Fréttablaðið - 09.10.2014, Side 62
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 42
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
71 árs Chevy Chase leikari
og grínisti
Frægur fyrir: Chase er einn frægasti
bandaríski grínleikarinn.
Sandler á Netfl ix
Grínleikarinn Adam Sandler mun
leika í fjórum myndum sem verða
frumsýndar á Netflix og ekki sýndar
í bíó. Myndirnar verða framleiddar af
hans eigin fyrirtæki, Happy Madison.
Í tilkynningu frá Netflix segir: „Fólk
elskar myndirnar hans á Netflix og
horfir á þær aftur og aftur. Það kann
vel við hann óháð aldri– allir eiga
uppáhaldsmynd eða uppáhaldsfrasa
frá honum.“
Einfari með „cameo“
Fyrsta kvikmyndin byggð á bók eftir
rithöfundinn Thomas Pynchon er á
leiðinni en það er sakamálasagan
Inherent Vice. Samkvæmt New York
Times mun rithöfundurinn hugsan-
lega koma fyrir í myndinni en hann
hefur haldið sig frá sviðsljósinu og
veitir aldrei viðtöl. Þess vegna spyr
tímaritið Vulture: „Ef enginn veit
hvernig þú lítur út, telst það með
sem „cameo“?“
Gone Girl Spennumynd
Aðalhlutverk: Rosamund Pike, Ben
Affleck, Neil Patrick Harris, Scoot
McNairy, Sela Ward
FRUMSÝNINGAR
8,6/10 6,7/10
Andri og Edda verða bestu
vinir Fjölskyldumynd
Aðalhlutverk: Nora Amundsen, Hilde
Louise Asbjornsen, Janne Formoe
Kvikmyndin Tusk verður frumsýnd hér á landi í Laug-
arásbíói á mánudaginn. Myndin er nýjasta verk leik-
stjórans, grínistans og Íslandsvinarins Kevins Smith en hann var
staddur hér á landi árið 2011 þar sem hann hélt uppistandið sitt
fræga, An Evening With Kevin Smith, í Hörpunni.
Kevin Smith er langþekktastur fyrir sínar sérstöku grínmynd-
ir en honum skaut upp á stjörnuhimininn árið 1994 með myndinni
Clerks. Sú var afar ódýr í framleiðslu en hinn einfaldi söguþráður
sem byggðist aðallega á fyndnum samtölum varð til þess að mynd-
in var mjög áhrifamik-
il á indímyndasenunni.
Smith hefur gert margar
grínmyndir sem eiga það
allar sameiginlegt að
gerast í heimabæ hans
New Jersey en í þeim
koma oft fyrir sömu
karakterarnir, svo sem
tvíeykið geðþekka Jay og
Silent Bob.
Á undanförnum árum
hefur Smith verið að
færa sig út fyrir þæg-
indarammann með því
að gera hryllingsmyndir.
Hrollvekjan Red State
kom út árið 2011 og
fjallar um unglinga sem
lenda í klónum á klikk-
uðum sértrúarsöfnuði.
Tusk er nýjasta hroll-
vekjan hans en sami leik-
ari er í hlutverki „vonda
karlsins“ og í Red State,
Michael Parks.
Söguþráðurinn í
Tusk er ansi geggjað-
ur en myndin á að vera
sú fyrsta í þríleik sem
Smith kallar True North-
þríleikinn. Myndin fjallar um internetsútvarpsmanninn Wallace
Bryt on (Justin Long) en besti vinur hans, Teddy (Haley Joel Osmont),
og kærastan hans, Allison (Ally Leon), fara að leita að honum þegar
hann týnist eftir að hafa tekið viðtal við dularfullan sjómann að nafni
Howard Howe (Michael Parks). Í ljós kemur að Howe hefur reynt að
breyta Wallace í rostung. Þetta er söguþráður myndarinnar.
Myndin hefur fengið afar misjafna dóma, sumir segja hana ömur-
lega en öðrum finnst hún frábær. Því verður spennandi að sjá hvern-
ig leikstjóranum hefur tekist að útfæra þessa absúrd sögu.
thorduringi@frettabladid.is
Rostungshrollvekja
Kevins Smith hrellir
Nýjasta mynd leikstjórans Kevins Smith er
hryllingsmynd með harla geggjuðum söguþræði.
VERÐANDI ROSTUNGUR Justin Long leikur
aðalfórnarlambið.
6,7/10
SJALDGÆFUR VIÐBURÐUR Hugleikur telur gamlar myndir njóta sín best í bíósal.
„Þetta er mjög mikið tilhlökkun-
arefni,“ segir Hugleikur Dags-
son um bíósýningaröðina Svartir
sunnudagar sem snýr nú aftur í
Bíó Paradís eftir nokkurra mán-
uða hlé. Hugleikur hefur haldið
utan um Svarta sunnudaga ásamt
Sjón og Sigurjóni Kjartanssyni en
áherslan hefur verið á költmyndir.
Sýningarnar verða með breyttu
sniði í haust en nú verða svokallað-
ar „double feature“ kvikmyndasýn-
ingar mánaðarlega í staðinn fyrir
eina sýningu vikulega.
Tvöfaldar kvikmyndasýningar
eru ansi viðeigandi í ljósi þess að
það var siður að sýna tvær mynd-
ir í röð á sínum tíma í bílabíóum
og svokölluðum „grindhouse“-bíó-
um, sem sýndu aðallega B- og költ-
myndir. „Við ætlum að halda upp
á þennan sið. Á svona atburðum
lifa þessar gömlu költmyndir sem
best, það er einhvern veginn meiri
viðburður að sjá gamla mynd í bíó
heldur en nýja. Það er sjaldgæf-
ara,“ segir Hugleikur.
Á sunnudaginn verða tvær
sígildar költmyndir frá árinu
1968 sýndar, Barbarella og Dan-
ger: Diabolik. „Barbarella er
ein stærsta költmynd allra tíma
en Danger: Diabolik er svolít-
ið gleymd. Þær eiga það sam-
eiginlegt að vera framleiddar af
Dino De Laurentiis.“ Dino var
einn stærsti kvikmyndaframleið-
andi Ítalíu og framleiddi margar
frægar Fellini-myndir jafnt sem
smærri költmyndir. „Þær eru
líka báðar byggðar á myndasög-
um og í rauninni með fyrstu góðu
mynda sögukvikmyndunum. Kvik-
myndanördar vilja meina að þær
séu báðar frábærar. Þær eru rosa
„grúví“ og rosa „sixtís“.“
Frá því að Svartir sunnudagar
voru stofnaðir hefur hefðin ávallt
verið sú að fá listamenn til að
gera plakötin fyrir sýningarnar.
Hugleikur hannaði plakatið fyrir
Barbarella/Danger: Diabolik en
það er unnið úr gömlum teikning-
um úr myndasögunum. Öll plak-
ötin eru til sýningar og sölu í Bíó
Paradís en margir íslenskir lista-
menn hafa lagt þeim lið, svo sem
Halldór Helgason, Þrándur Þórar-
insson og Davíð Örn Halldórsson.
thorduringi@frettabladid.is
Svartir sunnudagar
snúa aft ur með stæl
Breytt snið á sýningunum. Nú verða tvær myndir sýndar í röð að gömlum sið.
➜ Kvikmyndin Tusk er önnur
hrollvekjan sem Kevin Smith leikstýrir.