Fréttablaðið - 09.10.2014, Qupperneq 61
FIMMTUDAGUR 9. október 2014 | MENNING | 41
Leiklist
18.00 Bíó Paradís frumsýnir nýja upp-
færslu af tímalausu meistaraverki
Tennessee Williams, A Streetcar Named
Desire.
20.00 Fyrsta sýningin á Eldklerkinum
í Tjarnarbíói. Hér er sögð saga af Jóni
Steingrímssyni frá 18. öld, saga af góðum
bónda, lækni og presti sem þarf að takast
á við afleiðingar skelfilegustu náttúruham-
fara Íslandssögunnar á tímum örbirgðar
og undirokunar. Verð frá 2.500 krónum.
Síðustu forvöð
18.00 Síðasta tækifæri til að sjá heim-
ildarmyndina Björk: Biophilia Live í Bíói
Paradís.
Bókmenntir
21.00 Ljóðabókaútgáfan Meðgöngu-
ljóð hefur undanfarin ár einbeitt sér
að útgáfu og kynningu á verkum nýrra
íslenskra skálda. Einnig hefur forlagið
stefnt saman kynslóðum skálda í ýmsum
viðburðum og verkefnum. Í kvöld setja
þau framtíðarskáldið í fókus, en þá
munu 13 ungskáld koma fram í Mengi
og kynna ný verk. 2.000 krónur inn,
gefins ljóðabók fylgir með.
Uppistand
20.00 Uppistandshópurinn Mið-Ísland
kemur fram í fyrsta sinn á Suðurnesj-
um þann 9. október í Hljómahöll með
sýninguna Áfram Mið-Ísland. Sýningin
sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári
en áður en yfir lauk var hún sýnd yfir
75 sinnum og voru gestir tæplega 15
þúsund talsins. Uppselt á sýninguna.
Tónlist
21.00 DJ Óli Dóri úr útvarpsþættinum
Straumi þeytir skífum á Boston í kvöld.
21.00 DJ Óli Hjörtur & Lovísa byrja
kvöldið á Prikinu og svo tekur við DJ
Sexítæm.
Leiðsögn
20.00 Þóra Sigurðardóttir myndlistar-
maður tekur þátt í leiðsögn í Hafnar-
borg og ræðir við gesti um verk sín á
sýningunni Rás, sem nú stendur yfir.
Myndlist
11.00 Ný málverkasýning Sigtryggs
Bjarna Baldvinssonar opnuð í Hverfis-
galleríi í dag.
20.00 Nú er Sláturtíð hafin en í ár er
keppnin um Keppinn 2014– mynd-
listarkeppni með frjálsri aðferð. Mark-
miðið er að stuðla að nýsköpun í mynd-
listarmenningu á Íslandi. Frestur til að
skila inn verkum er til fimmtudagsins
9. október kl. 19.30 í Listasafni Reykja-
víkur í Hafnarhúsi en þá hefst uppboð
á keppnisverkum. Það verk sem hæst er
boðið í eftir lokatónverk lokatónleika
Sláturtíðar 2014 11. október sigrar.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
3
5
4
6
Ég nota SagaPro
Hjálmar Sveinsson,
verkefnastjóri
„Nú vakna
ég úthvíldur“
www.sagamedica.is
ísk
heilbrigðisyfirvöld hafa
nýlega staðfest virkni
SagaPro og veitt heimild
til að markaðssetja
vöruna við tíðum
þvaglátum.
KanadAlbert Mónakóprins og eiginkona
hans Charlene prinsessa eiga von
á tvíburum, en þau staðfestu það
í viðtali við tímaritið Hello! á
miðvikudag. Þau tilkynntu í maí
að þau ættu von á erfingja, en
þetta eru fyrstu börn fyrrverandi
ólympíusundkonunnar Charlene.
Fyrir á Albert tvö börn úr fyrri
samböndum, dótturina Jazmin
Grace og soninn Alexandre. Ekki
er ljóst hvor tvíburinn muni erfa
krúnuna, en samkvæmt reglun-
um mun fyrri tvíburinn sem fæð-
ist erfa hana. Hins vegar ef fyrri
tvíburinn er stúlka og sá síðari
drengur mun krúnan koma í hans
hlut. Þar sem fyrri börn Alberts
eru fædd utan hjónabands mun
hvorugt þeirra erfa krúnuna.
Albert prins og Charlene giftu sig
árið 2011 rétt fyrir utan Lond-
on við stjörnum prýdda athöfn,
en tuttugu ára aldursmunur er á
þeim hjónum.
Konunglegir
tvíburar á
leiðinni
CHARLENE OG ALBERT Eiga von á
tvíburum.
Leikarinn Stephen Collins er
búinn að missa hlutverkið í kvik-
myndinni Ted 2 eftir að TMZ
birti upptöku í gær þar sem
leikarinn játar að hafa misnotað
stúlkur undir lögaldri kynferð-
islega. Faye Grant, eiginkona
Stephens, tók upp fund sem þau
áttu með fjölskylduráðgjafa árið
2012 án þess að Stephen vissi af
því. Á upptökunni lýsir Stephen
því í smáatriðum hvernig hann
braut kynferðislega gegn ungum
stúlkum.
Leikarinn hefur ekki sent frá
sér yfirlýsingu en Faye sagðist í
gær ekki hafa komið upptökunni
til TMZ. „Ég hef oft hvatt Steph-
en til að leita sér meðferðar við
barnagirnd en hann hefur neitað
að leita sér hjálpar eða leggj-
ast inn á spítala vegna þessarar
girndar,“ segir hún.
Sakaður um
barnaníð
ÓHUGNANLEG UPPTAKA Collins er í
klandri.
M
YN
D
/G
U
LLI M
ÁR