Fréttablaðið - 25.10.2014, Page 18

Fréttablaðið - 25.10.2014, Page 18
25. október 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18 Útvarpsgjald var á sínum tíma innleitt í því skyni að renna traustum stoð- um undir starfsemi Rík- isútvarpsins (RÚV), eftir að stofnuninni var fyrir- varalaust gert að axla líf- eyrissjóðsskuldbindingar er nema milljörðum króna. Einhverra hluta vegna hafa stjórnmálamenn síðan á undanförnum árum tekið til við að verja útvarps- gjaldinu til ýmissa ólíkra verkefna, sem eru allsendis óskyld RÚV. Er það í senn óskiljanlegt og ólíðandi og ber að leiðrétta án tafar. Vanhugsaðar og fjárfrekar bygg- ingarframkvæmdir í Efstaleiti 1 hófust á síðustu öld og er enn vart að fullu lokið. Steinsteypubrölt þetta hefur verið og er enn afar þungur fjárhagslegur baggi á RÚV. Galnar en lífseigar hugmyndir Ríkinu ber að kaupa umrætt hús og gera stofnuninni þannig kleift að losa sig úr lamandi skuldafjötrum og einbeita sér að meginhlutverki sínu sem er að sinna íslenskri dag- skrárgerð, varðveislu og skráningu menningarsögu okkar. Þá skal þess eindregið óskað að linna megi síend- urteknum bollaleggingum um að selja beri Rás 2. Hún er útbreiddasta útvarpsstöð landsins, sjálf mjólkurkýr útvarpssviðs RÚV sem mestra auglýsingatekna aflar en minnst dagskrár- framlög hlýtur. Slíkar vangaveltur eru glóru- lausar með öllu, leysa engan fjár- hagsvanda og eru hrein móðgun við hlustendur Rásar 2 og ekki síður þá skapandi íslensku hryntónlist- armenn sem um áratugaskeið hafa mátt reiða sig á eina ófrávíkjan- lega opinbera stoð í öllu sínu starfi, innan lands og utan, Rás 2. Rás 2 hefur staðið með íslenskri útgáfu og tónlistarfólki svo af ber, hefur varpað íslenskri tónlist um árabil til tuga erlendra útvarps- stöðva, skipulagt innlegg Íslands á risamörkuðum á borð við Euro- sonic og lagt grunninn að því ótrú- lega ævintýri sem sókn íslenskrar tónlistar á erlenda markaði er. Auk þessa hefur stöðin valið sívaxandi fjölda íslenskra laga á spilunarlista sína sem sl. þrjú ár hefur leitt til yfir 50% hlutfalls íslenskrar tón- listar. Á meðan nýgild íslensk hryntón- list, sem dáð er um allan heim, má sætta sig við heil 5% af heildar- framlögum ríkis og sveitarfélaga til tónlistarlífs í landinu(!), er þeim tilmælum eindregið beint til bæði almennings og stjórnmálamanna að láta Rás 2 hér eftir njóta sann- mælis, efla hana og tala upp – ekki niður. Sama gildir um RÚV sem með réttu ber að vera þjóðarspegill sem við getum speglað okkur í með gleði og stolti. Ber að selja Óla Palla? 17 ár, frá því að ég byrjaði að læra læknisfræði og þar til ég verð sérfræðingur eftir nokkra daga. Það sem hefur haldið mér við efnið á þessari langferð, er hug- sjónin að láta gott af mér leiða. Tólf og hálft ár sem námið hefði getað tekið, tognaði í annan endann vegna barneigna. Öll sú lífsreynsla sem manni hlotnast á þessum tíma, með góðu námi á erlendri grundu, gerir mann þó að fróðum og vonandi góðum lækni. Ég var líka forsjál þegar ég lagði af stað og vissi þannig að ég gæti séð fjölskyldu minni farborða. Þegar margir mínir vinir luku grunnnámi um aldamót fékk lækn- ir útborgaðar 180 þúsund kr. fyrir dagvinnu. Framfærslukostnaður sex manna fjölskyldu var 130 þús. Háskólamenntaður maki var á þeim tíma með laun á pari við lækni og greiddi það sem upp á vantaði. Um síðustu mánaðamót fékk ég 304 þúsund í útborguð laun. Sem sérfræðingur mun ég fá um 350 þúsund. Framfærslukostnaður sex manna fjölskyldu er að lágmarki tæp 400 þúsund. Makinn þarf að greiða það sem upp á vantar fyrir framfærslu, allan húsnæðiskostnað (sem hefur þrefaldast) og erlendu námslánin sem tvöfölduðust við hrun. Þá segir einhver eflaust að læknar geti þó unnið auka- vinnu. En hverja einustu mínútu sem ég ver í auka- vinnu er ég ekki að sinna fjölskyldu, áhugamálum, gæludýrum eða vinum. Allir þeir yfirvinnutímar, sem ég hef þurft að vinna síðustu ár, eru tímar sem ég ætti ekki að þurfa að vinna, hvað þá að þeir dugi ekki til. Aðrir fara út á land, þar sem er mann- ekla, vinna á 24 tíma vökt- um með fimm þúsund krónur á tím- ann, vakandi um nætur og vinna dagvinnu næsta dag. Það eru hæstu tímalaun sem ég get komist upp í á starfsævinni! Þessir vinnutímar eru þó á launaseðli. Það gera hins vegar ekki óteljandi tímar sem maður ver í endurmenntun, í að leita lausna fyrir skjólstæðinga, í að undirbúa kennslu. Álagið engu líkt Vinnuálagið er engu líkt og við sinnum starfi margra í einu. Bráða- móttökur sinna heilsugæslumálum, heilsugæslurnar standa án lækna. Við ausum úr hriplekum bát hvert sem litið er. Hugsjónin hefur ekk- ert dofnað, ég hjálpa og það tekst býsna vel. Hvergi fær maður örugg- lega eins mikið af klappi á bakið, eins mikið af einlægum þökkum og jafnvel faðmlögum frá skjól- stæðingum sem hafa mætt skiln- ingi og hafa fengið lausn sinna mála á faglegan hátt. En klapp á bakið borgar ekki reikningana. Þakklæti mætir ekki á söngstund í leikskól- anum þegar maður kemst ekki frá á síðustu stundu vegna manneklu og faðmlögin koma ekki í stað þess að maður sinni æfingaakstri tánings- ins að kvöldi eða komist jafnvel í saumaklúbb. Góðir læknar ganga inn í störf hvar sem er. Hví ætti ég að bjóða mér og fjölskyldunni laun sem duga ekki fyrir nauðsynjum eða vinnu- tíma sem þekkist hvergi, þegar annað stendur til boða? Hví ætti ég að vinna í kerfi sem sér ekki vand- ann? Ég er ekki að biðja um mikið. Bara viðunandi vinnuumhverfi og fjárhagslegt öryggi og þannig möguleika að sinna ekki bara skjól- stæðingum mínum vel, heldur eiga eitthvað eftir til að gefa þegar heim er komið. Hlustið á kröfur lækna. Þeir vilja nefnilega vel. Höfundur er almennur læknir starf- andi á Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Lýkur sér- fræðinámi sem heimilislæknir í lok árs. Hlustið, kæru vinir Tilgangur greinar minnar um lán Seðlabanka Íslands til Kaupþings 6. október 2008 var fyrst og fremst sá að koma því á framfæri að láninu var einvörðungu ráðstafað með hagsmuni Kaupþings og viðskipta- vina hans að leiðarljósi og engar óeðlilegar fjár- magnshreyfingar áttu sér stað vegna lánsins. Það virðist hins vegar hafa vakið mesta athygli fjölmiðla að ég greini frá því að lán Seðla- bankans hafi verið veitt áður en lánaskjöl hafi verið útbúin og veð- samningar frágengnir. Seðlabank- inn taldi sig hafa ástæðu til að and- mæla þeirri fullyrðingu minni með yfirlýsingu sama dag og greinin birtist. Ég vil taka skýrt fram að ég tel ekki að stjórnendur eða starfsmenn Seðlabankans hafi gerst sekir um umboðssvik við afgreiðslu lánsins. Tímarnir voru óvenjulegir í byrjun október 2008 og ég held að starfs- menn og stjórnendur Seðlabankans hafi starfað í góðri trú og talið sig vera að vinna innan sinna heimilda og samkvæmt vilja ríkisstjórnar. Enginn ásetningur var um að valda fjárhagstjóni. Stjórnendur og starfsmenn Seðlabank- ans voru undir miklu álagi nákvæmlega eins og starfs- menn fjölmargra innlendra fjármálafyrirtækja á þess- um tíma sem tóku heiðar- legar ákvarðanir þó að e.t.v. megi eftir á finna að því að vikið hafi verið frá verkferlum við afgreiðslu einstakra lánamála. Aldrei kláraður Það er hins vegar óumdeilt að lánið til Kaupþings var veitt án þess að lánasamningur og veðsamningur væru frágengin. Lánið var með öðrum orðum útgreitt og Kaup- þingi til ráðstöfunar áður en gengið var endanlega frá þessum skjölum. Það var raunar misminni hjá mér að lánasamningur hafi verið klár- aður á næstu dögum eftir útborg- un lánsins. Það var aldrei kláraður lánasamningur á milli Kaupþings og Seðlabankans vegna þessa láns. Helsta athugasemd Seðlabank- ans við skrif mín var sú að bank- inn hafi verið búinn að tryggja sér veð í hlutabréfunum í FIH-bankan- um í lok viðskiptadags 6. október en þó eftir að lánið hafði verið greitt út. Það kemur mér á óvart að Seðla- bankinn líti svo á að veðsetning- unni hafi verið að fullu lokið í lok viðskiptadags 6. október. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Ein þeirra er sú staðreynd að stjórn Kaupþings hafði ekki komið saman og sam- þykkt að veðsetja hlutabréfin í FIH til Seðlabankans í lok viðskiptadags 6. október. Sá fundur var haldinn um kvöldið 6. október og hófst ekki fyrr en kl. 20.15. Mig minnir einnig að starfsmenn lögfræðideilda bank- anna hafi haldið áfram að vinna að lokafrágangi veðsetningar hlut- anna að morgni 7. október. Ef það er rangt skilið hjá mér að þurft hafi að koma til samþykki stjórnar Kaupþings banka hf. til að tryggja veðsetningu bréfanna og að vinnan sem fór fram 7. október hafi af þeim sökum verið óþörf biðst ég afsökunar á ónákvæmni minni í greininni í síðustu viku. Engin skjöl voru frágengin - engin venjuleg bílaþvottastöð G ullsm ári Smáralind S m ár ah va m m sv eg ur Hagasmári Fífuhvamm svegur Opnunartíminn: mánudaga til föstudaga 9-19 laugardaga 10-18 • sunnudaga 13-18 fylgstu með okkur á Facebook Fyrir ofan Smáralind Sími 567 1213 • www.splass.is Kynningartilboð Handþvoum bílinn að utan á 10 mínútum. 1.500 kr* *gildir dagana 2.-7. júní Opnunartíminn: mánudaga til föstudaga 9-19 laugardaga 10-18 • sunnudaga 13-18 fylgstu með okkur á Facebook Fyrir ofan Smáralind Sími 567 1213 • www.splass.is Opnunartíminn: Mánudaga til föstudaga frá 9-18 Laugardaga frá 10-18 Sunnudaga frá 12-18 Nú líka opið á Sunnudögum!! Svampþvottur bón og þurrkun á aðeins 7 ínútum. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Ryksuguúrval Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ 6.690,- Spandy heimilisryksugan • 1600W • afar hljóðlát • mikill sogkraftur > 18KPA • Hepa filter • margnota pokiDrive ryksuga í bílskúrinn • 1200W • 20 lítra • sogkraftur > 16KPA • fjöldi fylgihluta 7.490,- Model-LD801 Cyclon ryksuga Kraftmikil 9.890,- Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is RÚV Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður HEILBRIGÐIS- MÁL Sigurveig Stefánsdóttir læknir FJÁRMÁL Hreiðar Már Sigurðsson fv. forstjóri ➜ Vinnuálagið er engu líkt og við sinnum starfi margra í einu. Bráðamóttökur sinna heilsugæslumálum, heilsu- gæslurnar standa án lækna. Við ausum úr hriplekum bát hvert sem litið er. ➜ Einhverra hluta vegna hafa stjórnmálamenn síðan á undanförnum árum tekið til við að verja útvarps- gjaldinu til ýmissa ólíkra verkefna, sem eru allsendis óskyld RÚV.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.