Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 20

Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 20
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR Í MYNDUM | 20 Vélin lagði síðastliðinn þriðjudag upp frá Miami í þriggja vikna heims- reisu þar sem komið verður við á átta áfangastöðum áður en vélin lendir í New York 31. október næstkomandi. Þetta flug er ekki ókeypis þar sem hver farmiði kostar um 12,5 milljón- ir króna, eða samanlagt um 625 millj- ónir. Vélin er leigð bandarískri ferða- skrifstofu, Abercrombie and Kent, og er löngu uppselt í þessa ferð. Þetta er ekki fyrsta verkefni Loftleiða þessar- ar tegundar en félagið hefur tekið að sér slík lúxusverkefni síðustu 12 árin, en aldrei jafn glæsilega og nú. Und- irbúningur þessara breytinga hefur tekið á annað ár, en alls tók um fimm vikur að breyta vélinni. Áhöfnin er öll íslensk, alls 11 manns. Þar eru tveir flugstjórar, einn flugmaður, 5 flug- freyjur, 2 matreiðslumeistarar og einn flugvirki. Að þessari ferð lokinni verð- ur vélinni að nýju breytt í hefðbundna farþegaflugvél. Vélin farin að taka á sig mynd að nýju. Búið að hreinsa allt út úr vélinni, öll sæti, panel af veggjum og úr lofti. Áhöfnin stillti sér upp fyrir brottför. Frá vinstri: Vil- borg Edda Jóhannsdóttir flugfreyja, Loftur Kristinn Magnússon matreiðslumaður, Torfi Sigurjónsson flugstjóri, Jana María Guðmundsdóttir flugfreyja, Eiríkur Haraldsson flugstjóri, Carl Ólafur Burrell flugvirki, Tómas Júlíus Thompson flugmaður, Magnús Hallgrímsson matreiðslumaður, Sigríður E. Thorlacius flugfreyja og Ragnar Þorsteinsson flugþjónn. Salernisaðstaðan er glæsileg um borð og mun glæsilegri en gengur og gerist í vélum sem þessum. Svona leit Búrfell Boeing 757-200 út fyrir um fimm vikum, áður en breytingar á vélinni hófust. 757 breytt í lúxusvél Búrfelli, Boeing 757-200 flugvél Loftleiða, hefur verið breytt úr 183 sæta farþegavél í 50 sæta lúxusflugvél með sérinnfluttum ítölskum leðursætum sem hægt er að breyta í rúm. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari fylgdist með breytingunum frá upphafi þeirra til brottfarar. visir.is Fleiri myndir má fi nna á Vísi Vinna hafin við að endurinnrétta vélina. Það er oft þröng á þingi því það voru margar hendur sem komu að þessari vinnu og að baki liggja þúsundir vinnustunda. 05.09.2014 21.09.2014 04.10.2014 06.10.2014 14.09.2014 Breytingum lokið og vélin tilbúin til brottfarar. 05.10.2014 Í UPPHAFI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.