Fréttablaðið - 09.10.2014, Síða 78
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 58
„Við stofnuðum hljómsveitina fyrst til þess að búa
til okkar eigin lög. Síðan duttum við niður á það að
fara að spila lög Genesis og höfum haldið okkur við
það síðan,“ segir Bjarni Þór Sigurðsson, meðlimur
hljómsveitarinnar Hátveiro sem heldur tónleika á
Græna hattinum á Akureyri á laugardagskvöld. Þar
ætlar sveitin að spila bestu lög hljómsveitarinnar
Genesis en áður hefur hún leikið lög sveitarinnar á
tónleikum meðal annars í Salnum í Kópavogi. En af
hverju þessi mikli Genesis-áhugi? „Hann kemur frá
Birni bassaleikara í bandinu og Jósef píanóleikara,
þeir eru miklir aðdáendur. Þeir fóru að ræða saman
um hvað þeir vildu spila og duttu fyrir tilviljun inn
á þetta,“ segir hann.
Bjarni segir að búast megi við miklu stuði á laug-
ardagskvöldinu og jafnvel að jarðskjálftamælar á
Eyjafjarðarsvæðinu hreyfist hressilega þegar ofur-
trymbillinn Sigurður Karlsson ber húðirnar. Lítið
hefur farið fyrir Sigurði í tónlistarsenunni undan-
farin ár en á árum áður var hann meðal annars í
sveitum á borð við Brunaliðið, Friðryk og Change.
„Það er mikill happafengur fyrir okkur að hafa
fengið hann til liðs við okkur og í raun bara íslenskt
tónlistarlíf. Hann er ekki bara góður trommari
heldur líka með þeim höggþyngri og þekktur fyrir
kraftmikinn trommuleik. Þannig að það er öruggt
að menn fá eitthvað fyrir peninginn þegar hann fer
að tromma,“ segir Bjarni. - vh
Munu jarðskjálft amælar hristast?
Hljómsveitin Hátveiro fl ytur þekkt lög Genesis á Akureyri um helgina.
HLJÓMSVEITIN HÁTVEIRO Datt niður á það að spila lög eftir
Genesis og hefur haldið sig við það síðan.
„Fólk er mjög jákvætt fyrir stelp-
um í þessu starfi, en þetta er samt
rosalegur karlaheimur ennþá.
Ætli við séum ekki að reyna að
koma af stað smá byltingu með
þessu,“ segir Þuríður K. Krist-
leifsdóttir, eða Þura Stína plötu-
snúður og nemi. Hún og tíu aðrar
plötusnúðastelpur ætla að tileinka
októbermánuð stelpum sem eru
plötusnúðar. „Við ætlum að vera
öll miðvikudagskvöld á Boston að
spila, ein til tvær saman. Með því
viljum við bara styðja við bakið á
þeim stelpum sem eru í þessum
geira og hvetja stelpur til þess að
byrja að spila. Þetta er ekki bara
strákastarf,“ segir Þura. „Þetta
byrjaði með því að við stofnuð-
um Facebook-síðu sem hét Stelpu-
snúðar Íslands. Við vildum bara
sjá hverjar væru í þessu og þarna
vildum við bara efla hver aðra og
byggja upp þennan hóp“, segir
Þura. „Við gerðum þetta líka í
fyrra og vorum mikið að spá hvort
við ættum að gera þetta aftur, því
það á ekki að þurfa að hafa heil-
an mánuð tileinkaðan plötusnúða-
stelpum. Þetta á bara að vera
sjálfsagt,“ segir Þura. Hún segir
að þær fái oft að heyra að þær séu
ekki nógu duglegar að troða sér að
og suða og að þetta sé mikið hark.
„Við heyrum oft að það sé verið að
leita að stelpum til að spila. Auðvit-
að er litla Ísland svolítið þannig að
þú þarft að þekkja einhvern sem
þekkir einhvern, en svo eru þetta
oftast bara fasta dj-ar og það eru
alltaf strákar. Við erum samt að
vona að það sé að breytast,“ segir
Þura. Hún hvetur þær stelpur sem
hafa áhuga á starfinu að setja sig
í samband við sig. „Þetta er ein
skemmtilegasta vinna í heimi,
þetta er svo óvænt og maður veit
aldrei í hverju maður lendir.“
Sjálf byrjaði hún að spila fyrir
tveimur árum. Það var fyrir
algjöra tilviljun, en hún var að
vinna á skemmtistað þegar yfir-
menn hennar báðu hana að spila
gamla íslenska tónlist eitt kvöld-
ið. „Mér datt aldrei í hug að þetta
væri eitthvað sem ég gæti. Það
þurfti að sannfæra mig um það,
en mín fyrstu dj-kvöld hétu Fjólu-
blátt ljós við barinn. Það vatt upp
á sig því áhuginn kviknaði um leið
og þá varð ekki aftur snúið,“ segir
Þura.
Á föstudagskvöldið ætla þær að
spila allar saman á skemmtistaðn-
um Húrra. „Við erum alveg ellefu
svo það má búast við fjölbreyttri
tónlist, eins mismunandi og við
erum margar,“ segir Þura.
adda@frettabladid.is
Ekki bara strákastarf
Ellefu íslenskar plötusnúðastelpur vilja vekja athygli á stelpum í starfi nu. Þær
vilja sjá fl eiri stelpur í geiranum og hvetja þær til að byrja.
FLOTTUR HÓPUR Plötusnúða stelpurnar vilja fleiri stelpur inn í þennan strákaheim. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ætli við séum ekki
að reyna að koma af stað
smá byltingu með þessu.
Þuríður K. Kristleifsdóttir (Þura Stína),
plötusnúður og nemi.
„Tónlist myndar oft svo skemmti-
leg tengsl við fólk og ferðast með
mann á óvænta staði,“ segir Guð-
björg Tómasdóttir, kölluð Bubba, í
hljómsveitinni My bubba. Hljóm-
sveitin er á leið í tveggja mánaða
tónleikaferðalag og mun meðal
annars hita upp fyrir írska tónlist-
armanninn Damien Rice á þrenn-
um tónleikum.
„Við kynntumst Damien þegar
við vorum að spila á KexKöntrí-
hátíðinni í sumar. Eftir eitt kvöldið
á hátíðinni safnaðist hópur af tón-
listarfólki saman í lítilli íbúð og
spilaði heimatilbúna tónlist alla
nóttina. Svo spurði hann okkur
hvort við vildum hita upp fyrir
hann í Evrópu þar sem við vorum
með bókaðan túr þar á svipuðum
slóðum og hann.“
Hljómsveitin hefur verið til í
um fimm ár en hana skipar ásamt
Bubbu My Larsdotter auk þess sem
oft spila með þeim aðrir hljóðfæra-
leikarar. Þær stöllur hafa gefið út
tvær plötur og ferðast mikið undan-
farin ár og spilað tónlist sína víða
um heim. „Það hefur orðið þannig
að okkur finnst eiginlega skemmti-
legast að spila annars staðar en
heima hjá okkur. Við höfum farið í
ótal ferðalög um Evrópu og líka um
Bandaríkin,“ segir Bubba.
Þær halda í ferðalagið til þess
að kynna nýjustu plötu sína, Goes
Abroder, sem kemur út hjá Smekk-
leysu í maí. Ferðalagið hefst með
tónleikum í Mengi í hádeginu á
föstudag þar sem tónleikagestir
geta einnig gætt sér á súpu frá
Snaps. - vh
Hita upp fyrir Damien Rice
Hljómsveitin My bubba er á leiðinni í tveggja mánaða tónleikaferðalag.
FERÐAST MIKIÐ Þær Bubba og My
hafa spilað víða um heim undanfarin ár.
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
Create Now – Reykjavík
Grand Hótel, 15.-16. október
Námsstefnan Adobe Create Now verður haldin
á Grand Hótel Reykjavík með fjölda frábærra
fyrirlestra um notkun Adobe hugbúnaðar fyrir
ljósmyndara, prenthönnuði, vefhönnuði og
kvikmyndagerðarfólk.
2 dagar, 27 fyrirlestrar frá 6 sérfræðingum
verð aðeins 15.000 kr.
Ókeypis kynningarfyrirlestur um Creative Cloud
báða dagana. - Allir velkomnir
Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu
Hugbúnaðarsetursins:
www.hugbunadarsetrid.is
Fimmtudagar eru frekar tjillaðir,
sérstaklega núna að hausti til og þá
á lagið Pound Cake/Paris Morton
með Drake og Jay-Z vel við. Klikkað
eins og flest öll lögin á plötunni.
Drizzy og Jay-Z klikka seint!
Steinar, tónlistarmaður
FIMMTUDAGSLAGIÐ