Fréttablaðið - 09.10.2014, Side 34
Áður en Tinna hóf nám við De Monfort University í Leicester starfaði hún
sem hársnyrtir á hárgreiðslu-
stofunni Aveda á Skólavörðustíg
en gekk alltaf með þann draum
að fara í hönnun. Hún ákvað
að leggja land undir fót og fékk
vinnu sem hársnyrtir í Lond-
on. „Sú vinna leiddi mig í De
Montort-háskólann því ég fékk
vinnu við greiðslu fyrir lokasýn-
ingu í skólanum. Þar kynntist ég
starfseminni og leist mjög vel á
námið og skólann. Örlögin gripu
því í taumana. Ég sótti um strax
eftir sýninguna og fékk inn-
göngu. Þetta var afar skemmti-
legt en erfitt nám. Námið var
svo strembið að það var ekkert
hægt að vinna með því, alltaf
skil á stórum verkefnum eftir
jóla- eða páskafrí,“ segir Tinna.
ALLTAF AÐ BREYTA OG BÆTA
Tinna lauk náminu árið 2012.
„Á fyrsta ári í skólanum var ég
komin með hugmynd að eigin
fatalínu. Á unglingsárunum var
ég alltaf að breyta fötum og
sauma á gömlu Singer-sauma-
vélina hennar mömmu. Mér
fannst það svo skemmtilegt,“
segir hún. „Þessi áhugi jókst
með náminu og ég fór að þróa
eigin fatalínu undir nafninu
Tiaber.“
MIKIL SAMKEPPNI
Tinna segir erfitt að fóta sig í
Bretlandi, mikil samkeppni er á
þessum markaði en flest tæki-
færin. „Ég var alltaf ákveðin í að
framleiðslan færi fram í Bret-
landi, ég vildi geta fylgst með
hver væri að sauma og hvaða
efni væru notuð. Það er mjög
mikilvægt að mínu mati að hafa
gæðaefni í framleiðslunni. Öll
efnin mín eru búin til í London
fyrir utan fiskinn sem kemur frá
Sauðárkróki og leðrið frá Ítalíu.
Það tók nokkurn tíma að koma
framleiðslunni í gang. Ég gat
ekki hugsað mér að konur í Taí-
landi eða á Indlandi, sem væru
með eitt pund á dag, væru að
vinna fötin mín. Fleiri hönnuðir
ættu að hugsa á sömu nótum og
styðja eigin markað og jafnfram
þrýsta á betri launakjör í öðrum
löndum. Það yrði einnig til að
auka gæði þar sem hönnuðurinn
er nær sinni eigin framleiðslu.
Ég er í mjög góðu sambandi við
verksmiðjuna sem saumar fyrir
mig,“ segir Tinna.
FRÁBÆR VIÐBRÖGÐ
Með því að koma fatalínu sinni
inn á tískuvikuna í London,
London Fashion Week, gat
Tinna kynnt framleiðsluna fyrir
kaupendum. „Það er erfitt að
koma nýju merki á markaðinn
svo ég var heppin. Ég fann strax
fyrir mjög góðum viðbrögðum. Í
framhaldinu sýndi ég á tísku-
vikunni í París og fékk jafnframt
mjög góð viðbrögð þar, meðal
annars frá þekktum fatahönn-
uðum. Það var gleðilegt að fá
þessi fínu viðbrögð. Eftir ára-
mótin fer fatalínan mín í verslun
hér í London en það er sumar-
línan 2015. Einnig hef ég fengið
nokkrar beiðnir frá netverslun-
um sem ég er að skoða. Ég mun
einnig selja fatnað frá mér í Pop
Up-verslun í Fulham í London
fyrir jólin.“
MARGT AÐ GERAST
Um þessar mundir er Tinna með
tvo starfsmenn á hönnunarstofu
sinni, stúlku í starfsnámi sem er
með BA-gráðu í tískumarkaðs-
fræðum og skólasystur sína sem
hjálpar henni í framleiðsluferl-
inu. „Það tekur tíma að afla sér
tekna í þessu fagi og ég þarf
að vinna í hlutastarfi hjá Yves
Saint Laurent til að eiga fyrir
leigunni,“ útskýrir Tinna sem
ætlar að búa áfram og starfa í
London. „Ég sakna Íslands en
hér í London er allt sem maður
þarf. Hugmyndir að vetrarlínu
2015-2016 eru núna á teikniborð-
inu. Ég hef boð um að sýna á
tískuviku í Berlín í janúar og er
að skoða það dæmi núna. Það er
því margt að gerast.“ Hægt er að
skoða hönnun Tinnu á heimasíð-
unni tiaber.com.
■ elin@365.is
FÓLK|
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Nýjar vörur í hverri viku
Stærðir 38-58
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Smart föt, fyrir smart konur
Stærðir 38-52
5000 KR. BRJÁLÆÐI Í FLASH
Sjá fleiri myndir á
KJÓLAR, MUSSUR, SKYRTUR, LEGGINGS, PILS OG MARGT FLEIRA
TÍSKUKONA Tinna Bergmann ásamt hund-
inum sínum, Ísak, sem flutti með henni til
Englands frá Íslandi. MYND/EINKASAFN
SÝNDI EIGIN FATALÍNU
Á TÍSKUVIKU Í LONDON
VEKUR ATHYGLI Tinna Bergmann Jónsdóttir hefur markaðssett eigin línu
undir nafninu Tiaber. Hún sýndi hönnun sína á tískuvikum í London og París.
TIABER.COM Hluti hönnnunar Tinnu sem hún sýndi á tískuvikunum í London og París.
TÍSKA