Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 8

Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 8
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 STJÓRNSÝSLA Samband íslenskra sveitarfélaga undrast að ekki hafi verið haft samráð við það vegna fyrirhugaðs samnings velferðar- ráðuneytisins við meðferðarheim- ilið Háholt í Skagafirði. „Ég hef sent tölvupósta á skrif- stofustjóra í velferðarráðuneytinu og forstöðumann Barnaverndar- stofu og sagt þeim að það hafi nú verið boðað til fundar af minna tilefni. Ég hef ekki fengið svar,“ segir Guðjón Bragason, sviðs- stjóri lögfræði- og velferðarsviðs hjá Sambandi íslenskra sveitar- félaga. Hann bætir við að sam- bandið taki ekki beina afstöðu til þess hvort halda eigi áfram rekstri Háholts eða ekki. Það sé þó skýr afstaða sambandsins að innan þessa málaflokks skuli gæta vel að með- ferð fjár og setja fjár- muni í úrræði sem nýtast. „Ef þessi úrræði standa tóm vegna þess að Barna- verndarstofa telur ekki ástæðu til að nýta þau vakna spurningar um hvort eigi að halda þessu úrræði áfram.“ Hinrik Már Jónsson, annar tveggja forstöðumanna heimilis- ins, gefur ekki mikið fyrir gagn- rýni á lélega nýtingu á heimilinu. Hann segir óskandi að nýtingin væri 100 prósent að öllu jöfnu en það sé því miður ekki raunin. Inntur eftir því hvað starfsmenn, sem eru ell- efu talsins, geri á vökt- um þegar enginn eða fáir unglingar dvelja á heim- ilinu í lengri tíma, segir Hinrik að slíkt hafi aðeins einu sinni komið fyrir og þá hafi heimilið staðið autt í þrjár vikur, annars sé yfirleitt um fáa daga að ræða í senn. „Við nýttum hluta af þessum tíma í endurmennt- un, en einnig nýttum við tímann til að styrkja félagslega þáttinn hjá starfsfólkinu. Við fórum til dæmis saman í hestaferð eina helgi sem var mjög gott því það er mikilvægt að hafa samhentan starfshóp.“ Að sögn Hinriks dvelja tveir unglingar á heimilinu um þessar mundir. Að mati Hinriks er mikilvægt að halda úti meðferðarheimili eins og Háholti þar sem það þjóni ákveðnum hópi unglinga sem engir aðrir staðir henta. Spurður hvort skortur á sérhæfðu fagfólki, eins og geðlæknum, í Skagafirði til að koma að meðferð ungling- anna hafi reynst vandamál segir hann svo ekki vera en sækja þurfi aðstoðina til Reykjavíkur: „Við erum í Skagafirði, ekki á heims- enda. Það er alveg hægt að fá þjón- ustu geðlæknis og barnasálfræð- ings þó að maður þurfi að sækja hana til Reykjavíkur. Við höfum einnig í nokkrum tilfellum fengið geðlækni hingað til okkar úr borg- inni.“ hannarut@365.is Starfsmenn Háholts efla starfsandann Samband íslenskra sveitarfélaga hefur kallað eftir fundi velferðarráðherra og Barnaverndarstofu vegna fyrirhugaðs samnings við meðferðarheimilið Háholt. FORSTÖÐU- MENN For- stöðumenn Háholts, Hinrik Már Jónsson og Ari Jóhann Sig- urðsson, fyrir utan heimilið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GUÐJÓN BRAGASON SAMFÉLAG Vinasamningur æsku- lýðsfélags Hofsprestakalls, Kýros, Vopnafjarðarhrepps, Vopnafjarðarskóla og leikskólans Brekkubæjar var undirritaður á mánudag í félagsheimilinu Mikla- garði. Tilefnið er Vinavika sem hófst í fimmta sinn á Vopnafirði á sunnudaginn. Á vefsíðunni Vopnafjarðar- hreppur.is segir að Vopnafjarðar- hreppur hvetji íbúa og starfsfólk sitt til að sýna vináttu og kær- leika í verki. - fb Vinavika hafin á Vopnafirði: Undirrituðu vinasamning Íslensk löggjöf um innflutning á fersku kjöti er andstæð EES- samningnum. Þetta kemur fram í rökstuddu áliti sem ESA, Eftir- litsstofnun EFTA, sendi frá sér í gær. Íslensk löggjöf felur í sér inn- flutningstakmarkanir á fersku kjöti, unnu sem óunnu, kældu sem frosnu, sem og innmat og sláturúrgangi, hvort sem um ræðir svína-, nauta-, lamba-, geita- eða alifuglakjöt eða kjöt af villtum dýrum. Innflytjend- ur verða sam- kvæmt g i ld - andi lögum að sækja um leyfi og leggja fram margvísleg gögn til Mat- vælastofnunar. „ Þ etta á l it er í fullu sam- ræmi við álit okkar lögmanna,“ segir Finn- ur Árnason, forstjóri Haga, um álitið. „Við eigum í málaferlum við ríkið út af þessu og þau eru í gangi,“ segir Finnur. Hann seg- ist vonast til þess að staðið verði við alþjóðasamninga. „Þannig að ég held að menn ættu að drífa í því að heimila þetta og hætta að verjast í dómsölum gegn okkur,“ segir Finnur. Í áliti ESA kemur fram að hægt sé að höfða samnings- brotamál ef ekki verður brugð- ist við álitinu innan tveggja mánaða. - jhh Allt stefnir í að ESA höfði samningsbrotamál gegn Íslandi vegna hafta á innflutningi landbúnaðarvara: Innflutningsbann brýtur gegn EES-reglum Ívilnunarsamningar íslenskra stjórnvalda við fimm fyrir- tæki, Becromal, Verne, Íslenska kísilfélagið, Thorsil og GMR Endurvinnsluna, fólu í sér ríkisaðstoð sem gengur gegn EES-samningnum. Þetta er mat Eftirlitsstofnunar EFTA, sem gaf í gær íslenskum stjórnvöldum fyrirmæli um að endurheimta alla þá ríkisaðstoð sem veitt var á grundvelli umræddra samninga. ÓLÖGMÆT AÐSTOÐ SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON Otrivin Comp - gegn nefstíflu og nefrennsli Andaðu með nefinu Hafðu samband við áður en þú kaupir dekk.... Vetrar- Heilsársdekk Sími 575-1500 eða www.kvikkfix.is og sparaðu stórt! Stærðir Gerð Verð 175/70 R13 CS 8.500.- 175/65 R14 CS 8.600.- 185/65 R14 CS 9.500.- 185/65 R15 CS 10.600.- 195/65 R15 SP 10.900.- 205/65 R15 CS 12,300.- 215/70 R15 CS 13.900.- 205/55 R16 SP 11.990.- 205/60 R16 CS 12.300.- 215/55 R16 SP 12.900.- 215/65 R16 CS 13.990.- 235/70 R16 CS 17.700.- 225/45 R17 SP 13.990.- 235/45 R17 SP 14.900.- 235/65 R17 CS 17.800.- 265/70 R17 CS 21.700.- Hvaleyrarbraut 4-6 SP CS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.