Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 34

Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 34
Áður en Tinna hóf nám við De Monfort University í Leicester starfaði hún sem hársnyrtir á hárgreiðslu- stofunni Aveda á Skólavörðustíg en gekk alltaf með þann draum að fara í hönnun. Hún ákvað að leggja land undir fót og fékk vinnu sem hársnyrtir í Lond- on. „Sú vinna leiddi mig í De Montort-háskólann því ég fékk vinnu við greiðslu fyrir lokasýn- ingu í skólanum. Þar kynntist ég starfseminni og leist mjög vel á námið og skólann. Örlögin gripu því í taumana. Ég sótti um strax eftir sýninguna og fékk inn- göngu. Þetta var afar skemmti- legt en erfitt nám. Námið var svo strembið að það var ekkert hægt að vinna með því, alltaf skil á stórum verkefnum eftir jóla- eða páskafrí,“ segir Tinna. ALLTAF AÐ BREYTA OG BÆTA Tinna lauk náminu árið 2012. „Á fyrsta ári í skólanum var ég komin með hugmynd að eigin fatalínu. Á unglingsárunum var ég alltaf að breyta fötum og sauma á gömlu Singer-sauma- vélina hennar mömmu. Mér fannst það svo skemmtilegt,“ segir hún. „Þessi áhugi jókst með náminu og ég fór að þróa eigin fatalínu undir nafninu Tiaber.“ MIKIL SAMKEPPNI Tinna segir erfitt að fóta sig í Bretlandi, mikil samkeppni er á þessum markaði en flest tæki- færin. „Ég var alltaf ákveðin í að framleiðslan færi fram í Bret- landi, ég vildi geta fylgst með hver væri að sauma og hvaða efni væru notuð. Það er mjög mikilvægt að mínu mati að hafa gæðaefni í framleiðslunni. Öll efnin mín eru búin til í London fyrir utan fiskinn sem kemur frá Sauðárkróki og leðrið frá Ítalíu. Það tók nokkurn tíma að koma framleiðslunni í gang. Ég gat ekki hugsað mér að konur í Taí- landi eða á Indlandi, sem væru með eitt pund á dag, væru að vinna fötin mín. Fleiri hönnuðir ættu að hugsa á sömu nótum og styðja eigin markað og jafnfram þrýsta á betri launakjör í öðrum löndum. Það yrði einnig til að auka gæði þar sem hönnuðurinn er nær sinni eigin framleiðslu. Ég er í mjög góðu sambandi við verksmiðjuna sem saumar fyrir mig,“ segir Tinna. FRÁBÆR VIÐBRÖGÐ Með því að koma fatalínu sinni inn á tískuvikuna í London, London Fashion Week, gat Tinna kynnt framleiðsluna fyrir kaupendum. „Það er erfitt að koma nýju merki á markaðinn svo ég var heppin. Ég fann strax fyrir mjög góðum viðbrögðum. Í framhaldinu sýndi ég á tísku- vikunni í París og fékk jafnframt mjög góð viðbrögð þar, meðal annars frá þekktum fatahönn- uðum. Það var gleðilegt að fá þessi fínu viðbrögð. Eftir ára- mótin fer fatalínan mín í verslun hér í London en það er sumar- línan 2015. Einnig hef ég fengið nokkrar beiðnir frá netverslun- um sem ég er að skoða. Ég mun einnig selja fatnað frá mér í Pop Up-verslun í Fulham í London fyrir jólin.“ MARGT AÐ GERAST Um þessar mundir er Tinna með tvo starfsmenn á hönnunarstofu sinni, stúlku í starfsnámi sem er með BA-gráðu í tískumarkaðs- fræðum og skólasystur sína sem hjálpar henni í framleiðsluferl- inu. „Það tekur tíma að afla sér tekna í þessu fagi og ég þarf að vinna í hlutastarfi hjá Yves Saint Laurent til að eiga fyrir leigunni,“ útskýrir Tinna sem ætlar að búa áfram og starfa í London. „Ég sakna Íslands en hér í London er allt sem maður þarf. Hugmyndir að vetrarlínu 2015-2016 eru núna á teikniborð- inu. Ég hef boð um að sýna á tískuviku í Berlín í janúar og er að skoða það dæmi núna. Það er því margt að gerast.“ Hægt er að skoða hönnun Tinnu á heimasíð- unni tiaber.com. ■ elin@365.is FÓLK| Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Nýjar vörur í hverri viku Stærðir 38-58 Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my style Smart föt, fyrir smart konur Stærðir 38-52 5000 KR. BRJÁLÆÐI Í FLASH Sjá fleiri myndir á KJÓLAR, MUSSUR, SKYRTUR, LEGGINGS, PILS OG MARGT FLEIRA TÍSKUKONA Tinna Bergmann ásamt hund- inum sínum, Ísak, sem flutti með henni til Englands frá Íslandi. MYND/EINKASAFN SÝNDI EIGIN FATALÍNU Á TÍSKUVIKU Í LONDON VEKUR ATHYGLI Tinna Bergmann Jónsdóttir hefur markaðssett eigin línu undir nafninu Tiaber. Hún sýndi hönnun sína á tískuvikum í London og París. TIABER.COM Hluti hönnnunar Tinnu sem hún sýndi á tískuvikunum í London og París. TÍSKA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.