Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 72

Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 72
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 52 Nú er Domino’s-deildin hafin og þá mætast stálin stinn í körfunni. Hvernig koma þessi bestu lið landsins undan sumri? SJÁUMST Á VELLINUM! EKKI MISSA AF LEIK MEÐ ÞÍNU LIÐI Í DOMINO’S-DEILDINNI. FÓTBOLTI Marians Pahars er einn þekktasti knattspyrnumaður Lettlands hin síðari ár en þessi 38 ára fyrrverandi sóknarmaður Southampton er nú landsliðsþjálfari Lett- lands. „Hann býr ekki yfir mikilli reynslu sem þjálfari,“ sagði Ilvars Koscinkevičs, blaðamað- ur hjá tímaritinu Sporta Avize, í samtali við Fréttablaðið í Riga í gær. „En ég hef tekið eftir því á æfingum lands- liðsins að hann leggur mikla áherslu á að- ferðafræðina og leikskipulag. Liðið spilar því skynsamlega undir hans stjórn,“ segir Koscinkevičs. Pahars lék með Southampton frá 1999 til 2006. Hann tók við U-21 landsliði Lettlands í ársbyrjun 2013 og svo A-landsliðinu í júlí sama ár þegar Aleksandrs Starkovs hætti. Liðið vann aðeins einn af fyrstu fimm leikjum sínum undir hans stjórn en hefur ekki tapað fjórum í röð og haldið hreinu í þeim öllum. „Það er mikil orka í kringum hann og ég tel að hann sé góður kostur fyrir Lettland,“ segir Koscinkevičs sem stakk upp á því á sínum tíma að knattspyrnusamband Lett- lands leitaði til Lars Lagerbäck þegar það var í þjálfaraleit á sínum tíma– áður en Lagerbäck tók við Íslandi. „Það var ekki hlustað á það,“ segir hann í léttum dúr. „En ég tel að hann geti náð góðum árangri með liðið. Það sem kemur helst í veg fyrir það eru meiðslavandamál liðsins sem eru mikil um þessar mundir.“ - esá Lettarnir vel skipulagðir hjá Pahars FIMMTÁN MÖRK Marians Pahars fagnar í leik með lettneska landsliðinu. MYND/AFP Dominos-deild karla í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum en margir bíða spenntir eftir því hvaða áhrif miklar mannabreytingar hafa á gang mála í karlakörfunni í vetur. KR er ríkjandi Íslandsmeistari eftir frábæran fyrsta vetur undir stjórn Finns Stefánssonar. Liðið vann 30 af 33 leikjum sínum í deild og úrslita- keppni og slæmu fréttirnar fyrir hin liðin í deildinni er að KR-liðið gæti jafnvel verið í enn meiri sérflokki í ár. Martin Hermannsson, leikmaður ársins í fyrra, er reyndar farinn út í skóla en í staðinn horfa menn á að Brynjar Þór Björnsson skipti aftur úr öðrum gírnum og sýni hvað hann getur. Stærstu fréttirnar úr Vestur- bænum eru þó þær að liðið er búið að fá til sín bandaríska miðherjann Michael Craion sem var kosinn besti erlendi leikmaðurinn á síðustu leiktíð. Miðherjastaðan var eina veika staða liðsins í fyrra en ekki lengur. KR var spáð yfirburðarsigri í spánni og Vesturbæjarliðið hefur allt til alls til að gera þetta hreinlega að 1+11 deildinni. Grindavík hefur misst lykil- mann sem og Keflavík og Njarðvík en þau voru öll inn á topp fjögur í fyrra. Stjarnan tekur nú fyrstu skrefin eftir að Teitur Örlygsson hætti með liðið. Það eru því líka breytingar í Garðabænum. Haukar eru hins vegar lið sem líkt og KR hefur haldið flest öllum sínum lykilmönnum. Nýliðarnir komu skemmtilega inn í deildina í fyrra og nú eru ungu strákarnir ári eldri og reynslunni ríkari sem ætti að nýtast Hafnarfjarðarliðinu vel. Nýliðar Tindastóls tefla fram Darrel (Keith Lewis) og Darell (Flake) í viðbót við bandarískan leikmann en ætla að láta hinn stórefnilega Pétur Rúnar Birgisson bera ábyrgð á leikstjór- nendastöðunni sem er nú jafnan á herðum erlendra atvinnumanna. Þetta er áhugaverð tilraun og margir hafa trú á henni því Stólunum er spáð 5. sæti. Nokkrar af ungu stjörnum Dominos-deildarinnar í fyrra hafa nú yfirgefið deildina en hvort ungir leik- menn haldi áfram að fá stór tækifæri í deildinni verður að koma í ljós. Sum félög, eins og Keflavík, hafa farið þá leið að kalla á eldri goðsagnir og það er vissulega spennandi að sjá Damon Johnson aftur á íslenskum fjölum þótt hann haldi upp á fertugsafmælið á tímabilinu. KR-ingar hafa vissulega allt til alls til að verja Íslandsmeistaratitilinn í vetur og það kæmi svo sem ekki mikið á óvart ef Vesturbæjarliðið yrði í sérflokki. Leikirnir vinnast sem betur fer á parkettinu og fyrsta skyndipróf KR-inga er í kvöld þegar Njarðvíkingar mæta í DHL-höllina með goðsagn- irnar Friðrik Inga Rúnarsson og Teit Örlygsson við stjórnvölinn. UTAN VALLAR ÓSKAR ÓFEIGUR JÓNSSON ooj@frettabladid.is VONANDI EKKI 1+11 DEILDIN FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson missti föður sinn, Hallfreð Emilsson, eftir baráttu við krabbamein í síðasta mánuði. Hallfreður lést langt fyrir aldur fram en þrátt fyrir mikinn missi gaf Emil kost á sér í verkefni íslenska landsliðsins sem mætir Lettlandi í Riga á morgun. Fréttablaðið tók Emil tali fyrir æfingu liðsins á Skonto-leikvang- inum í gær þar sem hann ræddi þennan mikla missi fyrir sig og fjölskyldu sína. „Það var erfitt að þurfa að kveðja hann sem föður og minn besta vin í lífinu,“ segir Emil. „Ég mun halda minningu hans á lofti en um leið halda áfram að lifa lífinu. Það hefði hann vilj- að.“ Veitti mér huggun og gleði Emil leikur með Hellas Verona á Ítalíu og félagið hefur sýnt honum mikinn stuðning á þessum erfiðu tímum. Fyrir það er hann þakk- látur. „Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en viðbrögð félags- ins fannst mér ótrúleg. Félagið sendi frá sér afar fallega kveðju og leikmenn spiluðu með sorgar- bönd fyrir pabba,“ segir Emil en stuðningsmannasveit landsliðsins, Tólfan, heiðraði einnig minningu Hallfreðs með gjöf. „Það þótti mér einstakt líka. Allt þetta var fallegt og styrkjandi og veitti mér bæði huggun og gleði.“ Emil sneri aftur til Ítalíu fyrir leik Hellas Verona gegn Cagliari á laugardaginn. Hann kom inn á sem varamaður og lagði upp sigur- markið í 1-0 sigri. „Þegar ég labb- aði út af eftir leikinn kölluðu allir stuðningsmennirnir nafnið mitt. Þá báru tilfinningarnar mig ofur- liði og ég brast í grát,“ segir Emil. „Mér kom margt til hugar eftir leikinn enda hafði ég það að vana að hringja alltaf í kallinn eftir leik til að gera hann upp. Það var því ekkert símtal að þessu sinni.“ Guð enn raunverulegri en áður Emil og fjölskyldu hans líður afar vel á Ítalíu en í haust hóf hann sitt fimmta keppnistímabil þar. Hann á enn þrjú ár eftir af samn- ingi sínum við Hellas Verona, þar sem honum líður eins og heima hjá sér. Hann finnur einnig mikinn styrk í sinni trú í þessum raunum. „Fyrir mér er Guð enn raun- verulegri en áður og þrátt fyrir allt hefur trú mín styrkst. Það kann að hljóma einkennilega fyrir einhverja en það er engu að síður tilfellið hjá mér og minni fjöl- skyldu.“ Ítalir eru svo hlýir Ítalir eru margir trúræknir og Emil segir að hann finni sig vel í slíku umhverfi. „Ítalir eru svo hlýir. Þeir eru opnir og miklar tilfinningaverur. Þannig er maður sjálfur og því er maður nokkurn veginn á heimavelli þar. Það sýnir sig best í því hversu miklan skilning maður fékk og þá samúð sem við höfum fengið. Mér þykir afar vænt um það.“ Fráfall pabba styrkti trú mína á Guð Vðbrögð knattspyrnuheimsins við fráfalli föður hans komu Emil Hallfreðssyni á óvart. Hann brast í grát þegar áhorfendur á Ítalíu kölluðu nafn hans. GEFUR KOST Á SÉR Emil Hallfreðsson sést hér á æfingu í gær en landsleikurinn við Letta verður sá fyrsti eftir að hann missti föður sinn. FRÉTTABLAÐ IÐ /VALLIR Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@frettabladid.is Valgarður Gíslason valli@365.is Frá Riga í Lettlandi HANDBOLTI Snorri Steinn Guðjónsson hefur byrjað tímabilið með Sélestat í franska handboltanum af miklum krafti. Í gær skoraði leikstjórnandinn tólf mörk þegar Sélestat tapaði með tveimur mörkum, 29-31, fyrir Chambéry. Staðan í hálfleik var 13-14, Chambéry í vil. Snorri hefur nú skorað 45 mörk í fyrstu fimm umferðunum í frönsku deildinni, eða níu mörk að meðaltali í leik. Það hefur þó dugað skammt því Sélestat er aðeins með tvö stig. Arnór Atlason skoraði tvö mörk þegar Saint Raphael gerði 35-35 jafntefli gegn Créteil á útivelli. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði einnig tvö mörk þegar Nimes vann átta marka sigur, 27-35, á Istres. Róbert Gunnarsson komst ekki á blað í öruggum níu marka sigri, 35-26, Paris SG gegn Tremblay á heimavelli. - iþs Snorri skoraði tólf í tapleik SPORT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.