Fréttablaðið - 25.10.2014, Blaðsíða 2
25. október 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
SAMKEPPNISMÁL Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkis-
saksóknari ætlar að rannsaka leka á trúnaðar-
gögnum um kæru Samkeppniseftirlitsins gegn
ellefu starfsmönnum tveggja skipafélaga til Kast-
ljóss. Þetta kemur fram í svari Sigríðar við fyrir-
spurn RÚV um málið.
Fréttaskýringaþátturinn Kastljós fjallaði um
kæru Samkeppniseftirlitsins til embættis sér-
staks saksóknara vegna meintra brota Eimskips
og Samskipa á samkeppnislögum. Samkeppniseft-
irlitið fór fram á að opinber rannsókn færi fram
á því hvaðan og hvernig trúnaðarupplýsingunum
var lekið til Kastljóss.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari,
segist í samtali við Fréttablaðið ekki geta svarað
því hvort hann ætli að sitja áfram í embætti þegar
rannsóknin hefst.
„Ég hef nú ekkert enn þá heyrt af þessu og get
voða lítið sagt á meðan ég hef ekki neinar upplýs-
ingar,“ segir Ólafur.
Ekki náðist í Pál Gunnar Pálsson, forstjóra
Samkeppniseftirlitsins, við vinnslu fréttarinnar.
- ak / hg
Nanna Rögnvaldardóttir,
matmóðir og rithöfundur,
fylgdi 80 ára gömlum mat-
seðli, með ýmsum útúrdúrum,
í viku og tókst að halda kostn-
aði hverrar máltíðar undir 248
krónum.
Stefanía Thors, varafor-
maður Félags kvikmyndagerð-
armanna, sagði skrýtið að Ís-
landsstofa treysti ekki íslensku
kvikmyndagerðarfólki til að
kynna Ísland. Um er að ræða
hluta af herferðinni Inspired by Iceland.
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
FORNMINJAR „Nú þurfum við að end-
urmeta alla hönnun og vinna úr þess-
ari stöðu,“ segir Einar Á.E. Sæmund-
sen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á
Þingvöllum, um kanthleðslur úr
gamla Konungsveginum sem komið
hafa í ljós við Flosagjá og Nikulás-
argjá.
Einar segir að í vikunni hafi haf-
ist framkvæmdir vegna lagfæringar
á veginum og aðkomusvæði vestan
megin við brúna yfir Flosagjá, sem
yfirleitt er nefnd Peningagjá. Malbik
hafi verið flysjað ofan af veginum.
„Við gerðum það mjög varlega
vegna þess að hér getur maður allt-
af átt von á fornleifum alls staðar.
Mjög fljótlega komu hleðslur í ljós,
fyrst norðan megin við veginn og
síðan sunnan megin þar sem hleðsl-
urnar eru skýrari. Það eru kantarn-
ir á gamla Konungsveginum sem fór
þarna yfir,“ segir Einar.
Konungsvegur var lagður í tilefni
Íslandsheimsóknar Friðriks VIII
Danakonungs árið 1907. Vegurinn
liggur um Þingvelli að Geysi og Gull-
fossi og kostaði ríkið 14 prósent af
ársútgjöldum.
„Maður átti von á því að einhvern
tíma í millitíðinni frá því vegurinn
var byggður og þangað til í dag væri
búið að ryðja minjum af honum burt
en kantarnir af honum eru þarna
mjög skýrir undir,“ segir Einar sem
kveður fornleifafræðing nú vinna
við að hreinsa hleðslurnar og meta.
„Það verður reynt að fara eftir
ráðleggingum frá Minjastofnun
um það hvernig við getum hannað í
kringum þetta. Það kemur kannski í
ljós í næstu viku í hvað þetta stefnir.
Hugsanlega verður þetta bara enn
betra,“ segir fræðslufulltrúinn á
Þingvöllum. gar@frettabladid.is
Viðgerð á Þingvöllum
afhjúpar Konungsveg
Hleðslur úr hinum forna Konungsvegi komu í ljós við lagfæringar við Nikulásargjá
og Flosagjá á Þingvöllum. Fornleifafræðingar rannsaka nú fundinn. Hanna þarf
svæðið að nýju með hliðsjón af minjavernd, segir fræðslufulltrúi þjóðgarðsins.
Það kemur kannski
í ljós í næstu viku í hvað
þetta stefnir.
Einar Á.E. Sæmundsen,
fræðslufulltrúi á Þingvöllum.
FÖRUNEYTI KONUNGS Friðrik VIII
ríður hér í fararbroddi á Konungs-
veginum þar sem hann liggur að
Flosagjá og þar yfir.
M
YN
D
/EIN
AR SÆ
M
U
N
D
SEN
KONUNGSVEGUR Gamlar kanthleðslur
komu í ljós er unnið var að lagfæringum
á vestan við Peningagjá á Þingvöllum.
Mannréttindadómstóllinn
dæmdi Erlu Hlynsdóttur í vil
„Þetta eru frábærar fréttir og ég ákvað að vonast eftir
nákvæmlega þessu,“ sagði blaðakonan Erla Hlyns-
dóttir í tilefni þess að Mannréttindadómstóll Evrópu
komst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði
brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmála Evr-
ópu um tjáningarfrelsi. Hæstiréttur dæmdi Erlu til
að greiða eiginkonu Guðmundar Jónssonar, sem
kenndur er við Byrgið, bætur fyrir ummæli
sem höfð voru eftir viðmælanda í frétt sem
hún skrifaði 2007. Íslenska ríkið á að greiða
Erlu 1,2 milljónir í bætur vegna málsins.
Jón F. Bjartmarz, yfi rlögreglu-
þjónn hjá ríkislögreglustjóra,
fullyrti að ekki væri verið að
vopna lögregluna umfram það
sem verið hefði síðustu ár
vegna fregna af sendingu hríð-
skotabyssna frá Noregi.
FIMM Í FRÉTTUM HRÍÐSKOTABYSSUR OG FÓTBOLTAMENN
Ásgrímur Ásgrímsson,
framkvæmdastjóri aðgerða-
sviðs Landhelgisgæslunnar,
lýsti yfi r áhyggjum vegna
vanbúinna og illa mannaðra
erlendra fl utningaskipa sem
eru á siglingu við landið.
➜ Lars Lagerbäck,
annar landsliðsþjálfara Ís-
lands, gladdist þegar hann
sá á netinu að íslenska
fótboltalandsliðið hefur
farið upp um 76
sæti á styrk-
leikalista FIFA
síðan hann tók
við því fyrir
34 mán-
uðum.
Sérstakur saksóknari segist ekki geta svarað því hvort hann sitji áfram:
Rannsakar leka gagna til RÚV
RÍKISSAKSÓKNARI
Sigríður ætlar að
skoða meintan leka á
rannsóknargögnum.
Ég hef nú ekkert
enn þá heyrt af þessu
og get voða lítið sagt á
meðan ég hef ekki
neinar upplýsingar.
Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari.
MÓTMÆLI Rúmlega hundrað mótmælendur söfnuðust saman við lög-
reglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík í gær til að mótmæla vopna-
burði lögreglunnar. Mótmælendurnir mættu margir vopnaðir vatns-
byssum, sápukúlum og vatnsblöðrum líkt og hvatt hafði verið til á
Facebook-síðu mótmælanna. Þau fóru að mestu friðsamlega fram en
þó var rauðri málningu skvett á lögreglustöðina og grjóti kastað í
húsið. Einn karlmaður var handtekinn og leiddur á brott af lögreglu.
- hg / Sjá síðu 4
Rauðri málningu skvett á lögreglustöðina og grjóti kastað:
Mótmæltu vopnaðir vatnsbyssum
VIÐ HVERFISGÖTU Efnt var til mótmælanna eftir að fréttir bárust að Ríkislögreglu-
stjóri hefði fengið um 150 vélbyssur frá norska hernum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÍSRAEL, AP Orwah Hammad,
fjórtán ára gamall drengur frá
Palestínu, lést þegar ísraelskir
hermenn svöruðu grjótkasti pal-
estínskra ungmenna með skot-
um í Jerúsalem á föstudag.
Alls særðust tólf Palestínu-
menn í átökunum. Ísraelski her-
inn fullyrti að hermenn hefðu
komið í veg fyrir frekari árásir
með því að skjóta á Palestínu-
mann sem hefði kastað eld-
sprengjum að umferðargötu í
borginni. - hg
Hermenn drápu ungling:
Grjótkasti svar-
að með skotum
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/E
RN
IR
SJÁVARÚTVEGUR Landssamband
íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og
Samtök fiskvinnslustöðva verða
sameinuð í nýja félaginu Samtök-
um fyrirtækja í sjávarútvegi ef
aðalfundur LÍU samþykkir sam-
eininguna.
Aðalfundur LÍÚ verður haldinn
fimmtudaginn næstkomandi og
verður tillaga um sameininguna
þar borin upp. Stofnfundur Sam-
taka fyrirtækja í sjávarútvegi á
að fara fram á Hilton Reykjavík
Nordica daginn eftir. - hg
Sameining í sjávarútvegi:
LÍU gæti farið
inn í ný samtök