Fréttablaðið - 30.08.2014, Qupperneq 90
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 46
Fredrik T. Olsson hefur starfað
sem höfundur að kvikmynda-
handritum og sjónvarpsþáttum
síðustu átján ár og hefur skrif-
að bæði spennu- og gamanþætti
auk þess að vera uppistandari í
Svíþjóð. En Síðasti hlekkurinn
er hans frumraun í skáldsagna-
skrifum. Hún hefur rokselst og
því sendi ég kappanum nokkrar
spurningar sem hann svaraði um
hæl.
Þar sem Síðasti hlekkurinn er
þín fyrsta bók vaknar spurning-
in: Hefurðu skrifað mikið fyrir
skúffuna fram að þessu?
„Eiginlega ekki – og ég er
næstum með slæma samvisku
þar sem fólk skrifar venjulega og
skrifar og berst við að fá eitthvað
útgefið árum saman áður en það
tekst. En þetta var mín fyrsta til-
raun og meðan ég skrifaði vissi
ég ekkert (vonaði auðvitað – en
vissi ekki) hvort hún yrði gefin
út.
Að vissu leyti er svarið líka
já. Ég hef skrifað mikið gegnum
tíðina þótt það hafi verið í formi
handrita fyrir sjónvarp og kvik-
myndir. Svo segja má að ég hafi
æft mig og þroskað og yddað
minn stíl og að sú kunnátta hafi
komið mér til góða við gerð bók-
arinnar. Ég hef bara verið svo
heppinn að skrif mín hafa ekki
hafnað í skúffunni heldur verið
send í sjónvarpið.“
Geturðu lýst útgáfusögunni?
„Svíþjóð var fyrsta landið
sem bókin kom út í en Finnland
númer tvö, mánuði seinna. Þegar
bókin hafnaði á bókamessunni í
London 2013 var hún fullskrifuð
og samningur um útgáfu henn-
ar hjá sænska forlaginu mínu,
Wahlström & Widstrand, var
frágenginn. En á messunni seld-
ist hún til fjölda landa. Mörg for-
lög hafa fólk sem kann sænsku
í sinni þjónustu. Svo höfðum við
látið þýða fyrstu hundrað síðurn-
ar á ensku og þeir sem heilluðust
fengu sænskumælandi lesara til
að ljúka við hana og dæma.
Meðan við lögðum svo loka-
hönd á sænsku útgáfuna, kápu,
prentun og kynningu var hún
þýdd erlendis, meðal annars á
Íslandi. Á þessu ári kemur hún
út, að mér skilst, í átta löndum
fyrir utan Svíþjóð. Hún er þegar
komin út í Finnlandi, Bretlandi,
á Ítalíu og Íslandi og í haust
bætast Danmörk, Þýskaland,
Bandaríkin og Tyrkland við.
Samtals er hún seld til 25 landa,
sem mér finnst svo æðislegt að
ég veit ekki hvað ég á af mér að
gera!“
Ertu ánægður með dómana?
„Já, virkilega. Frá því að hafa
setið við skrifborðið og ekk-
ert vitað hvort ég væri bara að
skrifa fyrir sjálfan mig og til
þess að fá svona ótrúleg viðbrögð
er hreint ævintýri fyrir mig.“
Hver nig kom st War n er
Brothers á slóð þína?
„Það er óráðin gáta. Ég og
útgefendur mínir urðum mjög
hissa þegar fyrirtækið hafði
samband. Ég sat seint um kvöld
í sumarbústaðnum og kepptist
við að ljúka þætti í sjónvarpsser-
íu þegar allt í einu poppaði upp
tölvupóstur frá Warner Brothers.
Það tók góða stund að átta mig á
að þetta væri ekki hrekkur frá
einhverjum. En trúlega hefur
einhver af erlendu útgefendun-
um haft samband við Warner
Brothers og sagt frá bókinni. Svo
gekk allt upp.
Sem handritshöfundur kvik-
mynda hef ég auðvitað oft látið
mig dreyma um Hollywood. Þess
vegna var það margföld ánægja
fyrir mig þegar Hollywood hafði
samband að fyrra bragði.“
Fredrik kveðst hafa fæðst í
hauststormunum 1969 og alist
upp rétt fyrir utan Gautaborg.
En hvað las hann í uppvextinum?
„Allt. En spennandi varð það
að vera og helst svolítið flókið. Ef
ég á að velja eitthvað sem hefur
mótað mig sem persónu þá er
það Tinni. Það skipti engu máli
hversu oft ég las Tinnabækurnar
mínar, þær hættu aldrei að vera
spennandi og áhugaverðar og
vekja hjá mér furðu. Hvort það
var Tinni sem vakti áhuga minn
á sögum, eða hitt að ég dýrkaði
Tinna af því að ég elskaði sögur,
veit ég ekki. En enn, sem full-
orðinn maður, á ég erfitt með
að heimsækja nýtt land án þess
að langa að kaupa Tinnabók á
tungumáli þess.“
Skrifaðir þú mikið sem barn?
Foreldrar mínir hafa sagt mér
nýlega að sem strákpjakkur hafi
ég oft sagt að ég ætlaði að verða
rithöfundur þegar ég yrði stór.
Ég virðist bara hafa gleymt því í
þrjátíu, fjörutíu ár! En ég óskaði
mér ritvélar í afmælisgjöf þegar
ég var tíu ára og sat síðan heilu
tímana framan við mína hvítu
Olympia Traveller deLuxe og
skrifaði smásögur og texta. Ég
gladdist líka í hvert skipti sem
ég fékk að skrifa ritgerð í skól-
anum. Meðan bekkjarfélagarnir
stundu og fannst þetta erfiðast
af öllu sat ég og spann upp sögur
sem uxu svo mikið að mér tókst
aldrei að ljúka þeim áður en tím-
inn var búinn.“
Hefur einhver rithöfundur haft
áhrif á þig?
„Ég fæ oft þá spurningu hvort
ég eigi mér fyrirmynd en satt að
segja á ég engan uppáhalds rit-
höfund. En ég hreinlega dýrka
sögur sem fanga mig, fá mig til
að gleyma öllu öðru um stund og
lifa mig inn í veröldina sem þær
lýsa.“
Hvernig kom hugmyndin að
Síðasta hlekknum til þín?
„Hún bara kom og ég hélt í
byrjun að ég væri með kvik-
myndahandrit. En þegar á leið
varð ég viss um að myndin yrði
of flókin í framkvæmd fyrir
sænska framleiðendur og óttað-
ist að ég væri að skrifa handrit
sem enginn hefði ráð á að mynda.
Svo ég ákvað að skrifa bók í stað-
inn, hafði það bara sem hobbí og
skrifaði sjónvarpsseríur á dag-
inn. Það var fyrst þegar góður
vinur minn fékk að lesa fjórða-
part af sögunni og næstum
þvingaði mig til að koma henni
til forlags sem allt fór af stað.“
Ertu vinsæll uppistandari í
Svíþjóð?
„Ef þú hefðir spurt mig fyrir
25 árum hvað ég byggist við
að gera í dag hefði ég skotið á
leikarann. Ég byrjaði snemma
í skólaleikritum og fyndnum
sketsum í veislum og um tvítugs-
aldurinn fór ég til Stokkhólms í
leiklistarnám í þeirri trú að ég
yrði leikari og vann fyrir mér
með handritsskrifum. Löngun
til að fá bein viðbrögð frá áhorf-
endum og njóta þess að fá þá til
að hlæja blundar enn í mér. En
uppistandið er alger hliðargrein
hjá mér og þó ég hafi gaman af
því vantar mig hreinlega oft tíma
í sólarhringinn til að sinna því.
Svo ég tek bara stuttar skorpur
þegar löngunin til að fara upp á
svið og skemmta mér með gest-
um lætur mig ekki í friði.
Að lokum – ertu byrjaður á
annarri bók?
„Jamm. Ég er byrjaður að
fylgja eftir fyrstu bókinni en er
stutt á veg kominn og vil ekki
segja of mikið. Nema hvað sagan
gerist á undan Síðasta hlekkn-
um.“
Fyrsta bókin strax seld til 25 landa
Hinn sænski Fredrik T. Olsson varð heltekinn af hrollvekjandi hugmynd sem spratt fram og varð að að efni í hans fyrstu bók. Hún nefn-
ist Slutet på kedjan á frummálinu og Síðasti hlekkurinn í íslenskri þýðingu Ísaks Harðarsonar sem Forlagið hefur gefi ð út. Sagan hefur
slegið í gegn og seldist til 25 landa áður en hún kom út á frummálinu. Nú hafa Warner Brothers keypt réttinn til að kvikmynda hana.
RITHÖFUNDURINN „Sem höfundur kvikmyndahandrita hef ég auðvitað oft látið mig dreyma um Hollywood. Þess vegna var það marg föld
ánægja fyrir mig þegar Hollywood hafði samband við mig að fyrra bragði,“ segir Fredrik T. Olsson um tölvupóstinn frá Warner Brothers.
MYND/WAHLSTRÖM&WIDSTRAND
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Hafseltan fyllti enn vit Franquins þegar hann klöngraðist upp hriktandi tröppurnar, fram hjá hvínandi þotuhreyfl-
unum, gekk inn ganginn á milli ljósbrúnna hægindastólanna og settist í einn þeirra.
Þetta var allt annað en gott á nokkurn hátt.
Ein af skipsþyrlunum hafði flutt þá til baka frá skipinu til portúgölsku Nató-stöðvarinnar þar sem þotan þeirra hafði
fengið tímabundið aðsetur og hver ferð þeirra, hver lending, hver manneskja sem þeir urðu að eiga samskipti við,
jók líkurnar á að þeir smituðust og leggðu alla framkvæmdina í hættu.
En að minnsta kosti fékk hann nokkurra tíma hvíld frá skipinu. Og á meðan hann fann vélina aka að flugbrautinni
lygndi hann aftur augunum og reyndi að gera sér í hugarlund hvað biði hans.
Hvert Connors hefði farið.
Þyrluna.
Hvort flugmaður hennar hefði hlýtt fyrirskipun hans.
Hann hallaði sér aftur í sætið og taldi í huganum.
Eftir örfáar klukkustundir yrðu þeir komnir til baka til hallarinnar.
Þá myndi þetta koma í ljós.
Kafli númer 56