Fréttablaðið - 09.10.2014, Side 12
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Kobani er landamærabær norðan til í Sýrlandi, rétt við landamæri Tyrk-
lands. Þetta er helsta borg Kúrda í Sýrlandi, en meirihluti íbúanna er flúinn
undan ofbeldi vígamanna Íslamska ríkisins.
Kúrdar eru fjölmennir í Tyrklandi, Írak, Íran og Sýrlandi og hafa lengi
viljað stofna eigið ríki, eða í það minnsta fá viðurkennd réttindi til sjálf-
stjórnar að einhverju marki.
Talið er að um fimm prósent Kúrda búi í Sýrlandi, alls um tvær milljónir
manna, og eru þeir þar með um níu prósent af íbúum Sýrlands.
Um 45 þúsund manns hafa búið í Kobani. Flestir þeirra eru Kúrdar. Í
nágrenni bæjarins búa einnig margir Kúrdar og er talið að alls hafi um 200
þúsund manns á þessum slóðum flúið undan vígasveitunum.
Helsta borg Kúrda í Sýrlandi
SÝRLAND Loftárásir, sem Banda-
ríkjaher hefur haft forystu um,
eru sagðar hafa hrakið vígasveit-
ir Íslamska ríkisins að hluta frá
landamærabænum Kobani í Sýr-
landi.
Enn er þó hart barist í bænum
og hafa flestir íbúar hans flúið,
flestir yfir landamærin til Tyrk-
lands.
Kúrdar saka tyrknesk stjórn-
völd um að hafa setið hjá aðgerða-
lítil meðan vígasveitirnar herja á
Kobani og nágrenni. Efnt hefur
verið til mótmæla víða í Tyrklandi
og hafa stjórnvöld þar tekið hart á
mótmælendum. Að minnsta kosti
tólf manns hafa látið þar lífið.
Vígasveitir Íslamska ríkisins
hófu umsátur sitt um Kobani um
miðjan september. Átökin hafa
harðnað mjög á síðustu dögum og
kostað nokkur hundruð manns lífið.
Liðsmenn Íslamska ríkisins
héldu síðan í fyrsta sinn nú í vik-
unni inn í borgina og hafa götu-
bardagar geisað þar. Að sögn
arabísku fréttastofunnar Al
Jazeera hefur kúrdískur blaða-
maður lýst ástandinu í borginni
svo að þar liggi lík vígamanna
Íslamska ríkisins eins og hráviði
á götunum.
Recep Tayyip Erdogan segir
að loftárásir geti ekki dugað til
að ráða niðurlögum Íslamska
ríkisins í Kobani. Hann segir
að Tyrkir muni hins vegar taka
þátt í landhernaði verði tryggt
að hlutlausu svæði verði komið
upp milli Sýrlands og Tyrklands
og flugbanni verði komið á yfir
Sýrlandi. Bandaríkin þyrftu
væntanlega að sjá um að fram-
fylgja slíku.
gudsteinn@frettabladid.is
Hart barist
í Kobani
Á annan tug manna hafa látið lífið í Tyrklandi í
mótmælum gegn aðgerðaleysi tyrkneskra stjórnvalda.
Erdogan Tyrklandsforseti segir að loftárásir dugi ekki.
MÓTMÆLI BROTIN Á BAK AFTUR Lögreglan í Istanbúl beitti táragasi og þrýsti-
vatnsbyssum til að dreifa mannfjöldanum sem krafðist þess að tyrknesk stjórnvöld
tækju þátt í aðgerðum gegn Íslamska ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Niðurföll og rennur
í baðherbergi
Mikið úrval
– margar stærðir
COMPACT 30cm
. 90,-
AQUA 35cm
1 .990,
-
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Reykjavík
Reykjanesbæ
PROLINE NOVA 60 cm
2 .990,-