðinn maður, á ég erfitt með að heimsækja nýtt land án þess að langa að kaupa Tinnabók á tungumáli þess.“ Skrifaðir þú mikið sem barn? Foreldrar mínir hafa sagt mér nýlega að sem strákpjakkur hafi ég oft sagt að ég ætlaði að verða rithöfundur þegar ég yrði stór. Ég virðist bara hafa gleymt því í þrjátíu, fjörutíu ár! En ég óskaði mér ritvélar í afmælisgjöf þegar ég var tíu ára og sat síðan heilu tímana framan við mína hvítu Olympia Traveller deLuxe og skrifaði smásögur og texta. Ég gladdist líka í hvert skipti sem ég fékk að skrifa ritgerð í skól- anum. Meðan bekkjarfélagarnir stundu og fannst þetta erfiðast af öllu sat ég og spann upp sögur sem uxu svo mikið að mér tókst aldrei að ljúka þeim áður en tím- inn var búinn.“ Hefur einhver rithöfundur haft áhrif á þig? „Ég fæ oft þá spurningu hvort ég eigi mér fyrirmynd en satt að segja á ég engan uppáhalds rit- höfund. En ég hreinlega dýrka sögur sem fanga mig, fá mig til að gleyma öllu öðru um stund og lifa mig inn í veröldina sem þær lýsa.“ Hvernig kom hugmyndin að Síðasta hlekknum til þín? „Hún bara kom og ég hélt í byrjun að ég væri með kvik- myndahandrit. En þegar á leið varð ég viss um að myndin yrði of flókin í framkvæmd fyrir sænska framleiðendur og óttað- ist að ég væri að skrifa handrit sem enginn hefði ráð á að mynda. Svo ég ákvað að skrifa bók í stað- inn, hafði það bara sem hobbí og skrifaði sjónvarpsseríur á dag- inn. Það var fyrst þegar góður vinur minn fékk að lesa fjórða- part af sögunni og næstum þvingaði mig til að koma henni til forlags sem allt fór af stað.“ Ertu vinsæll uppistandari í Svíþjóð? „Ef þú hefðir spurt mig fyrir 25 árum hvað ég byggist við að gera í dag hefði ég skotið á leikarann. Ég byrjaði snemma í skólaleikritum og fyndnum sketsum í veislum og um tvítugs- aldurinn fór ég til Stokkhólms í leiklistarnám í þeirri trú að ég yrði leikari og vann fyrir mér með handritsskrifum. Löngun til að fá bein viðbrögð frá áhorf- endum og njóta þess að fá þá til að hlæja blundar enn í mér. En uppistandið er alger hliðargrein hjá mér og þó ég hafi gaman af því vantar mig hreinlega oft tíma í sólarhringinn til að sinna því. Svo ég tek bara stuttar skorpur þegar löngunin til að fara upp á svið og skemmta mér með gest- um lætur mig ekki í friði. Að lokum – ertu byrjaður á annarri bók? „Jamm. Ég er byrjaður að fylgja eftir fyrstu bókinni en er stutt á veg kominn og vil ekki segja of mikið. Nema hvað sagan gerist á undan Síðasta hlekkn- um.“ Fyrsta bókin strax seld til 25 landa Hinn sænski Fredrik T. Olsson varð heltekinn af hrollvekjandi hugmynd sem spratt fram og varð að að efni í hans fyrstu bók. Hún nefn- ist Slutet på kedjan á frummálinu og Síðasti hlekkurinn í íslenskri þýðingu Ísaks Harðarsonar sem Forlagið hefur gefi ð út. Sagan hefur slegið í gegn og seldist til 25 landa áður en hún kom út á frummálinu. Nú hafa Warner Brothers keypt réttinn til að kvikmynda hana. RITHÖFUNDURINN „Sem höfundur kvikmyndahandrita hef ég auðvitað oft látið mig dreyma um Hollywood. Þess vegna var það marg föld ánægja fyrir mig þegar Hollywood hafði samband við mig að fyrra bragði,“ segir Fredrik T. Olsson um tölvupóstinn frá Warner Brothers. MYND/WAHLSTRÖM&WIDSTRAND Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Hafseltan fyllti enn vit Franquins þegar hann klöngraðist upp hriktandi tröppurnar, fram hjá hvínandi þotuhreyfl- unum, gekk inn ganginn á milli ljósbrúnna hægindastólanna og settist í einn þeirra. Þetta var allt annað en gott á nokkurn hátt. Ein af skipsþyrlunum hafði flutt þá til baka frá skipinu til portúgölsku Nató-stöðvarinnar þar sem þotan þeirra hafði fengið tímabundið aðsetur og hver ferð þeirra, hver lending, hver manneskja sem þeir urðu að eiga samskipti við, jók líkurnar á að þeir smituðust og leggðu alla framkvæmdina í hættu. En að minnsta kosti fékk hann nokkurra tíma hvíld frá skipinu. Og á meðan hann fann vélina aka að flugbrautinni lygndi hann aftur augunum og reyndi að gera sér í hugarlund hvað biði hans. Hvert Connors hefði farið. Þyrluna. Hvort flugmaður hennar hefði hlýtt fyrirskipun hans. Hann hallaði sér aftur í sætið og taldi í huganum. Eftir örfáar klukkustundir yrðu þeir komnir til baka til hallarinnar. Þá myndi þetta koma í ljós. Kafli númer 56
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.